Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Side 4
Íslensku landsliðshetjurnar víkinga-klappa eftir sigurinn stórkostlega á Englandi á Evr- ópumótinu í Nice 2016. Fyr- irliðinn Aron Einar fremstur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tár, bros og íslenskt kraftaverk Íslendingum er afar gjarnt aðræða hina og þessa landkynn-inguna, nú þegar ferðamenn flykkjast hingað norður eftir sem aldrei fyrr. Eyjafjallajökull sá til þess að landið var á allra vörum um tíma, Björk hafði áður lengi verið verið í lykilhlutverki en síðustu misseri er landslið karla í fótbolta líklega það sem heimsbyggðin heyr- ir helst af. Og ekki að ósekju; árang- ur liðsins var ævintýralegur á Evr- ópumótinu í Frakklandi fyrir tveimur árum og í næsta mánuði tekur það þátt í lokakeppni heims- meistaramóts í fyrsta skipti. Ísland er langfámennasta þjóðin sem það afrekar. Þorgrímur Þráinsson, fyrrverandi landsliðsmaður, hefur starfað með liðinu síðasta áratug sem altmulig- mand, þekkir því betur til en aðrir á bak við tjöldin. Er auk þess þekktur rithöfundur, sem fyrir margt löngu skrifaði einmitt þá vinsælu barnabók Tár, bros og takkaskór þar sem íþróttin vinsæla kom mjög við sögu. Því var nafn Þorgríms það fyrsta sem Páli Valssyni, útgáfustjóra Bjarts, kom í hug þegar norskur út- gefandi vatt sér að honum á bóka- messunni í Frankfurt og spurði hvað væri eiginlega með landslið Íslands í fótbolta. Hvernig það næði jafn góð- um árangri og raun bæri vitni. Hann vildi endilega gefa þá sögu út á bók! Sælgæti og kaffi … „Ég fékk leyfi frá leikmönnum, þjálfurum og Guðna Bergssyni, for- manni KSÍ, og ákvað svo að slá til,“ segir Þorgrímur nú, en bókin, Ís- lenska kraftaverkið – Á bak við tjöldin, kom út á dögunum, samtímis í Noregi og hér heima. „Ég var beðinn að taka verkefnið að mér í október í fyrra. Við vorum nýbúnir að vinna Tyrkland 3:0 í und- ankeppni HM og ég hugsaði með mér að enginn þekkti betur til en ég. Ef bókin ætti að verða góð væri því örugglega best að ég tæki þetta að mér!“ Þorgrímur varpar ljósi á það sem gerist á bak við tjöldin hjá landslið- inu. Þar leynast ýmsir gullmolar. „Þorgrímur, við í landsliðinu borð- um ekki sælgæti,“ sagði Svíinn Lars Lagerbäck á fundi fyrir vináttuleik við Frakka ytra í maí 2012. Þor- grímur mætti á fundinn með marg- lita gúmmíkarla, henti öskjunni á borðið og bauð strákunum. Þetta var fyrsta ferð Þorgríms með Lars. „Ég skammaðist mín nið- ur í tær …“ segir hann í bókinni. Á sama fund mættu nokkrir leik- menn með kaffi. „Er það mikilvægt fyrir ykkur að drekka kaffi á fund- um?“ spurði Lars. „Ég er því mót- fallinn en þið ráðið hvað þið gerið.“ Þorgrímur skrifar: „Leikmenn stóðu upp og lögðu bollana frá sér. Upp frá þessu hefur enginn mætt á fundi með drykki.“ Lars var óþreytandi að benda á ýmis lítil atriði sem máli skipta að sögn Þorgríms. Svíinn sagði gjarnan: Það þarf ekki kraftaverk til að gera drauma að veruleika. Það krefst mikillar vinnu. Reyni að byggja brú „Ég reyni að útskýra fyrir fólki kemistríuna í hópnum, töfrana í kringum þetta lið; ég reyni að byggja brú milli liðsins og áhorf- enda,“ segir Þorgrímur. Bókin er persónuleg frásögn hans. „Ég kíki inn í búningsklefann, í læknaherbergið, svo ég nefni dæmi. Ég vildi hafa þetta á persónulegum nótum og fer reyndar töluvert aftur í tímann; segi til dæmis frá því þegar ég hitti fyrst hetjuna mína, Ásgeir Sigurvinsson, heima á Ólafsvík. Seinna átti ég svo eftir að spila með honum í landsliðinu.“ Hann segir bókina ekki eingöngu fyrir fótboltaáhugafólk, ekki síður þá sem hafa áhuga á andlega þætt- inum eða hinum margvíslegu mann- legu þáttum sem skipta máli. Norskur bókaútgefandi vatt sér að íslenskum starfsbróður á bókamessu í útlandinu og spurði: Hvað er eiginlega með þetta landslið ykkar? Hver er skýringin á velgengninni? Ég vil koma sögunni á bók! Nú hefur Þorgrímur Þráinsson svarað kallinu. 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018 „Ég gekk drullusvekktur upp stigann á Radina-leikvanginum í Tampere með fangið fullt af úlpum, upphitunartreyjum, vatnsbrúsum og fótboltaskóm, sem einhverjir höfðu gleymt við varamannabekkinn. Eða skilið eftir í svekkelsi, kannski með hugann við það að leggja skóna á hilluna eftir vonbrigðin,“ segir Þorgrímur í upphafi bókarinnar. Þetta var í fyrrahaust og tap- ið sem blaut tuska í andlitið. Búningsklefi Íslands var á 2. hæð og stiginn brattur. Efst í honum beið Aron Einar Gunn- arsson „og hafði staðið þar dá- góða stund, ber að ofan, eftir að hafa skipst á treyju við finnskan leikmann. Af hverju stóð hann þarna einbeittur, allt að því grimmur og lét engan bilbug á sér finna? Það kom í ljós þegar ég hafði lokið við að þramma upp síðustu þrepin, þungstígur. Aron faðmaði mig þéttings- fast og sagði ákveðinn: „Við er- um í þessu saman. Við töpum saman og við vinnum saman!“ Hann gekk síðan rösklega inn í búningsklefann, eins og hann væri algjörlega með næstu skref á hreinu. Hann hafði faðmað leikmennina, þjálfarana og starfsmennina, stappað stál- inu í alla með sinni sterku þöglu nærveru og hlýju faðmlagi af því það var leikur eftir þrjá daga á Íslandi, gegn Úkraínu,“ segir Þorgrímur og bætir við: „Það er ástæða fyrir því að Aron er fyrirliði. Hann er leiðtogi innan vallar sem utan, algjörlega til fyrirmyndar, vex við hverja raun og gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana.“ „Erum í þessu saman“ ’ Þorgrímur, við í landsliðinu borðum ekki sælgæti … Er það mikilvægt fyrir ykkur að drekka kaffi á fundum? Ég er mótfallinn því en þið ráðið hvað þið gerið. Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari í knattspyrnu INNLENT SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is Menn nenntu ekki allt fótgangandi í æfingaferðinni í Katar í nóvember 2017! Birkir Bjarnason, Haukur Björnsson læknir og Rúnar Pálmason sjúkraþjálfari. Afslöppuð stemning í aðdraganda leiksins mikilvæga í Tyrklandi í október 2017. Ríkharður Daðason og Ragnar Sigurðsson að tafli – huga að næsta leik.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.