Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Qupperneq 23
1,5 l vatn
safi úr 4 sítrónum
4 msk. sykur
150 g frosin hindber
Allt sett saman í blandara.
Njótið með klökum.
Hindberja-
límónaði
22.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Miðað við eina beyglu
beygla (hægt að kaupa frosnar ef ekki heimabakaðar)
2 sneiðar cheddarostur
2-3 ræmur beikon
½ lárpera
steiktur laukur
sætt sinnep
Ristið beyglubrauðið í ofninum eða í brauðrist.
Bræðið ostinn á neðri helming beyglunnar í ofn-
inum.
Leggið beikonræmurnar og fínsneidda lárperuna
yfir ostinn um leið og hann hefur verið bræddur.
Stráið steiktum lauk yfir og toppið svo herlegheitin
með sætu sinnepi.
„Fat Mike“-beygla
Fyrir 6 múffur
120 g eplamauk án viðbætts sykurs
80 ml fljótandi kókosolía
120 ml jurtamjólk (möndlu, kókos, soja, hafra o.s.frv.)
240 g hveiti
100 g kókosflögur eða kókosmjöl, eftir smekk
160 g púðursykur
2 þroskaðir bananar
1 msk. lyftiduft
Fyrir þessa uppskrift er notast við múffuform úr sílikoni í
stærri kantinum. Það má nota minni form, en athugið að
bökunartíminn styttist við það og þarf að fylgjast vel með.
Forhitið ofninn í 170 °C.
Léttristið kókosflögurnar í ofninum þar til þær eru gyllt-
ar. Fylgjast þarf vel með svo að þær brenni ekki. Kælið.
Blandið eplamauki, olíu og mjólk saman í skál.
Blandið hveiti, sykri, lyftidufti, kókosflögum (eða mjöli)
og grófhökkuðum banönum í aðra stærri skál.
Hellið vökvanum yfir þurrefnablönduna og hrærið þar til
allt er orðið vel sameinað.
Dreifið deiginu í múffuformið og stráið því næst kókos-
mjöli yfir.
Bakið við 170 °C í 25-30 mínútur. Kökurnar eru tilbúnar
ef hnífsoddur sem stungið er í þær miðjar kemur út þurr.
Njótið með góðum heitum drykk eða mjólkurglasi.
Múffur með kókos
og banönum
Grafinn lax
- Láttu það eftir þér
Söluaðilar:10-11,Hagkaup,Kostur,Icelandverslanir,Kvosin,Melabúðin,
Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin.
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is