Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Page 14
Þ
að er ljóst að líf leikarans, leikstjór-
ans og handritahöfundarins Ólafs
Egils Egilssonar er stútfullt af æv-
intýrum. Hann er með mörg járn í
eldinum bæði í starfi og í einkalíf-
inu; nýgiftur æskuástinni, nýkominn á fimm-
tugsaldurinn og nýbúinn að festa kaup á æsku-
heimilinu. Vinnan skiptist á milli RÚV, þar sem
hann er handritsráðgjafi, og æfinga í Borgar-
leikhúsinu. En mörg önnur verkefni fylla dag-
inn hans. Hann er nýlentur eftir frumsýningu í
Cannes þar sem mynd hans og Benedikts Erl-
ingssonar, Kona fer í stríð, fékk afar góða dóma
og vann SACD-verðlaun fyrir besta handrit á
Critic’s week, hliðarhátíð Cannes-kvikmynda-
hátíðarinnar. Íslenskir áhorfendur fá að berja
hana augum í næstu viku.
Leikari á hlaupum
Blaðamaður nær í skottið á Ólafi á milli æfinga í
leikhúsinu og framkvæmda sem standa yfir á
nýja heimilinu. Húsið keyptu þau hjón af for-
eldrum hans, Agli Ólafssyni og Tinnu Gunn-
laugsdóttur, sem lögðust í skútusiglingar eftir
farsæl ævistörf. Ólafur segir endurbætur að
einhverju marki þarfar, en einnig vilja þau setja
sitt mark á gamla æskuheimilið. Þar eru iðn-
aðarmenn að störfum og ryk í lofti og ljóst að
ekki verður flutt inn á næstunni. Á meðan býr
fjölskyldan hjá vinum og vandamönnum.
„Ég er svolítið tættur, er á hlaupum. Við vor-
um að flytja, það eru hugmyndadagar á RÚV og
svo erum við í framkvæmdum á Grettisgötunni.
Í Borgarleikhúsinu er ég að æfa einleik með
Vali Frey Einarssyni stórleikara sem heitir Allt
sem er frábært. Þetta er gleðieinleikur um
þunglyndi. Þetta er bráðfyndið verk og ljúfsárt
um leið, skrifað af Duncan Macmillan, sama
sem skrifaði Fólk, staðir, hlutir. Frábær höf-
undur með afar næmt auga fyrir mennskunni.
Þetta er líka dálítið sérstakt verk vegna þess að
áhorfendur taka beinan þátt í sýningunni, stíga
bókstaflega á svið og taka að sér hin ýmsu hlut-
verk,“ segir Ólafur en frumsýnt verður í haust.
Mín eigin málpípa
En í dag er hann spenntur fyrir Íslands-
frumsýningunni á Kona fer í stríð.
„Við Benni skrifuðum saman handritið, en
það eru akkúrat fjögur ár síðan Benni hafði
samband við mig með hugmynd að hápólitísk-
um umhverfis-aksjón-þriller. Sem gæti kannski
bjargað heiminum smá. Það var algjörlega frá-
bært að ná að vera viðstaddur frumsýninguna í
Cannes og upplifa viðtökur áhorfenda og gagn-
rýnenda en dómarnir hafa eiginlega verið fram-
ar öllum vonum og ekki spillti fyrir að vinna
SACD-verðlaunin sem veitt eru fyrir handrit.
Þau eru veitt af félagssamtökum franskra hand-
ritshöfunda og þykja mikill heiður. En sagan er
sem sagt hugmynd Benedikts og fékk hann mig
með sér í lið að þróa og skrifa út,“ segir Ólafur
sem fékk líka að leika lítið hlutverk í myndinni.
„Ég birtist aðeins. Ég leik þyrluflugmann
sem viðrar á kjarnyrtan hátt skoðanir sínar á
lausagöngu sauðfjár á Íslandi. Skoðanir sem ég
hef eiginlega fengið í arf frá ömmu minni, Her-
dísi Þorvaldsdóttur, sem var mikil baráttukona
fyrir gróðurvernd,“ segir Ólafur sem deilir téð-
um skoðunum afdráttarlaust með persónunni,
enda skrifaði hann línurnar sínar sjálfur.
