Morgunblaðið - 12.05.2018, Page 33

Morgunblaðið - 12.05.2018, Page 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 TRÉSMÍÐAVÉLAR Vélar fyrir atvinnumenn og handverksfólk Yfir 40 ára frábær reynsla á Íslandi Rennibekkur Lata Verð 139.800,- Tifsög Deco-flex Verð35.520,- Lykilverslun við Laugaveg – Áratuga þekking og reynsla Opið virka daga 9-18 laugardaga 10-16 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is pónsuga 2 stærðir Verð frá 69.880,- Slípivél BTS800 Verð 38.490,- Fræsari Verð 49.980,- Hefill HMS850 Verð frá 54.870,- Súluborvél 2 stærðir Verð frá 24.770,- Tifsög SD1600V Verð 22.980,- Smabyggð vél Combi 6 Verð 227.900,- SRennibekkur DMT 460 Verð 58.190,- Iðnaðarsuga HA1000 Verð 21.520,- Bandsög 2 stærðir Verð frá 45.150,- Slípivél OSM100 Verð37.850,- Ný vefverslun brynja.is Reykjavík er borgin mín og raunar er hún borg allra landsmanna enda höfuðborg lands og þjóðar. Í sannleika sagt þykir mér óendan- lega vænt um þennan fallega höfuðstað okkar allra. Sjálf ólst ég upp í miðbæ Reykjavíkur en undanfarin 20 ár hef ég búið í Árbænum og þótt ég beri taugar til miðbæjarins þykir mér jafnframt mjög vænt um úthverfin okkar og þær náttúruperlur sem umlykja þau. Þess vegna verð ég svo hrygg þeg- ar ég heyri áætlanir núverandi meiri- hluta í borginni um þau byggingar- áform á grænum reitum eins og Elliðaárdalnum. Við eigum að standa vörð um Elliðaárdalinn og hætta við öll áform um uppbyggingu þar. Í mín- um huga er nauðsynlegt að draga til baka vilyrði fyrir nýjum byggingum í dalnum. Framsýnt fólk stendur vörð um græn svæði Við verðum jafnframt að vernda Elliðaárnar, því hvergi í heiminum rennur laxveiðiá í gegnum höfuðborg nema í höfuðborginni okkar Reykja- vík, þetta er einstakt. Rétt er að hvetja borgarbúa til að fá sér göngu- túr í dalnum í sumar, fylgjast með löxunum stökkva með fram bökkum árinnar og virða fyrir sé þá auðlind sem dalurinn er. Við eigum að halda áfram að hugsa um dalinn okkar, bæta við vel merktum hjólastígum og halda dalnum hreinum. Mikill fjöldi íbúa í Árbæ, Breiðholti og víð- ar nýtir sér dalinn dag- lega til útivistar. Það er nauðsynlegt að íbúar Reykjavíkur fái að njóta náttúrufegurðar dalsins áfram. Sjálf er ég þekktur fagurkeri og elska fal- lega náttúru og fallega hluti og því finnst mér svo mikilvægt að vernda grænu svæð- in í borginni okkar. Ég hef ferðast víða og er full aðdáunar þegar ég sé hversu framsýnir stjórnmálamenn voru sem stóðu vörð um grænu svæð- in í borgum og höfuðborgum víða er- lendis. Í því samhengi má nefna borg- ir á borð við London, New York, Kaupmannahöfn og París. Borgarbúar sitja á gulli, við skulum ekki henda því heldur reyna að gera okkar besta í þeirri viðleitni að ávaxta það með verndun. Friðlýsing Elliða- árdalsins er liður í þeirri ávöxtun, það mun skila sér margfalt til baka Verndum grænu svæðin í Reykjavík Eftir Evu Dögg M. Sigurgeirsdóttur Eva Dögg M Sigurgeirsdóttir » Það er nauðsynlegt að íbúar Reykjavík- ur fái njóta náttúrufeg- urðar dalsins áfram. Höfundur er formaður Félags sjálf- stæðismanna í Árbæ og situr í 29. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Sá tími nálgast þegar laxinn snýr til baka til árinnar sem hann klakt- ist í til að taka þátt í hrygningunni. Flestir finna sína á, en um 5% fara í aðra. Þetta skiptir máli, það hindrar skyld- leikaræktun, sem hætta er á séu fáir fiskar í ánni. Skyldleikaræktun er ógn við laxastofna. Sloppnir eldislaxar í Noregi synda sumir einnig upp í ár til hrygningar með sínum villtu ættingjum. Mjög nei- kvætt, segja yfirvöld. En eru til sér- stök eldislaxagen sem eru óheppileg, eða eru genin bara venjuleg, gagnleg laxagen? Bara brot þeirra laxa sem synda til hafs úr hverri á kemur aftur og í sum- um ám er fjöldinn ótrúlega lítill. Stærsta ógn laxastofna er því veiðin í ánni. Með vissu má því segja að vilji maður bjarga villta laxinum þá eigi maður að leggja veiðistönginni. Sumir segja hægt að veiða laxinn og sleppa honum aftur. Það er dýraníð, en úr því laxinn gefur ekki frá sér hljóð þá er það kannski í lagi? Villtur lax er tegund sem við berum ábyrgð á að vernda, ekki síst vegna þess að fiskeldi er atvinnuvegur sem verður sífellt þýðingarmeiri. Það er mikilvægt fyrir framtíðina að gæta erfðafræðilegs fjölbreytileika Atlants- hafslaxins. Þegar norskt laxeldi byrj- aði um 1970 voru menn sérstaklega uppteknir af þessu. Því var tekinn lax úr 40 norskum ám, frá Norður-Noregi til Oslófjarðar, sem og einni sænskri. Ein kynslóð laxa er um fjögur ár og því hefur laxinn nú verið kynbættur með undaneldi í 12 kynslóðir. Til að byrja með var kynbætt með áherslu á t.d. vaxtarhraða, sem mörg gen stýra. Í seinni tíð er alið meira með tilliti til sjúkdómaviðnáms og viðnáms gegn laxalús. Það eru ekki til nein „eldislaxagen“ Atlantshafslaxinn er milljóna ára gömul tegund sem fann leiðina til heimkynna við Norður-Atlantshaf þegar ísinn hvarf fyrir 10.000 árum. Vísindamenn hafa kortlagt erfðamengi laxins og birt niðurstöðuna í hinu virta vísindatímariti Nature. Þeir fundu að sjálfsögðu ekki nein „eldislaxagen“. Í norskum ám er mikil áhersla lögð á að aflífa stóran kynþroska fisk með svokölluð „eldisgen“. Þetta er lax með gen frá öðrum ám eða lax sem sloppið hefur úr kvíum, sem hefði getað skap- að aukinn líffræðilegan fjölbreytileika í ánni. Vanþekking í stjórnun ýtir þann- ig undir skyldleikaræktun og tap á fjölbreytileika. Stjórnvöld, ásamt veiðiréttarhöfum og orkufyrirtækjum, hafa frá því löngu áður en fiskeldi kom til sögunnar, rekið klakstöðvar og sleppt laxaseiðum í ár. Þetta var lengi gert án tillits til þess úr hvaða ám klaklaxinn kom eða í hvaða ár seiðum var sleppt. Hafbeit var áður stunduð í stórum stíl og milljónum seiða af alls kyns uppruna úr hinum og þess- um ám var sleppt og rötuðu svo upp í hinar ýmsu ár. Hvaða erfðafræðiþekk- ing segir að gen úr laxi úr einni á séu óheppileg í hvaða annarri á sem er? Rannsóknir á atferli, hrygningu, vexti, gæðum, lit og svo framvegis sýnir mun á villtum löxum og eldislaxi. Þessir eiginleikar eru ætíð taldir jákvæðir í villtum laxi. En það má einnig segja að þeir séu jákvæðir hjá eldislaxi, sem hef- ur sloppið og getur skilað sínum genum í laxaá. Veiðin á villtum laxi í ám er umhugs- unarverð og má líta á sem umhverfis- fjandsamlega. Það er tímabært að yfir- völd skoði stjórnun á erfðaefni laxa og laxveiðiáa. Yfirvöld ættu að spyrja stofnanir sínar um hvaða markmið þær hafa sett um stjórnun erfðafjölbreyti- leika og það ætti að gilda um öll dýr, ekki bara um lax. Viltu bjarga laxinum? – leggðu þá flugustönginni Eftir Erik Slinde og Harald Kyvi » Atlantshafslaxinn ermilljóna ára gömul tegund sem fann leiðina til heimkynna við Norð- ur-Atlantshaf þegar ís- inn hvarf fyrir 10.000 árum. Erik Slinde Höfundar eru prófessorar við Háskólana að Ási og í Bergen. Harald Kyvi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.