Morgunblaðið - 12.05.2018, Page 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018
✝ EyvindurÁrnason
Scheving fæddist í
Kópavogi, 26. des-
ember 1968. Hann
varð bráðkvaddur
á heimili sínu 27.
apríl 2018.
Móðir hans er
Hrafnhildur Rós
Smáradóttir, f. 19.
desember 1949.
Faðir hans var
Árni Eyvindsson, f. 16. febrúar
1949, d. 8. mars 2018. Uppeldis-
faðir Eyvinds er Jóhann Schev-
ing, f. 22. maí 1950. Systkini Ey-
vinds eru Hildur Scheving, f.
20. apríl 1968, Fjóla Valdís
Árnadóttir, f. 16. september
1974, Smári Scheving, f. 15. jan-
úar 1974 og Regína Scheving, f.
15. júlí 1977.
Eyvindur ólst
upp í Mosfellsbæ
fram á unglingsár
en þá flutti fjöl-
skylda hans til
Bandaríkjanna og
settist þar að. Ey-
vindur lærði tölv-
unarfræði í háskóla
og starfaði við tölv-
ur vítt og breitt í
Bandaríkjunum og
fleiri löndum. Árið
2003 kvæntist hann Ann Bur-
fete Scheving, kennara, f. 15.
september 1968, og bjuggu þau
í Philadelphia. Börn þeirra eru
Anna Charlotte, f. 5. september
2007, og Harrison Johann, f. 29.
apríl 2011.
Útför Eyvinds fer fram í New
Port Richey, Florida, BNA, 12.
maí 2018.
Eyvi!
Nafnið þitt er okkur svo kært.
Það læðist bros fram á varir okk-
ar þegar við heyrum það en um
leið herðir verkinn í hjarta okkar
og það koma tár í augun. Hvernig
má það vera að þú sért farinn?
Við köllum á þig: – Eyvi, Eyvi,
hvar ertu?
Og þú svarar: – En vitið þið það
ekki? Ég er ekki langt undan. Ég
er á ströndinni og í öldum hafsins.
Við hrópum: – En Eyvi, það er
að flæða að og straumurinn er svo
sterkur!
Og þú segir: – Ekki kvíða
neinu, hér getur ekkert unnið
mér mein.
Aftur hrópum við: – En Eyvi,
hvar ertu? Við getum ekki fundið
þig.
Og þú segir: – Ég er á fjalls-
tindi.
Við hrópum upp: – En Eyvi,
gættu þess að meiða þig ekki á
klettunum!
Og þú segir: – Hafið ekki
áhyggjur, hér býr enginn sárs-
auki.
Við hrópum á ný: – Eyvi, hvar
ertu?
Og þú svarar: – En vitið þið það
ekki, ég er svo nálægt ykkur.
Skiljið þið ekki, að ég mun alltaf
vera nálægt ykkur. Ég verð alltaf
í hjarta ykkar. Ég ætla mér aldrei
að fara þaðan. Og svo þegar við
hittumst á ný, þá mun ég taka
ykkur með mér á ströndina og inn
í öldurnar og upp á hæstu fjalls-
tindana.
Og við segjum: – Auðvitað, nú
skiljum við.
Og okkur verður rórra.
Og við segjum: – Eyvi, hlust-
aðu vandlega á okkur. Við sökn-
um þín, við söknum þín, við sökn-
um þín. Við elskum þig, við
elskum þig, við elskum þig.
Og þú hlærð og segir, bros-
andi: – Ég veit það, ég elska ykk-
ur líka.
Og við segjum við okkur sjálf: –
Já, lífið er meira en við vitum.
Guð geymi þig, elsku drengur-
inn minn, og styðji og styrki ást-
vini þína á þessum erfiðu tímum.
Þín frænka,
Marfríður (Mara).
Elsku Eyvi frændi.
Það er sárt að þurfa að skrifa
þessi orð því að fráfall þitt er svo
ótímabært og óskiljanlegt. Þó svo
að við hittumst ekki oft í gegnum
tíðina, þar sem við bjuggum alla
tíð sitt í hvoru landinu, var alltaf
jafn skemmtilegt þegar það gerð-
ist og aldrei vandræðalegt eins og
við mætti búast. Ég held að það
hafi að mestu leyti verið vegna
þess hversu opinn, hlýr og
skemmtilegur þú varst. Sérstak-
lega minnist ég góðra stunda þeg-
ar þú, Ann og Regína komuð í
heimsókn til Íslands og við ferð-
uðumst um landið í frábæru veðri
og áttum margar góðar stundir
með stórfjölskyldunni. Einnig á
ég góðar minningar frá ferð minni
og systra minna til Bandaríkj-
anna þar sem við dvöldum hjá þér
og þinni yndislegu fjölskyldu í
Philadelphiu sumarið 2010. Þess-
um góðu stundum gleymi ég ekki.
Missir þinnar nánu fjölskyldu er
mikill og vona ég að góður Guð
geti hjálpað þeim í gegnum þessa
miklu raun.
Ástarkveðjur,
Dana Björk Erlingsdóttir
Eyvindur Árnason
Scheving
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Frænka okkar,
HELGA ÁSLAUG ÞÓRARINSDÓTTIR
handavinnukennari,
sem lést mánudaginn 23. apríl, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn
15. maí klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Systkinabörnin
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞÓRÓLFS ÞORSTEINSSONAR,
Laugartúni 19a,
Svalbarðseyri.
Anna Jóhannesdóttir
Þórdís Þórólfsdóttir Þorvaldur Vestmann
Árný Sveina Þórólfsdóttir Tryggvi Jónsson
Eva Dís, Bjarki Þór og Anna Stella
Daníel Snær og Aríana Ísis
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
AÐALHEIÐAR DÓRU
MAGNÚSDÓTTUR,
Nökkvavogi 12,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans í Fossvogi fyrir
góða umönnun og velvilja í hennar garð.