„Ég nýt þeirrar yfirburðastöðu þarna að vera
bæði höfundur og leikari. Ég gat verið mín eigin
málpípa. Amma háði langa og hatramma bar-
áttu gegn lausagöngu sauðfjár. Eitt það albesta
verkefni sem ég hef komið að er þegar við gerð-
um saman, ásamt frænku minni Hörpu Fönn
Sigurjónsdóttur, heimildarmynd um þetta efni,
en amma var þá komin vel á níræðisaldur. Þá
vildi hún gera mynd um þetta baráttumál sitt,
lokaatlögu að lausagöngunni. Ég hafði enga sér-
staka skoðun á þessu fyrirfram en við gerð
myndarinnar sannfærðist ég alveg. Þetta er
smám saman að breytast, enda langtum skyn-
samlegra að setja kindur inn í girðingar en ekki
gróður. Í dag er það þó þannig á alltof mörgum
svæðum að þeir sem vilja rækta landið upp,
hvort sem það eru sumarbústaðarlönd eða
skógrækt, þurfa að víggirða sig af, vegna þess
að skepnur hafa allan rétt en gróðurinn engan.
Þetta á jafnvel við um svæði sem landgræðslan
hefur lýst algjörlega ónýt til beitar. Þetta snýst
ekki um að útrýma fjallalömbum eða göngum
og réttum, landið getur vel borið allt það fé sem
á því lifir, þetta snýst um ábyrga beitar-
stjórnun, og líka um það að landið fái tóm til að
gróa sára sinna,“ segir Ólafur og segir ömmu
sína hafa haft græna fingur.
Hann sjálfur segist vera með ljósgræna. „Ég
á land uppi á Kjalarnesi og er í smá skógrækt
en mætti vel vera duglegri.“
Ég heyrði því fleygt að þú værir að auglýsa
hey til sölu.
„Já, ég hef þurft að heyja,“ segir Ólafur og
segir það ekki mikla búbót enda offramboð á
heyi. Aðspurður segir hann heyið enn falt. „Ef
einhver er að leita að heyi má hann gjarnan hafa
samband við mig,“ segir hann og brosir.
Leikstjórinn sem hvíslar
Við vendum kvæði okkar í kross og hættum að
tala um hey og kindur og snúum okkur að ævi-
starfinu; leiklistinni. Ólafur hefur verið með
puttana í nánast öllu sem viðkemur leiklist; leik-
ið, skrifað, leikstýrt, hannað búninga og sviðs-
myndir, unnið við atvinnuleikhúsin þrjú, í sjálf-
stæðum leikhópum sem og í sjónvarpi og
kvikmyndum. Ólafur samdi m.a. handritið að
söngleiknum Elly ásamt Gísla Erni Garðarssyni
sem var sýndur fyrir fullu húsi í vetur og mun
halda áfram í haust.
Ertu svona fjölhæfur?
Að bjarga heiminum smá
Ólafur Egill Egilsson hefur elt leiklistargyðjuna alla ævi. Hann segir leiklistina vera hugsjónastarf en hann hefur nú fundið
ástríðu fyrir leikstjórn. Hann fæst einnig við handritaskrif en mynd hans og Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð,
er komin á hvíta tjaldið. Ólafur smitaðist af hugsjónum ömmu sinnar Herdísar Þorvaldsdóttur sem vildi banna
lausagöngu sauðfjár til verndar gróðri. Bæði í lífinu og listinni vill hann leggja sitt af mörkum til þess að breyta heiminum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Ólafur Egill hefur komið nálægt öllum
sviðum leikhússins. Leikstjórn á hug hans
allan sem stendur en hann nýtur þess að
örva leikara til að fá það besta fram í þeim.
Morgunblaðið/Ásdís
’ Svo stigum við Esther ástokk og buðum fólk velkomiðen þegar ég fékk orðið bar ég uppbónorðið. Svipurinn á Esther var
algjörlega óborganlegur og alveg
þess virði að hafa platað hana í
nokkra mánuði.
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018