Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Í greinargerð með frumvarpi til breytinga á tollalögum sem land- búnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi í þeim tilgangi að leiðrétta „ostaklúðrið“ sem svo hefur verið nefnt er hvergi vísað til mistaka við lagasetningu. Aðeins að ráð- herra vilji verða við áliti meiri- hluta atvinnuveganefndar þingsins um að hraða innleiðingu á auknum kvótum vegna innflutnings á sér- ostum. Þess er ekki getið að sú ósk var bundin skilyrðum um að Evrópusambandið gerði það sama. Samningur sem íslensk stjórn- völd gerðu við Evrópusambandið um aukna og gagnkvæma tolla á landbúnaðarvörum í september 2015 var staðfest ári síðar með samþykkt Alþingis á þingsálykt- unartillögu. Þar var ákveðið að kvóti á sérostum yrði aukinn úr 20 tonnum á ári í 230 tonn. Það átti þó að gerast í áföngum þannig að 55 tonn bættust við árlega, í fyrsta skipti í ár, þar til hámark- inu yrði náð. Með sérostum er átt við afurðir sem sérstaklega eru verndaðir með tilliti til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sér- stöðu. Sem dæmi má nefna mjúk- mygluostinn sem kenndur er við héraðið Roquefort í Frakklandi og harða ostinn Parmesan sem á upp- runa sinn í kringum borgina Parma á Ítalíu. Lagabreyting fylgdi ekki sátt Á sama tíma og Alþingi var að fjalla um tollamálin var lögfesting búvörusamnings ríkisins og bænda til umræðu. Ostamálið snerti aug- ljóslega þá hagsmuni sem búvöru- samningurinn fjallaði um því þótt þessir ostar séu ekki framleiddir hér á landi eru frændur þeirra framleiddir undir öðrum vöru- merkjum, ekki síst í Búðardal. Það var liður í einhverri sátt í atvinnuveganefnd Alþingis við um- fjöllun um búvörusamningana að hraðað yrði innleiðingu á auknum kvótum vegna innflutnings á sér- ostum. Hún kæmi öll til fram- kvæmda á fyrsta ári gildistíma samningsins, það er að segja á þessu ári. Þetta var gert með til- mælum til ráðherra en tolla- frumvarpinu ekki breytt. Því var samhliða beint til ráðherra að að- gangsheimildum á innri markaði Evrópusambandsins fyrir mjólk- urafurðir yrði einnig hraðað eins og mögulegt væri enda byggðust slík ákvæði á gagnkvæmni. Þessi viðbót er hið raunverulega „ostaklúður“. Menn hafa varla hugsað þessa hugsun til enda. Það hefði verið meiriháttar mál að fá 28 ríki Evrópusambandsins, fram- kvæmdastjórn, ráðherraráð og Evrópuþingið til að breyta þessum samningi þannig að eftirgjöfin yrði gagnkvæm og hefði tekið einhver ár. Og fyrir færslu einhverra tonna af osti í tíma og ekki skiptir þetta veldi neinu máli. Vænt- anlega hafa stjórnarráðinu fallist hendur og ekki lagt í þá vegferð sem þurfti til að undirbúa breyt- ingu á tollalögum um sérostakvót- ann. Fleiri ostar og lægra verð Það er hins vegar ekkert sem bannar landbúnaðarráðherra að láta neytendur hér á landi njóta þess að kaupa sér fleiri osta með flottum nöfnum, við lægra verði en áður. Það eru rökin sem ráðherra notar við framlagningu frumvarps- ins nú. Þessum ostum er ekki úthlutað með útboði, eins og flestum öðrum innflutningskvótum fyrir búvörur, heldur með hlutkesti. Þeir bera heldur engan toll. Ostarnir munu því lækka í verði. Eins og í mörgum öðrum hags- munamálum landbúnaðarins eru talsmenn bænda og innflytjenda á öndverðum meiði í þessu máli. Fé- lag atvinnurekenda rak mjög á eftir því að lögunum yrði breytt til þess að stuðla að auknu vöruúrvali osta á íslenska markaðnum, verð- lækkun og aukinni samkeppni við innlendan landbúnað. