Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Page 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Page 26
Nýlega fórum við Vera Páls-dóttir ljósmyndari í heim-sókn í höfuðstöðvar Swar- ovski-fyrirtækisins í París. Eins og margir vita er Swarovski fyrirtæki sem framleiðir kristal. Kristallinn er notaður til margra hluta; Swarovski framleiðir kristalla til að nota í tískuvörur, en er einnig með eigin skartgripaframleiðslu. Skartgripirnir frá fyrirtækinu eru seldir út um allan heim, til dæmis í stórmagasínum og fríhöfnum. Yfirmaður hönnunar skartgripa- deildarinnar er íslenskur, Ragnar Hjartarson að nafni. Hann er búinn að vinna mjög lengi í lúxusbrans- anum í París, meðal annars hjá tísku- húsum á borð við Cartier, Hermes og Boucheron, og hjá Georg Jensen í Kaupmannahöfn. Við báðum hann um að taka á móti okkur og sýna okk- ur smávegis af þessu merka fyr- irtæki. Merkileg saga Danile Swarovski var frá Bæheimi, í Tékkóslóvakíu, þar sem faðir hans rak lítið glerskurðarfyrirtæki. Þetta svæði var búið að að vera lengi fram- arlega í gler- og kristalsframleiðslu í Evrópu. Hann fór að gera tilraunir með að búa til litla kristalla, eins og demanta, og fékk einkaleyfi á því. Hann flutti starfsemina til Týrol í Austurríki 1895. Kristall var auðvitað löngu kominn til sögunnar, til dæmis fyrir glös og ljósakrónur, en Daniel Swarovski hannaði tæki sem skáru kristal á miklu fíngerðari hátt. Síðan tók hann þátt í heimssýning- unni í París árið 1900, og þá fór hann að vinna með þekktustu kjólahönn- uðum þeirra tíma, englendingnum Charles Frederic Worth og frakk- anum Jeanne Paquin. Eftir það fór allur franski tísku- heimurinn að nota kristalla á föt og aðra tískuvöru. Þessir kristallar urðu vinsælir strax og þeir komu á mark- aðinn fyrir um það bil 120 árum. Síðan hafa nánast allir tískuhönn- uðir heims notað þessa kristalla. Ragnar Hjartarson á skrifstofu sinni. Kristals- gluggatjöld í baksýn. Mikki mús til vinstri þakinn kristöllum. Helmingi minni Mikki kostar um það bil 8.000 evrur eða eina milljón íslenskra króna. Töfraskógur Swarovski Flestir kannast við fyrirtækið Swarovski sem framleiðir kristal í tískuvöru og skartgripi. Yfirmaður hönnunar skartgripadeildar Swarovski er Íslendingurinn Ragnar Hjartarson sem er búsettur í París Texti: Sigrún Úlfarsdóttir Ljósmyndir: Vera Pálsdóttir Eyrnalokkar, já þetta er par, úr hringlaga línunni. Sem er líka fyrir næsta vetur. Veggfóðrið með glitrandi töfraskógi. Veturinn 2018-19 verður svona. Þessi taska kemur úr Atelier Swarovski. Hún er fyrir sumarið 2018 og er eftir Jason Wu. Tvær hálsfestar úr einni línunni sem er búin til úr hringjum. Þessi uppstilling er fyrir línuna næsta vetur. Þegar við göngum inn tökum við eftir ljósakrónu úr kristal. Nútímaleg hönnun á kristalsljósakrónu. Það eru margar svona í þessu rými. Nærmynd af hinum mjög svo glam- úrlegu kristalsgardínum. Bleikrauðar keðjur fyrir næsta vetur. Þær virka fljótt á litið eins og þær sé úr flaueli. En ef skoðað er betur kem- ur í ljós að þær eru þaktar óteljandi kristöllum, sumum örsmáum og öðr- um aðeins stærri. TÍSKA 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.4. 2018 Tilkynnt var í vikunni að ítalska tískuhúsið Moschino myndi hanna línu fyrir fataframleiðandann H&M. Línan er væntanleg í verslanir 8. nóvember næstkomandi. Moschino hannar fyrir H&M

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.