Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 52

Morgunblaðið - 12.05.2018, Síða 52
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 132. DAGUR ÁRSINS 2018 Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Hverjir voru ekki valdir? 2. HM-hópurinn - bein lýsing 3. Harmleikur í Ástralíu 4. Reið vegna falsfrétta af ástandinu  Stórsveit Reykjavíkur frumflytur nýja íslenska tónlist, sem sérstaklega var samin fyrir sveitina, á tónleikum í Silfurbergi Hörpu á morgun, sunnu- dag, kl. 20. Tónhöfundar eru Agnar Már Magnússon, Kjartan Valdemars- son, Haukur Gröndal, Sigurður Flosa- son og Eiríkur Rafn Stefánsson. Stjórnandi er Snorri Sigurðarson. Stórsveitin frum- flytur íslenskt efni  Alexander Smári Kristjáns- son Edelstein kemur fram á píanótónleikum í Hömrum í Hofi á Akureyri á morg- un, sunnudag, kl. 20. Hann lauk námi frá Tónlistarskólanum á Ak- ureyri vorið 2017 og stundar núna nám við Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Peters Máté og útskrif- ast úr Menntaskólanum á Akureyri í vor. Alexander Edelstein leikur í Hömrum  Griðastaður eftir Matthías Tryggva Haraldsson í leikstjórn höfundar verður frumsýndur í Smiðjunni í dag kl. 17. Verkið er eitt af útskriftar- verkum af sviðshöfundabraut LHÍ sem frumsýnd eru um þessar mundir. Í verkinu leikur Jörundur Ragnarsson mann sem tekst á við einmanaleika, bældar tilfinningar og fjölda- framleiðslu húsgagna, enda staddur í Ikea. Næstu sýn- ingar eru 15. maí kl. 20 og 18. maí kl. 21. Aðgangur er ókeypis en panta þarf miða á tix.is. Nýr íslenskur ein- leikur frumsýndur FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Bjart með köflum á Suður- og Vesturlandi, en stöku skúrir síðdeg- is. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast suðvestantil á landinu. Á sunnudag Austan 8-13 m/s og rigning suðaustantil á landinu, en 3-8 og víða bjart veð- ur norðan- og vestanlands. Hiti 8 til 14 stig. Á mánudag Snýst í suðvestan og vestan 5-10 með rigningu, en þurrt norðaustan- og austanlands. Kólnandi veður. Næsti nýliði íslenska kvennalands- liðsins í knattspyrnu gæti orðið hin 24 ára gamla Cloé Lacasse. Þessi mikli markahrókur, frá Sudbury í Ont- ario-fylki í Kanada, hefur fest rætur í Vestmannaeyjum og vonast til þess að fá íslenskan ríkisborgararétt á þessu ári. Lacasse fer yfir sviðið í spjalli við íþróttablað Morgunblaðs- ins í dag . »2-3 Lacasse vonast eftir ríkisborgararétti „Þrátt fyrir meiðsli lykil- mannanna Arons Einars Gunnarssonar og Gylfa Þórs Sigurðssonar ákváðu þeir Heimir Hallgrímsson og Helgi Kolviðsson að velja 23 leikmanna hóp sinn nú en ekki hafa hópinn stærri. Þar með er ljóst á hvaða leikmenn verður stólað í Rússlandi í sumar,“ segir m.a. í umfjöll- un um HM-hóp Íslands. » 1 23 menn valdir fyrir HM nú þegar „Í Vesturdeildinni hefur allt gengið út á óhjákvæmilega baráttu Houston Rockets og Golden State Warriors í úrslitum þar. Við NBA-eðjótar höfum fengið það sem við vildum vestan megin,“ segir Gunnar Valgeirsson um gang mála í úrslitakeppni NBA- körfuboltans í pistli sínum frá Los Angeles í blaðinu í dag. » 4 Fengu ósk sína upp- fyllta vestan megin Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Margir Íslendingar eru í kór og sumir jafnvel í tveimur en örugglega eru ekki