Sigmar Steinar Ólafsson Sigríður Maggý Hansdóttir
Halldór Ólafsson Líneik Jónsdóttir
Ólöf Ragnheiður Ólafsdóttir Sigurður Albert Ármannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til þeirra er sýndu okkur
samúð við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Holtateigi 24,
Akureyri.
Sérstakar þakkir fyrir hlýhug til Heimahlynningar á Akureyri og
Heimahjúkrunar HSN svo og læknanna Friðbjörns R.
Sigurðssonar og Signýjar Völu Sveinsdóttur.
Stefán G. Jónsson
Jón Viðar Þórisson Stefanía Auðbjörg Halldórsd.
Jóhanna Bára Þórisdóttir Ármann Helgi Guðmundsson
Kristjana Þórisdóttir Sigurður Gunnarsson
Jón G. Stefánsson Hafdís Inga Haraldsdóttir
Helgi Heiðar Stefánsson Ásdís Ármannsdóttir
Sigurður Örn Stefánsson Sigrún Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ÞÓRUNN INGIMARSDÓTTIR
frá Laugarási,
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
mánudaginn 30. apríl.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 15. maí
klukkan 13.
William Þór Dison Kristín Guðmundsdóttir
Bjarni Brandsson Anna María Valdimarsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÓLAFAR ÞÓRÖNNU HANNESDÓTTUR
frá Neskaupstað,
til heimilis að Boðaþingi 22.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á 14E Landspítala og líknardeild
Landspítalans, Kópavogi, fyrir kærleika og einstaka umhyggju.
Hanna Sigr. Jósafatsdóttir Hannes Fr. Guðmundsson
Atli Már Jósafatsson Andrea Þormar
Karl H. Jósafatsson Hrafnhildur Steinarsdóttir
Birgir Þór Jósafatsson Jóhanna Harðardóttir
Smári Jósafatsson
Ívar T. Jósafatsson Arna Kristjánsdóttir
Friðrik Jósafatsson Freyja Friðbjarnardóttir
og fjölskyldur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ESTHER ÁRNADÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Grund,
lengst af Holtagerði 52,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
miðvikudaginn 9. maí.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 17. maí
klukkan 15.
Valdimar Guðmundsson Rebekka María Sigurðardóttir
Árdís Brekkan Einar Brekkan
Elín Rósa Guðmundsdóttir Jón Rafn Valdimarsson
Elfa Hrönn Guðmundsdóttir Eyjólfur Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNA AÐALHEIÐUR HANNESDÓTTIR
frá Núpsstað,
Árskógum 6, Reykjavík,
lést mánudaginn 7. maí. Útförin fer fram frá
Seljakirkju miðvikudaginn 16. maí kl. 13.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á að láta líknardeildina í Kópavogi njóta þess.
Snorri Þ. Tómasson Kristjana U. Valdimarsdóttir
Hannes Tómasson Hong Thanh Bui Thi
Ágúst Tómasson Elísabet Þ. Guðmundsdóttir
Hörður I. Tómasson Sigrún R. Jónsdóttir
Pálmi Tómasson Sigríður Poulsen
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir hluttekningu og hlýhug
við andlát og útför
FRIÐBJARNAR GUNNLAUGSSONAR
skólastjóra.
Sveinbjörg Friðbjarnardóttir Garðar Sigurvaldason
Gunnlaugur Friðbjarnarson
Freyja Friðbjarnardóttir Friðrik Jósafatsson
Ása Fönn Friðbjarnardóttir
og fjölskyldur
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES BRIEM,
Hlíðarhúsum 3,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 6. maí.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 25. maí klukkan 13.
Björn Briem
Anna Steinunn Hólmarsdóttir
Sigurður Þráinn Sigurðsson
Jóhannes Rúnar Björnsson Briem
Í dag kveðjum við
Dúdda afa. Við eldri
systkinin eigum
minningar um ömmu
og afa þegar þau bjuggu á Vall-
argötunni. Amma var ávallt að elda
eða baka eitthvað og kallaði svo á
afa þegar maturinn var tilbúinn og
svo lagði hann sig í sófanum eftir
matinn. Svona var þetta þá; hún
húsmóðirin og hann húsbóndinn.
Hann missti mikið þegar amma
dó alltof ung árið 1982 og líka þeg-
ar Sigga dóttir hans dó fyrir sex ár-
um.
Hann afi var skondinn maður.
Hraustur, þrjóskur og fór sparlega
með. Eitt skiptið þegar við heim-
sóttum hann bauð hann upp á app-
elsín og möndluköku. Svo ber hann
á borð og hellir úr bjórflösku. Það
✝ ÞórhallurGíslason skip-
stjóri fæddist 14.
maí 1916. Hann lést
25. apríl 2018.
Útför Þórhalls
fór fram 11. maí
2018.
var enginn bjór held-
ur appelsín, sem
hann hafði hellt á
milli flaskna og var
að nýta appelsínið.
Appelsínið var alveg
flatt og vont en við
hlógum að þessari
sparsemi hans og
næst þegar við kom-
um fengum við okkur
bara vatn.
Elsku afi, við eig-
um eftir að sakna þín en yljum okk-
ur við góðar minningar. Þú varst
fyrir löngu tilbúinn að fara yfir í
sumarlandið. Við erum viss um að
það hafa orðið miklir fagnaðar-
fundir þegar Adda amma og Sigga
frænka tóku á móti þér.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem)
Þórhallur, Fjóla
og Berglind.
Þórhallur Gíslason