Morgunblaðið - 12.05.2018, Side 46
Úrslitin í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fara fram í Lissabon í
kvöld. Tugir þjóða munu mætast í poppvænni sjóorrustu svo stuðst sé við
líkingamál keppninnar í ár. Hver mun standa að lokum hnarreistur í stafni
og hvurjir þurfa að ganga plankann?
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég lofa þér, lesandi góð-ur, að þessi pistill verðurnæstum því jafn skemmti-
legur og lýsingar kollega míns
Gísla Marteins frá Lissabon. Ég
ætla líka að reyna (en get ekki
lofað) að hafa hann í styttra lagi
svo að sem flestar ljósmyndir
komist fyrir með honum – sem
væri táknrænt því að fyrst og síð-
ast á þessi keppni, sem einatt er
kölluð „Júróvisjón“ á götum úti,
að snúast um myndríka gleði,
stuð, fjör og flipp. Það á ekkert
að masa of mikið. Góð og eftir-
Siglt um sönghöfin sjö
Eldur Eleni Foureira söng um eld fyrir Kýpur.
minnileg lög eru sosum þegin
með þökkum líka og þegar ég
segi að það eigi ekki að masa er
ég úti á túni. Því að um fáa tón-
listarviðburði er masað jafn mik-
ið. Og allir hafa á honum skoðun!
Orðin hlaðast upp, Guð minn
almáttugur, og því ætla ég að
eyða restinni af sjóræningjapúðr-
inu í að lýsa því sem helst hefur
vakið athygli mína síðustu tvö
undanúrslitakvöld. Ég hef
ábyggilega einhvern tíma haldið
langa tölu um að lagið skipti máli
fyrst og síðast, umbúðirnar engu,
en eftir að hafa horft á þessa
undankeppni hef ég algerlega
skipt um skoðun. Þau atriði sem
ég naut mest voru þau sem voru
með seinni þáttinn tiltölulega
íburðarmikinn – og ef jafnvægi
næst á milli lags og sviðsetn-
ingar, enn betra. En alls ekki
nauðsynlegt.
Búlgaría var að gera gott
mót hjá mér. Sia/Lady Gaga
syngur í evrópoppsútgáfu af
Dead Can Dance. Snilld. Alexand-
»Danir voru þá ífullkominni flat-
neskju með víkingana
sína, í takt við lands-
lagið þar, og það þýðir
ekkert að hrópa eftir
hærri jörð á bjagaðri ís-
lensku.
Logandi Úkraínskur sonur Drakúla átti góðan sprett.
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018
Danski myndlistarmaðurinn Per
Kirkeby er látinn, 79 ára að aldri.
Hann var kunnasti og áhrifamesti
myndlistarmaður Dana, og mögu-
lega Norðurlanda, undanfarna hálfa
öld, og er minnst í fjölmiðlum sem
eins merkasta myndlistarmanns
Evrópu. Í dönskum miðlum má sjá
hann kallaðan „konung danskrar
myndlistar“.
Per Kirkeby var afar fjölhæfur
listamaður þótt hann sé þekktastur
fyrir tjáningarrík málverk sem
kennd hafa verið við ný-expressjón-
ískan stíl. Það var honum eðlislægt,
sagði hann iðulega, að takast á við
landslag og náttúru sem grunn-
efnivið verka þar sem hann lauk
mastersgráðu í jarðfræði norður-
hjarans, með áherslu á Grænland
þar sem hann vann iðulega. En á
sama tíma og hann útskrifaðist sem
jarðfræðingur, árið 1964, var Kirke-
by farinn að nema og sýna myndlist
og einbeitti sér að henni upp frá því,
þótt hann skrifaði iðulega um jarð-
fræðileg áhugamál sín í tengslum við
listsköpunina.
Auk málverkanna vann Kirkeby
skútlpúra, gjörninga, innsetningar
og kvikmyndir og var afar mikil-
virkur grafíklistamaður; hann vann
fjölmörg upplagsverk með stein-
þrykki og einnig þurrnál og ætingu.
Á sýningunni Ýmissa kvikinda líki –
Íslensk grafík, sem var opnuð í
Listasafni Íslands í gær, má meðal
annars sjá hluta einnar af þremur
grafíkmyndröðum sem Kirkeby
vann hér á landi, með svokallaðri
þurrnál, og tekst þar á fínlegan en
blæbrigðaríkan hátt á við upplifanir
sínar af íslensku landslagi.
Samkvæmt fréttum danskra fjöl-
miðla féll Kirkeby úr stiga árið 2013
og hlaut heilaskaða af. Tveimur ár-
um síðar var tilkynnt opinberlega að
ferli hans sem myndlistarmanns
væri lokið eftir fimm áratuga þrot-
laust starf.
Verk Pers Kirkeby voru oft á sýn-
ingum hér á landi. Þegar sýning á
verkum hans var opnuð í Listasafn-
inu á Akureyri árið 2001, skrifaði
Halldór Björn Runólfsson listfræð-
ingur grein í Lesbók Morgunblaðs-
ins um kynni sín af listamanninum
og verkum hans. Þar segir meðal
annars að ljóst megi vera að Kirkeby
hafi „komist eins langt og nokkur
myndlistarmaður getur náð í virkt-
um og viðurkenningu, án þess að það
hafi í nokkru breytt alþýðlegu upp-
lagi hans. Segja má að framinn hafi í
engu breytt innhverfri afstöðu hans
til lífsins og tilverunnar. Hann hóf
feril sinn undir formerkjum popp-
listarinnar undir miðjan sjöunda
áratuginn og þá þegar toguðust á
tvær ólíkar leiðir í list hans. Annars
vegar voru það klassískir mynd-
byggingarstuðlar sem mæltu fyrir
um yfirvegun, skýra skiptingu flata
og hreint litaval í samræmi við form-
teikninguna. En þó svo að mjög
ákveðin formteikning gæfi til kynna
skuggamyndir persóna, bílhluta eða
hvers kyns mynstur höfðu litirnir til-
hneigingu til að yfirstíga allar teikn-
aðar hindranir og dreifast frjálst út
um allan flötinn.“ Og það var undir
áhrifum frá ólíkum listamönnum
eins og Mario Merz, Georg Baselitz,
Claude Monet og Jackson Pollock
fann Kirkeby sína leið og ríkti um
nokkurra áratuga skeið yfir nor-
rænni myndlist, með blæbrigðaríkri
og hrífandi myndsköpun. efi@mbl.is
Konungur danskrar myndlistar allur
Danski mynd-
listarmaðurinn
Per Kirkeby lát-
inn, 79 ára gamall
AFP
Áhrifamikill Danski myndlistarmaðurinn Per Kirkeby í vinustofu sinni árið
2001. Hann var einn áhrifamesti myndlistarmaður Evrópu frá seinna stríði.
Landslagsstemning Hluti af einni grafíkmyndanna sem Kirkeby gerði á Ís-
landi árið 2005, í sjö mynda upplagi, og eru sýndar í Listasafni Íslands.
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudagur 13. maí: Fullveldisleiðsögn kl. 14.
Vaðið um veðurfarssöguna með Trausta Jónssyni, veðurfræðingi
List án landamæra: Sýning Atla Más Indriðasonar stendur til 16. maí.
Heiðnar grafir í nýju ljósi
– ný sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning
Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga 10-17
ÝMISSA KVIKINDA LÍKI
ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018
ELINA BROTHERUS
LEIKREGLUR – 16.2. - 24.6.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign
7.4.2017 - 31.12.2019
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR
– ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 7.10.2018
Opið alla daga frá kl. 14-17 nema mánudaga.
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti