Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018 Sigur hinnar ísraelsku NettuBarzilai í Eurovision hefurvakið misjöfn viðbrögð. Ekki aðeins vegna ólíks smekks fólks á tónlist heldur vegna ófriðar sem ríkir nú á Gazasvæðinu og tengist flutningi sendiráðs Bandaríkjanna frá Tel Aviv til Jerúsalem. En það er ekki aðeins það að Ísrael skuli hafa sigrað á sama tíma og ísra- elskum byssukúlum rignir yfir Pal- estínumenn á Gaza sem veldur titr- ingi, heldur þótti Netta sjálf blanda pólitík í keppnina með því að lýsa því yfir að keppnin að ári yrði hald- in í Jerúsalem, en bæði Ísraelar og Palestínumenn gera tilkall til borg- arinnar og ríki Evrópu hafa mörg mótmælt þeirri ákvörðun Donalds Trumps að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. Deilur blandast gleði Mikið hefur verið gert úr því að Eurovision eigi að vera ópólitísk keppni. Þar eigi ólík sjónarmið, ólíkar þjóðir og fólk af ýmsum trúarbrögðum að geta mæst, notið tónlistar (og vindvéla) og skemmt sér á jafningjagrundvelli, án þess að pólitík og alþjóðlegum deilum sé blandað of mikið inn í gleðina. Keppnin hefur þó alls ekki alltaf verið frjáls frá stjórnvöldum ein- staka landa. Skemmst er að minn- ast þess þegar fulltrúi Rússlands, Julia Samoilova, fékk ekki að koma til Kænugarðs árið 2017 þar sem yfirvöld í Úkraínu leyfðu henni ekki að koma inn í landið. Ástæðan var sögð sú að hún hefði verið með ólöglegum hætti inni á Krímskaga. Eftir að Netta Barzilai tók við verðlaunagrip úr hendi Salvadors Sobrals, sigurvegara keppninnar í fyrra, sagði hún hátt og snjallt „Next year in Jerusalem“ eða „Að ári í Jerúsalem“. Þessi orð hafa vakið mikla gleði hjá forsætisráð- herra Ísraels, Benjamin Netan- yahu, og hann var snöggur að end- uróma þau á samfélagsmiðlum. Yfirlýsingin um að keppnin verði haldin í Jerúsalem kemur ofan í yfirstandandi deilur um hver eigi tilkall til borgarinnar. Flutningi sendiráðs Bandaríkjanna frá Tel Aviv til Jerúsalem hefur undanfarið verið harðlega mómælt á Gaza- svæðinu og víðar, m.a. í Bandaríkj- unum. Ríki Evrópu hafa einnig lýst yfir óánægju með framgöngu Bandaríkjanna og sendu t.a.m. afar fá ríki fulltrúa í opnun nýja sendi- ráðsins. Hér á landi hafa rúmlega 23 þús- und manns skrifað undir áskorun til RÚV um að Ísland taki ekki þátt í keppninni í Jerúsalem að ári til að mótmæla aðgerðum Ísraela á Gaza. Á Írlandi hefur einnig verið fjallað um möguleikann á að landið dragi sig úr keppni eftir að borgar- stjórinn í Dublin og fleiri stjórn- málamenn hafa sagst vilja að Ír- land sniðgangi keppnina að ári. Athygli vekur þó að á vef Eurovisi- on-keppninnar sjálfrar er ekki búið að gefa út hvar keppnin verður haldin, aðeins segir að hún verði í Ísrael 2019 og „líklegt“ sé að hún verði í Jerúsalem, en Tel Aviv einnig nefnd sem kostur. Netta Barzilai hefur sjálf sagt að lag sitt fjalli um það að vera öðru- vísi, um það að mótmæla hlutgerv- ingu kvenna og um það að verða undir. „Þetta er valdeflandi lag fyr- ir alla þá sem hafa glímt við að við- urkenna sjálfa sig, glímt við stjórn- völd eða hafa upplifað það að einhver gerir lítið úr rétti þeirra til að vera til.