Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Page 2
Hvaðan kom hugmyndin að halda
konunlegt boð á brúðkaupsdegi
Harrys?
Við erum þrjár sem köllum okkur „The Royal
Sisters“; ég, Harpa Rut Hilmarsdóttir systir mín
og Kristín Ástríður Ásgeirsdóttir og höldum við
boðið saman. Við höfum einlægan áhuga á kon-
ungbornu fólki og ákváðum að taka þetta mjög alvar-
lega þegar Kata og Vilhjálmur giftu sig. Þá héldum við
konunglega veislu og horfðum á brúðkaupið í beinni. Við
buðum nokkrum vinkonum og buðum bara þeim sem höfðu
áhuga á kóngafólki. En auðvitað er þetta gert með húm-
orinn að vopni. Við erum búnar að bíða spenntar eftir að
Harry gengi út. Enda „desperat“ og orðinn þetta gamall og
ekki genginn út. Það kom því ekkert annað til greina en að
halda upp á brúðkaup ársins.
Hvaðan kemur kóngafólksáhuginn?
Hann hófst í æsku en Elínborg amma mín keypti alltaf Hjem-
met og Familie Journal en þar voru alltaf fréttir af dönsku kon-
ungsfjölskyldunni. Ég heillaðist af þessu. Ég saug í mig blátt blóð
í barnæsku. Ég trúði ekki að það væru til alvöru prinsessur og al-
vöru prinsar. Mér fannst það rosalegt. Svo var hin amma mín Jens-
ína mjög lík Elísabetu Bretadrottningu þannig að við systur erum
ábyggilega skyldar henni.
Hvernig verður veislan?
Við ætlumst að sjálfsögðu til að konur mæti eins og þær væru að fara í
brúðkaupið sjálft. Í boðskortinu var óskað eftir viðeigandi klæðnaði með
tilheyrandi höttum. Ef konur eiga ekki hatta er hægt að föndra; nota
spöng og festa í hana fjaðrir til dæmis.
Hvað verður boðið upp á?
Að sjálfsögðu verðum við með gúrkusamlokur, tekex með marmelaði,
te og freyðivín. Það verður auðvitað skálað fyrir brúðhjónunum. Og
svo verðum við með „lemon og lavender“ brúðkaupstertu svipaða og
Meghan valdi fyrir brúðkaupið. Ég er að safna konunglegu stelli sem
var sérstaklega hannað fyrir Elísabetu Bretadrottningu og það verður
dregið fram. Öllu verður tjaldað til fyrir prinsinn og nýju prinsess-
una.
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
LINDA HILMARSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Saug í
mig blátt
blóð
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Það er ótrúlegt að þarna sé fundin fjölskylda með meiri vandamál íeftirdragi en breska konungsfjölskyldan sjálf“ sagði álitsgjafi á SkyNews í vikunni í daglegum kvöldþætti stöðvarinnar þar sem farið
er yfir fréttamál dagsins. Vísaði hann til fjölskyldu Meghan Markel, leik-
konunnar bandarísku sem senn gengur að eiga Harry Bretaprins. Eins og
frægt er orðið hafa fjölskyldumeðlimir Markel ekki látið lítið fyrir sér fara
í aðdraganda brúðkaupsins.
Systkini hennar hafa haft sig þar helst í frammi með svívirðingar en
faðir hennar datt óvænt í sviðs-
ljósið þegar hann varð uppvís að
því að þiggja fé fyrir að leyfa ljós-
myndurum að mynda sig við að
máta föt fyrir brúðkaupið. Í kjöl-
farið fékk hann hjartaáfall, sem er
rakið til andlegs áfalls og mun ekki
mæta.
Ég get ekki annað en verið
ósammála álitsgjafa Sky sjónvarps-
stöðvarinnar. Ef einhver fjölskylda
hefði átt að vera til staðar, leysa
vandamálin, sýna virkni og að þau
kunna að taka á erfiðum málum er það sú breska í höllinni. Samstillt kon-
ungsfjölskylda hefði fyrir löngu átt að vera búin að grípa í taumana og til
dæmis leiðbeina föður Markle, hlédrægum manni sem kann lítt á fjölmiðla,
og vildi losna við papparassana með því að bjóða þeim myndatöku svo
hann gæti svo fengið að vera í friði.
Hvar hefur höllin verið meðan systkini Meghan Markle hamast í henni
og af hverju sat Thomas Markle ekki bara í góðu yfirlæti á spjalli við Vil-
hjálm verðandi tengdason og Elísabetu drottningu í 2-3 vikur fyrir brúð-
kaupið í stað þess að hanga í Mexíkó fram á síðustu stundu. Hann hefði þá
getað fengið að vera í friði fyrir því áreiti sem vitað var að myndi fylgja
þessum síðustu vikum fyrir brúðkaupið.
Konungsfjölskyldan virðist hafa myndað góð tengsl við Katrínu hertoga-
ynju en aðrar tengdadætur hennar hafa þurft að ganga grýttan veg.
Markle virðist ætla að bætast á þann lista en hún er ekki einu sinni enn
formlega komin í fjölskylduna. Bara gangan að altarinu er stórgrýtt. Það
er vonandi að ástin dugi sem vopn á ruglið því parið virðist að minnsta
kosti eiga nóg af henni.
Vanræktar tengda-
dætur hallarinnar
Pistill
Júlía Margrét
Alexandersdóttir
julia@mbl.is
’Samstillt konungs-fjölskylda hefði fyrirlöngu átt að vera búin aðgrípa í taumana
Helga Óskarsdóttir
Nei, mér finnst það ekki.
SPURNING
DAGSINS
Eigum við
að taka þátt
í Eurovisi-
on í Jerú-
salem?
Hrafnkell Þorvaldsson
Nei, ekki eins og ástandið er í dag.
Mér finnst það ekki eiga við.
Ellen Þórsdóttir
Nei. Mér finnst ekki rétt að halda
glimmerpartý í skugga þjóð-
armorða.
Ingólfur Björgvin Jónsson
Nei. Við eigum að sýna samhug með
fólkinu sem kvelst þarna og kjósa að
gera það ekki.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Linda Hilmarsdóttir, eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Hress í Hafn-
arfirði, býður tuttugu vinkonum í „royalistaboð“ í tilefni af brúðkaupi
Harrys og Meghan. „Brúðkaupsgestir“ verða uppáklæddir og horft
verður á brúðkaupið í beinni.