Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Side 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Side 36
SJÓNVARP Breska sjónvarpskonan Holly Willoughby spyr sig í samtali við The Guardian hvort #metoo- byltingin sé þegar um garð gengin. Hún fór að velta þessu fyrir sér kvöldið sem Brit-verðlaunin voru haldin fyrir skemmstu. Karlar og konur mótmæltu kynbundnu ofbeldi kröftuglega á hátíðinni en þegar Willoughby fór út að skemmta sér með söngkonunni Ritu Ora og fleiri vinkonum sínum á eftir sátu ljósmyndarar, svokallaðir papparassar, fyrir þeim með vélar sínar lágt á lofti í þeirri von að ná myndum upp undir pils kvennanna. Ekkert hafði með öðrum orðum breyst. Willoughby ofbauð og fjallaði um málið á Instagram. „Þetta er ekki í lagi og á ekki að vera í lagi,“ sagði hún og fékk mikið lof fyrir. En líka bágt: „Af hverju varstu í svona stuttu pilsi?“ Mynda upp undir pilsin Sjónvarps- konan Holly Willoughby. AFP 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.4. 2018 LESBÓK MÁLMUR Aðdáendur Judas Priest fengu óvæntan glaðning á dögunum þegar gítar- leikarinn Glenn Tipton steig á svið með band- inu í uppklappi í Bandaríkjunum, og tók þrjú síðustu lögin með félögum sínum. Tipton, sem stendur á sjötugu, upplýsti fyrr á þessu ári að hann væri með parkinsons-sjúkdóminn og gæti fyrir vikið ekki túrað meira en hann gekk til liðs við þá prestunga árið 1974. Tip- ton á ennþá formlega aðild að bandinu en Andy Sneap leysir hann af hólmi á tónleikum. Judas Priest er nú að túra nýja plötu, Fire- power, og gæti Tipton átt eftir að birtast endrum og sinnum á sviðinu. Tipton birtist óvænt á sviðinu Glenn Tipton og Rob Halford, söngvari Priest. AFP Ævar Þór Benediktsson er duglegur að gera efni fyrir börn. Barnaverðlaun RÚV Bein útsending verður á sunnudagskvöldið kl. 19:45 frá há- tíð, þar sem verðlaunað verður það sem vel var gert í barnamenningu á Íslandi árið 2017. Sögur verða í for- grunni enda eru þær allt í kringum okkur. Þær eru í tónlistinni, á leik- sviðunum, í kvikmyndahúsunum, í sjónvarpinu og í bókunum. Sögur fyrir og eftir krakka verða verð- launaðar og krakkarnir sjálfir ráða ferðinni, því þeir kjósa það sem þeim fannst bera af á seinasta ári. RÁS 1 Hug- myndasaga full- veldisins er tíu þátta röð sem fjallar um fyrstu öld fullveldis Ís- lendinga í ljósi hugmyndasög- unnar. Í hverjum þætti eru tilteknir hugmyndastraumar fullveldissög- unnar raktir til fortíðar og fram- tíðar með hliðsjón af einum ákveðnum viðburði sem telja má til marks um þær hugmyndir sem um ræðir. Á mælistiku slíkrar hug- myndasögu eru hundrað ár örstutt- ur tími og leitað er fanga víða. Um- sjón hefur Marteinn Sindri Jónsson og næsti þáttur er á dagskrá á laug- ardag kl. 17. Hugmyndasaga Marteinn Sindri Jónsson STÖÐ 2 Ellen’s Game of Games kallast leikja- og skemmtiþættir í umsjón spjallþáttadrottningarinnar Ellen DeGeneres sem sýndir eru á laugardagskvöldum. Í hverjum þætti keppa lið í fjölbreyttum og frumlegum leikjum og þrautum í von um að hreppa væna peninga- upphæð. Leikirnir og þrautirnar eru áhorfendum kunnar úr spjall- þáttum Ellenar sjálfrar. Ellen DeGeneres er alltaf hress. Leikið við Ellen Hann er orðinn 103 ára en ernog á róli. Reykir pípu ogfær sér viskí og ákavíti. Segir það halda sér heilbrigðum og harðneitar að taka öll lyf sem honum eru rétt.“ Þannig lýsir kvikmyndagerðar- maðurinn Helgi Felixson söguhetj- unni í sjónvarpsmyndinni Fyrstu 100 árin eru verst sem hann er að leggja lokahönd á, Ib Árnasyni Riis, sem þekktastur er fyrir að hafa verið gagnnjósnari Breta á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni. Ib er íslenskur, ættaður frá Ísa- firði, en ólst upp í Danmörku. Eftir stríð settist hann að í Bandaríkj- unum og býr þar enn. Helgi hitti hann fyrst árið 2006 og hefur verið í reglulegu sambandi við hann síðan. „Myndin byggir á fjórum heimsókn- um til hans í Kaliforníu og í henni segir hann sína sögu,“ segir Helgi, en þess má geta að þeir Ib eru blóð- tengdir. Faðir Ibs og afi Helga voru bræðrasynir. Talar fína íslensku Helgi segir Ib hafa farið lítillega aft- ur á þessum tólf árum sem þeir hafa verið í sambandi en hann sé þó merkilega brattur miðað við aldur og fyrri störf. „Hann segir fyrstu 100 árin hafa verið verst; allt eftir það hafi bara verið gott,“ segir Helgi hlæjandi. Ib talar fína íslensku, sér- staklega í ljósi þess að hann hefur ekki búið hér á landi í meira en sjö áratugi, en samtölin í myndinni fara eigi að síður fram á ensku enda Ib liðugri á þeirri tungu. „Fókusinn í myndinni er á stríðið. Úr því hann talaði íslensku þótti Þjóðverjum upplagt að senda Ib hingað til að njósna fyrir sig. Hann var því skólaður til, drifinn í kafbát og skotið á land á Langanesi í mars- mánuði 1942. Í myndinni ræði ég meðal annars við manninn sem tók á móti honum þar, Jósep Friðriksson frá Felli. Náði því áður en hann lést. Hann gaf góða lýsingu á því hvernig Ib var á sig kominn þegar hann knúði dyra á Felli,“ segir Helgi. Við komuna til Íslands gaf Ib sig strax fram við Breta og var í fram- haldinu sendur með skipi til Bret- lands, þar sem hann var skólaður til í gagnnjósnum. Að því búnu sneri hann aftur til Íslands og dvaldist hér á landi uns stríðinu lauk. Þjóðverja virðist ekki hafa grunað neitt, alltént verðlaunuðu þeir Ib fyrir vel unnin störf í stríðslok. Ekki voru allir sannfærðir um heil- indi Ibs og löngu síðar gerðu breskir fjölmiðlar því skóna að hann hefði átt þátt í því að skipalestinni PQ 17 var grandað á Atlantshafi. Ib hafnar því alfarið og rök miðlanna voru síðar hrakin. Í myndinni skoðar Helgi líka meint tengsl Ibs við Goðafossmálið, innrásina í Normandí og fleira. „Ib var virkur í því að koma í veg fyrir skotárásir þýskra kafbáta á íslensk fiskiskip. Hann segir hlutverk sitt hafa verið að senda skilaboð, stund- um skildi hann þau og stundum ekki. Það var óþægilegt fyrir hann að vita ekki hvaða afleiðingar þær sendingar kynnu að hafa en eins og við þekkjum var mörgum mannslífum fórnað í seinni heimsstyrjöldinni.“ Fékk bágt fyrir Að sögn Helga fékk Ib bágt fyrir störf sín, bæði hjá Íslendingum og Bretum í stríðslok og svíður það enn. Þá mun launagreiðslum hafa verið ábótavant. „Skýringin á því er óljós og Ib hefur aldrei áttað sig á þessu viðmóti. Honum þótti, eins og fleir- um, Bretarnir stífir í framkomu en minnist Bandaríkjamannanna með meiri hlýju. Vatnaskil hafi orðið þeg- ar þeir tóku yfir varnir landsins,“ segir Helgi. Myndin um Ib Árnason Riis er um klukkustund að lengd. Hún verður frumsýnd í Rík- issjónvarpinu en ekki ligg- ur fyrir hvenær. Ib Árnason Riis með eiginkonu sinni, Sigrúnu Þórarinsdóttur, sem lést fyrir nokkrum árum. Ljósmynd/Helgi Felixson Persónulegir hagir Ibs Árna- sonar Riis fléttast inn í mynd- ina, en hann var giftur ís- lenskri konu, Sigrúnu Þórarinsdóttur, og eignuðust þau fjögur börn. Sigrún kem- ur við sögu í myndinni, en hún lést fyrir fáeinum árum. Eftir stríðið ætlaði Ib til Danmerkur en hætti við, þar sem honum leist ekki á ástandið. Þess í stað lá leið hans til Kanada og þaðan til Kaliforníu, þar sem hann hef- ur búið allar götur síðan. Hann starfaði lengst sem safnstjóri á skútu í San Franc- isco. Ib hefur haldið góðu sambandi við Ísland og komið hingað reglulega. Árið 1991 kom út bók um hann, Gagnnjósnari Breta á Íslandi, eftir Ásgeir Guðmundsson sagnfræðing. Kvæntist ís- lenskri konu Helgi Felixson. Fyrstu 100 árin eru verst Helgi Felixson er að leggja lokahönd á sjónvarpsmynd um Ib Árnason Riis, 103 ára gamlan Íslending, búsettan í Bandaríkjunum, sem var gagnnjósnari Breta á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.