“ Vill efla þá sem verða undir Netta Barzilai kom, sá og sigraði í Eurovision í Lissabon. Hún segir lag sitt eiga að vera valdefl- andi fyrir alla sem verða undir, en yfirlýsing hennar um að keppnin verði í Jerúsalem að ári þykir ekki til þess fallin að stuðla að friði. AFP Netta Barzilai hefur sagt að lag sitt, TOY, fjalli m.a. um valdeflingu kvenna, en lagasmíðarnar falla nú í skuggann af yfirlýs- ingu hennar þegar hún tók við sigurverðlaunum í Eurovision 2018 um að keppnin yrði haldin í Jerúsalem. Ísraelar vilja fá Jerúsalem viðurkennda sem sína höfuðborg og hafa beitt her- valdi gegn Palestínumönnum, drepið tugi og sært þúsundir sem mótmæltu eft- ir að Bandaríkjamenn færðu sendiráð sitt frá Tel Aviv til Jerúsalem, en Palest- ínumenn gera einnig tilkall til borgarinnar. Myndin er tekin í mótmælagöngu til stuðnings Palestínu í Chicago í Bandaríkjunum í vikunni. Faðmlag Salvadors Sobrals og Nettu Barzilai var heldur vandræðalegt enda hafði Sobral lýst miklu frati á lag hennar fyrir keppnina. Sú ísraelska tók þó glöð við verðlaunagripnum. ’ Ég er svo glöð. Takk fyrir að velja óhefðbundið. Takk fyrir að viðurkenna að við erum ólík. Takk fyrir að fagna fjölbreytileikanum. Ég elska landið mitt. Á næsta ári í Jerú- salem! Netta Barzilai, sigurvegari Eurovision 2018 ERLENT EYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is BANDARÍKIN MICHIGAN Michigan State-háskóli, þar sem kynferðisbrotamaðurinn Larry Nassar starfaði, hefur samþykkt að greiða 500 millj- ónir dollara í bætur til 332 fórnarlamba hans. Um er að ræða svokallaða „allsherjarsátt“ að sögn Michigan-háskóla. Þar eru teknar með í reikninginn kröf- ur gegn fólki sem starfaði fyrir háskólann og tengdist hneykslismálinu. Nassar er fyrrverandi læknir banda- ríska landsliðsins í fi mleikum. BANDARÍKIN WASHINGTON Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, fór í nýrnaaðgerð í vikunni. Aðgerðin er sögð hafa gengið vandræðalaust fyrir sig og mun hún ná sér að fullu eftir nokkurra daga hvíld. AFRÍKA AUSTUR-KONGÓ Alls hafa 23 látist úr ebólu í Austur-Kongó á undanförnum vikum og minnst 43 hafa sýkst af veirunni. Heilbrigð- isráðuneyti landsins hefur nú staðfest að fyrstu tilfellin í borginni Mbandaka hafi komið upp í byrjun maí. Borgin er miðstöð viðskipta og þaðan liggja vegir til höfuðborgarinnar Kinshasa. BRETLAND LONDON Meghan Markle gengur að eiga Harry Breta- prins um helgina, en hún gisti á lúxushótelinu Cli-veden House í Buckingham-skíri ásamt móður sinni, Doria Ragland, nóttina fyrir brúðkaupið. Móðir hennar hittir drottninguna í fyrsta sinn í brúðkaupinu. HAVAÍ Eldfjallið Kilauea á Havaí kastar frá sér grjóti á stærð við heimilistæki og yfi rvöld segja að þetta gæti versnað. Eldgos hófst í Kilauea fyrir um tveim vikum og hafa hrauntung- ur gossins valdið verulegu tjóni. Heimili hafa eyðilagst og margir þurft að fl ýja rýmingarsvæði.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.