Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Qupperneq 20
HÖNNUN Það er fátt sumarlegra en ilmandi þvottur. Nokkrir dropar af lavenderolíu í hólf mýkingarefnisins í þvottavélina færa manni
sumarið þótt ekki sé hægt að hengja þvottinn út í rigningunni.
Tími ilmolíunnar
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018
Jón Helgi
Hólmgeirs-
son (1988) er
vöruhönn-
uður,
tónlistarmaður og með
mastersgráðu í samspils-
hönnun frá háskólanum í
Malmö. Hönnun Jóns
Helga er afar fjölbreytt, en hann hefur unnið fyrir þekkt
fyrirtæki eins og IKEA, