Morgunblaðið - 12.05.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 12.05.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl. Skjót og hröð þjónusta Engar tímapantanir Góð passamynd skiptir máli Baldur Arnarson baldura@mbl.is Magnús Geir Þórðarson, útvarps- stjóri, segir RÚV hafa staðið frammi fyrir erfiðum valkostum þegar ákveðið var að ráðum lögfræð- inga félagsins að greiða Guðmundi Spartakusi Óm- arssyni 2,5 millj- ónir í málskostn- að og bætur út af fréttaflutningi RÚV vegna til- tekinna ummæla í fréttum af málum hans í upphafi árs 2016. Fram hefur komið að sam- kvæmt samkomulaginu viðurkennir RÚV ekki sekt í málinu. Fréttirnar vörðuðu meinta aðild Guðmundar að fíkniefnamáli. Spurður hvers vegna RÚV samdi við Guðmund rifjar útvarpsstjóri upp sögu málsins. „Á sínum tíma höfðu verið fluttar nokkrar fréttir á árinu 2016 af þessu máli í RÚV og reyndar öðrum miðlum. Þær byggðust að miklu leyti á umfjöllun erlendra fjöl- miðla en einnig erlendum heimildar- manni. Síðar stefnir Guðmundur RÚV og fleirum vegna þessa. Megnið af því sem fram kom í fréttum um málið byggðist á heimildum sem höfðu birst opinberlega en þegar til átti að taka kemur í ljós að heimild- armaður RÚV er ekki tilbúinn til að staðfesta ummæli sín með formleg- um hætti, sem sneru að nokkrum til- teknum atriðum í þessum fréttum.“ Sönnunarbyrðin var aukin Magnús Geir rifjar upp að á sama tíma hafi eldra mál frá árinu 2012 far- ið fyrir Mannréttindadómstól Evr- ópu sem hnykkti á sönnunarbyrði og dómaframkvæmd. Þar komu Svavar Halldórsson, fréttamaður RÚV, og Jón Ásgeir Jóhannesson athafna- maður við sögu. „Þar var hnekkt á dómafram- kvæmd og sönnunarbyrðin aukin á fjölmiðlunum. Í því tilviki var RÚV dæmt í óhag. Lögfræðingar okkar- töldu því að líkurnar á því að stofn- uninyrði dæmd fyrir þessi tilteknu atriði hefðu aukist verulega. Það var því mat lögfræðinganna að það væri heppilegra að semja í stað þess að fara með málið fyrir dóm með öllu sem því fylgir. Af þeim sökum, ekki síst í ljósi þessarar nýju dómafram- kvæmdar, væru líkur á því að RÚV yrði sakfellt fyrir að geta ekki sannað tilteknar heimildir í fréttaflutningn- um. Í því fólst þó ekki viðurkenning RÚV á því að fréttirnar væru rang- ar.“ Væri í hlutfalli við kostnaðinn „Með þessu samkomulagi var mál- ið látið niður falla og gengið frá þess- ari sátt. Lögfræðingar RÚV töldu að upphæðin sem samið var um væri ná- lægt samanlögðum málskostnaði og mögulegri sekt,“ segir Magnús Geir. Spurður hvað honum finnist um þessa ákvörðun sem útvarpsstjóri, nú þegar litið er um öxl, segir Magn- ús Geir þetta „mjög flókið mál“. „Í raun stóð RÚV frammi fyrir tveimur slæmum kostum. Það eru rök fyrir því að fara þessa leið og þá var mál- inu lokið. Það var auðvitað horft til þess að þessi heimildarmaður var ekki tilbúinn til að staðfesta þessa frásögn sína,“ segir Magnús Geir sem telur aðspurður þetta hafa verið það illskásta í stöðunni og bætir við „að betra hefði verið að gera grein fyrir forsendum samkomulagsins um leið og það var gert en slíkt hefði ver- ið í anda gagnsæis og upplýstrar um- ræðu“. Skapar ekki fordæmisgildi Spurður hvort þessi afgreiðsla skapi fordæmi, og hvort RÚV muni hugsanlega fara þessa leið síðar, kveðst Magnús Geir ekki líta svo á. „Við munum rýna og draga lær- dóm af þessu máli eins og öðrum sem við þurfum að takast á við. Frétta- stofan mun hér eftir sem hingað til leggja höfuðáherslu á að vernda heimildarmenn sína.