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, benti hins vegar á það í pistli að íslensk stjórnvöld væru með þessu að auka tollkvótann einhliða, án þess að ESB kæmi með nokkuð á móti. Þetta væri ekki leiðrétting á mis- tökum heldur einhliða eftirgjöf á kostnað íslensks landbúnaðar. Tollfrjáls kvóti sérosta rýmk- aður einhliða  Ósk um að auka strax innflutning osta var háð því að ESB gerði það sama AFP Frakkland Ostakaupmaður var með marga osta á boðstólum á landbún- aðarsýningunni í París. Sérostar » Tollfrjáls innflutningur sér- osta eykst úr 20 tonnum í 230 tonn. » Samið var um að aukningin kæmi fram á fjórum árum. » Landbúnaðarráðherra legg- ur til að kvótinn komi allur til framkvæmda í ár. » Breytingin nær til sérosta eins og til dæmis ítalska osts- ins Parmesan og franska osts- ins Roquefort, osta sem skráð- ir eru í samræmi við reglur Evrópusambandsins um vernd afurðaheita sem vísa til upp- runa, landsvæðis eða hefð- bundinnar sérstöðu. » Kvótinn er ekki boðinn út heldur ræður hlutkesti hver fær. Tollalækkunin á því öll að skila sér í lægra verði til neyt- enda. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Í loðnuleiðangri í september í haust er fyrirhugað að meta fjölda hvala á loðnuslóð norður og vestur af Ís- landi eins og reynt hefur verið að gera þrjú síðustu haust. Jafnframt verða allt að 20 hnúfubakar merktir með gervitungla- merkjum í leið- angrinum. Gísli Víkingsson, hvalasérfræðing- ur á Hafrann- sóknastofnun, segir að megintilgangur merking- anna sé að kortleggja ferðir hnúfu- baka og jafnvel langreyða á haustin en ef vel takist til geti merktir hvalir vísað á loðnugöngur þegar kemur fram yfir áramót og frekari mæl- ingar og veiðar á loðnu hefjast. Vísbendingar um afrán hvala Gísli segir að í loðnuleiðangrinum verði ýmsum vistkerfisrannsóknum sinnt og mat á fjölda hvala sé hluti af því verkefni. Mat á fjölda hvala á loðnuslóðinni á þessum tíma gefur vísbendingu um hversu mikið hvalir éta af loðnu þar til vertíð hefst. Slík- ar upplýsingar um afrán hvala má síðan hugsanlega nota við ráðgjöf á því sem leyft verður að veiða af loðnu, en þegar er farið að taka tillit til afráns nokkurra fisktegunda, t.d. þorsks. Þetta líkan er í þróun og ekki er ljóst hvort og þá hvenær af- rán hvala verður hluti af ráðgjöf um loðnuveiðar Tvö síðustu haust voru aðstæður erfiðar vegna veðurs til að meta fjölda hvala á loðnuslóð norður og vestur af Íslandi og inn í grænlenska lögsögu. Haustið 2015 voru skilyrði betri og benti matið til að verulegur fjöldi hvala væri á svæðinu á þessum tíma. Þá var metið að um sjö þúsund hnúfubakar hefðu verið þarna og um fimm þúsund langreyðar. Gísli segir að þessum tölum verði þó að taka með miklum fyrirvara því byggt sé á mun minni gögnum en í venjulegum hvalatalningum. „Það er þó óyggj- andi að þarna var mikið af hval,“ segir Gísli. Mikil fjölgun hvala Samkvæmt síðustu stóru hvala- talningu fyrir þremur árum var talið að yfir tíu þúsund hnúfubakar hefðu verið á Mið-Norður-Atlantshafs- svæðinu, þ.e. hafsvæðinu