Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 49

Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 49
Mikið verk að baki Sýningarstjórarnir Ingibjörg Jóhannsdóttir, lengst til hægri, og við hlið hennar Pari Stave. Morgunblaðið/Eggert » Ýmissa kvikinda líki – Íslensk grafík nefnist sýning sem opnuð var í gær í Lista-safni Íslands en á henni má sjá yfir 100 grafíkverk 27 ólíkra listamanna, m.a. Megasar, Dieters Roths, Bjarkar og Richards Serra. Listamennirnir unnu verk sín í ólíka miðla grafíklistarinnar og eiga sameiginlegt að vera þekktari af annars konar listsköpun en grafík. Sýningarstjórar eru Ingibjörg Jóhannsdóttir og Pari Stave og var sýningin sett upp í Alþjóðlegu prentmiðstöðinni í New York (IPCNY) í fyrravor og bar þá titilinn Other Hats: Icelandic Printmaking og hefur nú verið aðlöguð að hinu nýja sýningarrými í Listasafni Íslands. Leifur Ýmir Eyjólfsson og Sigurður Atli Sigurðsson verða með innsetningu í formi grafíkverkstæðis á sýning- unni og munu óvæntir gestir koma í heimsókn og þrykkja með þeim grafíkverk. Sýning á grafíkverkum 27 listamanna var opnuð í gær í Listasafni Íslands Myndrænt Mæðginin hárprúðu Hrafnkell Örn Guðjónsson, sem margir kannast við úr hljóm- sveitinni Agent Fresco, og móðir hans Ragn- heiður Arnardóttir, virða hér fyrir sér verk á sýningunni.Spenntir Leifur Ýmir Eyjólfsson og Sigurður Atli Sigurðsson bjóða gestum til sín á grafíkverkstæði á sýningunni. MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2018 Fimm tveggja milljóna króna ferðastyrkir til tónlistarfólks í út- rás voru afhentir úr sjóðnum Reykjavík Loftbrú í fyrradag. Af- hendingin fór fram í Iðnó og tók rappsveitin Reykjavíkurdætur, sem hlaut einn styrkjanna, lagið við af- hendinguna. Aðrir sem hlutu styrki eru Anna Þorvaldsdóttir og hljóm- sveitirnar Hugar, AdHd og Mamm- út. Stjórn sjóðsins samþykkti í mars síðastliðnum breytingar á áherslum og umfangi sjóðsins sem fela í sér að í stað smærri mánaðarlegra út- hlutana í formi farmiða verður framvegis úthlutað einu sinni á ári úr sjóðnum, fimm verkefni valin úr umsóknum sem fá tveggja milljóna króna gjafabréf hvert sem hægt verður að nota að vild í ferðir og aukafarangur með Icelandair. Aðilar að Reykjavík Loftbrú eru Icelandair, Reykjavíkurborg, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag hljómplötuframleiðenda og Samtök tónskálda og eigenda flutnings- réttar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Reykjavíkurdætur Rappsveitin hlaut tveggja milljóna króna styrk. Hlutu ferðastyrki ICQC 2018-20 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 22. maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105, kata@mbl.is Blaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta, sumarblómin, sumar- húsgögn og grill ásamt girnilegum uppskriftum. Garðar &grill fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 25. maí SÉRBLAÐ Kátir Þeir félagar Megas og Páll Baldvin Baldvinsson létu sig ekki vanta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.