Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Blaðsíða 12
ur leit mátti sjá afleiðingar stríðsins. Heilu hverfin voru rústir og gígar í vegunum eftir sprengjur sem hafði verið varpað úr fjöllunum um kring. Við töl- uðum við fólk sem hafði misst sína nánustu í til- gangslausum morðum. Heilu fjölskyldurnar höfðu verið þurrkaðar út. Sorgin lá yfir borginni eins og ský. Ég man eftir því að hafa staðið í kirkjugarðinum í Sarajevo með kökkinn í hálsinum, horfandi yfir enda- lausar breiður af leiðum. Þetta var ekki bara kirkju- garður, heldur líka tveir fótboltavellir sem höfðu ver- ið teknir undir fórnarlömb þessa hræðilega stríðs. Á krossunum voru dagsetningar, nema það vantaði á flest leiðin töluna 9. Hún kláraðist. Ég man eftir því að hafa staðið þarna og fundið fyrir þrúgandi samviskubiti yfir því að hafa aldrei svo mikið sem nennt að kynna mér um hvað þetta sner- ist. Fyrir að hafa ekki hlustað á allar þessar fréttir og ekki gert neitt til að láta einhvern vita að mér stæði ekki á sama. Að sama skapi kenndi þetta mér að fréttir eiga að snúast um fólk. Ekki hershöfðingja, staði og ein- hverja pótintáta hjá ESB og Sameinuðu þjóðunum. Ekki fréttir af fundum þjóðarleiðtoga og ráðstefnum á fínum hótelum. Þær segja okkur ekki neitt um það hversu ömurleg stríð eru. Að standa yfir gröfum barna á aldur við manns eigin segir manni líka hvað maður er vitlaus og eig- ingjarn að leyfa sér að vera alveg sama. Næst þegar við heyrum fréttir af stríði, hvort sem það er í Sómalíu, Sýrlandi eða Súdan, skulum við hafa hugfast að stríð snýst um fólk. Oftast fólk sem hefur ekkert gert af sér, vildi ekkert hafa með stríð gera og syrgir börnin sín. Alveg eins og við. Frá því ég man eftir mér hef ég hlustað á fréttiraf stríði og borgarastyrjöldum um allan heim.Frá Ísrael til Afganistan. Frá Suður-Afríku til El Salvador. Á stöðum sem ég vissi ekki að væru til, eins og Falklandseyjar og Nagorno Karabakh. Lengi vel voru þessar fréttir allar eins. Þungbúinn þulur að segja mér að einhver hópur hefði náð ein- hverju þorpi á sitt vald og svo og svo margir hefðu fallið í loftárásum. Andlitslaust fólk í fjarlægum lönd- um. Og smám saman myndast mótefni við þessum fréttum og þær hætta að heyrast. Vopnaskak verður að suði sem hreyfir ekki við manni enda mest dap- urleg tölfræði í bland við framandi landafræði. Suð. Ég var kominn á þann stað að bara orðið Ísrael náði að slökkva á flestum skilningarvitum og eins vel og ég fylgdist með fréttum hefði ég ekki getað sagt um hvað fréttin væri. Jafnvel þótt ég hefði lesið hana sjálfur. Þetta breyttist allt í nóvember 1996. Þá, fyrir al- gjöra tilviljun, fór ég með í ferð til Bosníu sem var skipulögð til að færa stúdentum námsgögn sem hafði verið safnað á Íslandi. Ég var búinn að heyra þúsund fréttir en þurfti samt að fletta því upp til að vita al- mennilega um hvað þessi blóðuga styrjöld snerist. Umsátrið um Sarajevo hafði staðið í tæp fjögur ár og nú var loksins kominn á friður. Það var útgöngubann í borginni og hvert sem mað- Stríðsónæmi Logi Bergmann logi@mbl.is Á meðan ég man ’Á krossunum voru dagsetningar, nema þaðvantaði á flest leiðin töluna 9. Hún kláraðist. VETTVANGUR 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.4. 2018 Tómleiki hið innra „Mér sýnist einhver tómleiki vera innra með honum og þörf fyrir við- urkenningu sem ég hef aldrei séð hjá fullorðinni manneskju.“ James Comey, fyrrverandi forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar, um Donald Trump Bandaríkjaforseta. Versti forstjóri sögunnar „Hinn flugháli James Comey, maður sem alltaf fer illa fyrir og er úti á túni (hann er ekki klár!) verður í sögulegu samhengi metinn sem versti forstjóri FBI, lang- versti.“ Donald Trump Bandaríkja- forseti um James Comey. Ég skal þjálfa hunda „Mér finnst þetta spennandi verkefni. Fyrir mér skiptir engu máli hvort ég þjálfa karla eða konur. Ég skal þjálfa hunda eða mótorhjól sé því að skipta. Þjálfun er þjálfun.“ Sebastian Alexandersson, nýráðinn þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í handbolta. Engin efnavopn, takk „Við megum ekki leyfa því að gerast að notkun efnavopna verði eðlileg, hvort sem það er í Sýr- landi, á götum Bretlands eða annars staðar.“ Theresa May, forsætisráðherra Breta. Hressir leiðtogar Vel fór á með Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, og Angelu Merkel Þýskalands- kanslara, þegar þær stungu saman nefjum í vikunni. AFP VIKAN SEM LEIÐ UMMÆLI VIKUNNAR „Ég er svo vel menntuð að ég geri mér grein fyrir að við erum villi- menn, en í villimennskunni býr þróttur.“ Þórunn Jarla Valdimarsdóttir rithöfundur. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Trjáklippur Mikið úrval af trjáklippum, greinaklippum og greinakurlurum. ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 17:00 í Hörpu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.