margir í fimm kórum eins og Þorsteinn Þorsteinsson. „Eiginlega hafa bara þrír þessara kóra verið virkir í vetur,“ segir Þor- steinn og vísar til þess að hann æfi og syngi reglulega með Kammerkór Reykjavíkur, Kammerkór Seltjarn- arneskirkju og Valskórnum. Auk þess er hann í Kammerkórnum Opus 12 og Drengjakór Þorgeirs- bræðra í Oddfellowreglunni, en þeir hafa að mestu verið í dvala að und- anförnu. Ennfremur hefur hann sungið með hinum og þessum kórum við ýmis tækifæri. Kórstarf Þorsteins hófst í Árnes- ingakórnum í Reykjavík 1987. Barí- tónsöngvarinn Sigurður Bragason var stjórnandi og þegar hann hætti í kórnum stofnuðu þeir Þorsteinn ásamt Pétri Guðmundssyni Kamm- erkór Reykjavíkur 2002. Þorsteinn ólst upp við söng heima hjá sér og Ingi Vilhjálmsson, frændi hans, fékk hann í Árnesingakórinn á sínum tíma. Í kjölfarið fór hann í söngnám hjá Sigurði Bragasyni og fór í Nýja tónlistarskólann. „Ég var langt kominn með 7. stigið en námið var krefjandi með fullri vinnu og ég tók mér pásu sem enn stendur, þótt ég hafi farið á nokkur söngnámskeið,“ segir hann. Tónlistin gefandi Mikill áhugi á tónlist heldur Þorsteini við efnið. „Þetta er mjög gefandi starf, ég mæti þreyttur á kóræfingar og kem úthvíldur heim, eins og kórsöngvarar segja oft. Öndunin er rétt í söngnum og þessi slökunaröndun er af hinu góða. Vissulega er erfitt að vera í svona mörgum kórum, en ég reyni að koma í veg fyrir að verkefni stangist á, þótt stundum hafi ekki mátt miklu muna.“ Þorsteinn segist hafa söngárátt- una frá móður sinni, sem hafi sungið við öll möguleg tækifæri, og allt verði að tónlist í huga sér. „Inni í mér syngur vitleysingur, eins og segir í texta Sigur Rósar,“ segir bassasöngvarinn með barítónrödd- ina. „Söngurinn er ástríða og ég hef sérstaklega gaman af því að syngja sönglög.“ Hann bætir við að Bryn Terfel frá Wales sé helsta átrún- aðargoðið að ónefndum mörgum ís- lenskum söngvurum. „Draum- urinn er að fara æ meira út í að syngja einsöng, en kórstarfið verður áfram stór hluti af lífinu,“ segir Þorsteinn. Syngur í fimm kórum  Þorsteinn mæt- ir þreyttur á kór- æfingar og kemur úthvíldur heim Morgunblaðið/Árni Sæberg Söngvarinn Þorsteini þykir gaman að syngja og tekur gjarnan lagið í vinnunni, en hann er sölustjóri hjá Rými. Oddrún Sigurgeirsdóttir, móðir Þorsteins, söng mikið og byrjaði að læra á píanó 1938, níu ára gömul. Hann segir að fjárráðin hafi ekki verið mikil, en píanó hafi verið keypt og það sé í hans eigu. „Ömmu datt í hug að finna sjómann, sem væri í siglingum og seldi fisk í Bretlandi, til að kaupa píanó ytra. Í húsinu á móti við Þórsgötuna var nýfluttur einstæður faðir með mörg börn og ungmenni þar sem eldri bræðurnir á heim- ilinu voru allir orðnir sjómenn. Hún ræddi mál- ið við elstu systurina, sem hún hafði kynnst. Skömmu síðar fór einn bróðirinn í siglingu og var honum falið þetta verkefni. Píanóið var flutt heim í lest skipsins og var víst ansi skítugt, þó aðallega af sóti frá Englandi. Móðir mín stundaði síðan píanónám í nokkur ár og giftist svo unga manninum, Þorsteini Auðunssyni skipstjóra og síðar pabba mínum, sem keypti píanóið níu árum áður!“ Móðirin gaf tóninn á píanóinu TÓNLIST Í HÁVEGUM HÖFÐ HJÁ FJÖLSKYLDUNNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.