frá Aust- ur-Grænlandi, til Íslands og Jan Ma- yen, og fjöldinn hefði náð stöðugleika eftir mikla fjölgun. Þeg- ar skipulagðar hvalatalningar hófust á svæðinu árið 1987 var metið að innan við tvö þúsund hnúfubakar hefðu verið þar. Á sama svæði var talið að væru tæplega 40 þúsund langreyðar fyrir þremur árum og þá var talið að 33.500 langreyðar hefðu verið á af- mörkuðu svæði frá lóðréttri línu í gegnum Ísland vestur til Austur- Grænlands, sem hefur verið skil- greint sem veiðisvæði Íslendinga. Langreyðum hefur fjölgað mikið síð- ustu ár, en 2007 var talið að um 27 þúsund dýr hefðu verið á svæðinu frá A-Grænlandi til Jan Mayen. Hnúfubakar hafa áður verið merktir við Ísland, en þá einkum í fjörðum og flóum fyrir norðan land. Tilgangur þeirra merkinga hefur fyrst og fremst verið að afla upplýs- inga um suðurfar hvalanna á æxl- unarstöðvar í Karíbahafi. Merking- arnar nú eru hins vegar hluti af verkefnum sem tengjast loðnurann- sóknum og því hvort líklegt sé að hvalir vísi á loðnugöngur á vertíð- inni. Á loðnumiðum allan veturinn „Það er mörgum spurningum ósvarað,“ segir Gísli. „Við vitum ekki hversu mörg dýr við náum að merkja, ekki hversu lengi merkið tollir í dýrunum og ekki heldur hvort hvalirnir halda áfram að elta loðnuna eða halda suður á bóginn. Það er alls ekki útilokað að hvalur með gervitunglamerki komi að gagni við loðnuleit og rannsóknir en við vitum það, meðal annars frá loðnusjómönnum, að talsvert er af hnúfubak á loðnumiðum allan vet- urinn.“ Ljósmynd/Tryggvi Sveinsson Rannsóknir Fyrirhugað er að merkja allt að 20 hnúfubaka í loðnuleiðangri Hafrannsóknastofnunar í haust. Vísa hvalir á loðnu- göngur við landið?  Allt að 20 hnúfubakar merktir í loðnuleiðangri í haust Gísli Víkingsson Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, tók í gær við undirskriftum 50.424 einstaklinga sem krefjast þess að Faxaflói verði lýstur griðasvæði hvala. Fulltrúar frá IFAW (Int- ernational Fund for Animal Welf- are), Hvalaskoðunarsamtökum Ís- lands og Samtökum ferðaþjónustunnar afhentu ráð- herra undirskriftirnar. Við það tilefni upplýsti ráðherra að hann hefði á fundi ríkisstjórn- arinnar í gærmorgun gert grein fyrir að hann hefði óskað eftir því við Hagfræðistofnun Háskóla Ís- lands að stofnunin mæti þjóðhags- leg áhrif hvalveiða og áhrif þeirra á aðrar atvinnugreinar. Stofnunin skilaði slíkri skýrslu árið 2010 en þá kom fram að þjóðhagslega hag- kvæmt teldist að halda hvalveiðum áfram, segir í fréttatilkynningu. Fæðuþörfin metin Þær niðurstöður og aðrar verða því endurmetnar miðað við þróun síðustu ára og er áætlað að skýrsl- unni verði skilað til ráðherra í sept- ember á þessu ári. Jafnframt hefur ráðherra óskað eftir því við Haf- rannsóknastofnun að stofnunin meti fæðuþörf hvala og vægi þess í lífríki sjávar hér við land. „Framangreind vinna mun meðal annars nýtast við ákvörðun ráð- herra um hvort gefinn verði út áframhaldandi kvóti til hvalveiða þegar núverandi kvótatímabili lýk- ur við lok þessa árs,“ segir í frétta- tilkynningu frá sjávarútvegsráðu- neytinu. Úttekt verður gerð á þjóð- hagslegum áhrifum hvalveiða  Faxaflói verði griðasvæði  Krafa 50 þúsund einstaklinga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.