“ RÚV valdi milli slæmra valkosta  Útvarpsstjóri segir RÚV hafa staðið frammi fyrir erfiðri ákvörðun í máli Guðmundar Spartakusar  Lögfræðingar hafi talið sáttaleið besta kostinn  Heimildarmaður hafi ekki viljað staðfesta viss atriði Magnús Geir Þórðarson Sunna Ósk Logadóttir Sigurður Bogi Sævarsson Þjóðskrá Íslands skoðar nú ástæður þess að sautján manns fluttu lög- heimili sitt í Árneshrepp, fámenn- asta sveitarfélag landsins, dagana 24. apríl til 4. maí. Kjörskrárstofn vegna komandi sveitarstjórnarkosn- inga miðast við 5. maí. „Ástæðan fyrir því að stofnunin fer að skoða málið er hvað þetta er mikið á stuttu tímabili og teknar voru til skoðunar skráningar sem komu þessar síðustu tvær vikur fyrir viðmiðunardag kjörskrár,“ segir Ástríður Jóhann- esdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Þjóðskrár Íslands og staðgengill forstjóra stofnunarinnar, við mbl.is. Oft er meira um lögheimilisflutn- inga rétt fyrir kosningar en í annan tíma. Skýringin getur þá verið að fólk hefur flutt en láðst að flytja lög- heimili sitt og vill kjósa þar sem það er búsett. Sakir þess hve margir hafa flutt sig í Árneshrepp að und- anförnu vildi Þjóðskrá þó kanna málið betur, það er í samræmi við hlutverk sitt. Lögmannsstofan Sókn hefur ritað minnisblað vegna málsins að beiðni oddvita Árneshrepps. Þar segir að lögheimilisflutningarnir beri með sér að vera „málamyndaskráningar“ vegna væntanlegra sveitarstjórnar- kosninga. Eðlilegt sé að fylgjast framvindu mála hjá Þjóðskrá og boða hreppsnefndarfund þegar stofnunin hefur fjallað um skráning- arnar. Miðað við það þarf hrepps- nefnd að fella fólk út af kjörskrá til samræmis við ákvarðanir Þjóðskrár Íslands. Næsti fundur hreppsnefnd- ar hefur verið boðaður nk. þriðju- dag. Af þeim rúmlega 40 sem höfðu lögheimili í Árneshreppi í vetur dvaldi um helmingur þar að jafnaði. Spurð hvort Þjóðskrá muni almennt óska eftir gögnum frá þessum hópi og fara fram á sönnun á fastri bú- setu samkvæmt skilgreiningu lag- anna segist Ástríður Jóhannsdóttir ekki geta svarað því nú. Nýbúunum 17 í Árneshreppi voru 4. maí sl. send bréf þar sem þeir voru beðnir um gögn sem sýni fram á að núverandi lögheimilisskráning sé rétt – það er að skráningin og sannarleg búseta séu sín hvor hliðin á sama peningnum. Á næstu dögum mun Þjóðskrá fara yfir svör og gögn og meta hvert mál fyrir sig. Nýbúar útskýri skráningu  Óvænt fjölgun í Árneshreppi til skoðunar hjá Þjóðskrá Heiðarbyggð vinsælasta nafnið Heiðarbyggð er líklegt nafn á sameinað sveitar- félag Sandgerðis og Garðs. Það fékk meirihluta greiddra atkvæða í fyrri umferð at- kvæðagreiðslu meðal íbúa. Grunnskóla- nemar höfðu einnig sett það efst í skuggakosningu í skólunum. Heiðarbyggð fékk 51,4% atkvæða í fyrri umferðinni, Suðurbyggð 23,4%. Greidd eru atkvæði að nýju á milli þessara tveggja tillagna. At- kvæðagreiðslan er hafin og stendur fram til miðnættis á fimmtudags- kvöld. Atkvæðagreiðslan er ráðgef- andi því sveitarstjórnin sem tekur til starfa eftir kosningar ber endanlega ábyrgð á nafngiftinni. Þrjú önnur heiti voru í spilunum. Útnesjabyggð sem Örnefnastofnum mælti með féll úr leik með 15% stuðning og Nesjabyggð og Ysta- byggð fengu færri atkvæði. Kjörsókn var fremur dræm því aðeins liðlega 20% þeirra sem máttu taka þátt greiddu atkvæði. Auk kosningabærra íbúa geta allir fram- haldsskólanemar og erlendir íbúar verið með. helgi@mbl.is Garður Hátíð hald- in á Garðskaga. Fjölmenni sótti Tæknidag Háskólans í Reykjavík sem var í gær. Þar gafst fólki kostur á að kynna sér eftirtekju verkefna og rannsókna sem unnið sumar. Meðal annarra verkefna sem kynnt voru var vél sem brýtur saman þvott, lítil sjávar- fallavirkjun og vélmenni í ýmsum útgáfum. er að við tækni- og verkfræðideild skólans. Var meðal annars kynntur Formula student-bíll sem nemendur HR keppa í á Silverstone í Bretlandi í Morgunblaðið/Valli Heimasmíðaður Formúlubíll kynntur í HR Ragnheiður Ríkharðsdóttir á sæti í stjórn RÚV. Hún var for- maður stjórnar 2017-2018. Hún segir útvarpsstjóra, skrifstofustjóra RÚV og lög- fræðing RÚV hafa tekið þessa ákvörðun og svo kynnt hana stjórninni. Stjórnin hafi síðan samþykkt þessa niðurstöðu. Kári Jónasson, formaður stjórnar RÚV, segist ekki hafa „komið nálægt þessu“. „Þetta var ekki mál á minni vakt. Ég veit um málið og hef ekki mynd- að mér neina skoðun á þessu máli,“ sagði Kári. Stjórn RÚV gaf samþykki FYRRVERANDI FORMAÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.