Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 Erum flutt í nýja glæsilega verslun Skútuvogi 2 Verið velkomin! Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík, sími 588 8000 • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði, sími 565 0385 Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, sími 421 2720 • Gleráreyrum 2, Akureyri, sími 461 2760 Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 alla laugardaga Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands,á fimmtíu ára afmæli í dag. Hún tók við því starfi síðasta sum-ar, en áður hafði hún rekið galleríið Spark Design á Klappar- stíg og þar á undan var hún prófessor í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands. „Þetta er ótrúlega spennandi starf og við erum að vinna í því að gera safnið meira lifandi. Við erum að flytja lífið af skrifstofunni og fram í sal, og erum að skrá verk eftir Einar Þorstein Ásgeirsson arki- tekt fyrir opnum tjöldum. Svo erum við með lifandi sýningar, t.d. síð- asta sumar þar sem hönnuðirnir voru að vinna niðri í anddyrinu við að eima plöntur og unnu úr því ýmsar ilmtengdar vörur. Núna er vöruhönnuður að prjóna húfur með stafsetningarvillum í. Við erum líka með stóra sýningu á skóm frá Kronkron.“ Hönnunarsafnið er til húsa á Garðatorgi í Garðabæ. Sigríður hefur einnig ásamt manninum sínum, Halldóri Lárussyni hagfræðingi, verið að gera upp hús í Innbænum á Akureyri í sam- vinnu við Minjavernd, nánar tiltekið í Aðalstræti 4 og kallast húsið Gamla apótekið. „Við köllum þetta verkefni Place to read og húsið er allt hannað með það í huga að það sé gott að vera þar og lesa og við leigjum það út. Þar er gott bókasafn, þægilegir stólar, góð lýsing, gufubað og útisturta.“ Utan vinnu finnst Sigríði gaman að fara á hestbak, skíði og veiða. „Ég er algjör frístundahestakona og fer í reiðtúra þegar ég hef tíma, svo hef ég gaman af fluguveiði, en fer bara svona einu sinni á ári í hana.“ Sigríður ætlar að halda afmælisveislu í kvöld fyrir nánustu vini og ættingja. Börn Sigríðar og Halldórs eru Ísafold Kristín 16 ára og Markús Ívar 12 ára. Ljósmynd/Birta Ólafsdóttir Í Síerra Leóne Þar var Sigríður í fyrra á vegum Aurora velgerðasjóðs í samstarfi íslenskra hönnuða og handverksfólks frá Síerra Leóne. Stýrir lifandi safni Sigríður Sigurjónsdóttir er fimmtug í dag G ylfi Arnbjörnsson fæddist í Keflavík 12.5. 1958 og ólst þar upp. Hann var í Barnaskóla Keflavíkur og Gagnfræðaskóla Keflavíkur, stundaði nám við Samvinnuskól- anum að Bifröst 1976-78 og lauk MSc-prófi í hagfræði við Versl- unarháskólann í Kaupmannahöfn CBS 1986. Gylfi var deildarstjóri viðskipta- deildar við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki 1986-88, hagfræðingur hjá kjararannsóknarnefnd 1989-92, hagfræðingur ASÍ 1992-97, fram- kvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf. 1997-2001, framkvæmdastjóri ASÍ 2001-2008 og hefur verið forseti ASÍ frá 2008. Gylfi situr í stjórn NFS, nor- rænna samtaka heildarsamtaka launafólks og var formaður NFS 2015, situr í stjórn ETUC, Evrópu- Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ – 60 ára Fjölskyldan í gönguferð Gylfi og Arnþrúður með börnum, tengdabörnum og barnabörnum á göngu í Heiðmörk. Sækir þrótt og þor í hina óspilltu náttúru Veiðimaðurinn Gylfi skoðar tarf sem hann hefur skotið upp til fjalla. Akranes Sóley Birta Gunnarsdóttir fæddist 17. júní 2017 kl. 15.59 á Landspítalanum. Hún vó 1.624 g og var 42,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Stefanía Sunna Róbertsdóttir og Gunnar Gunnars- son. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.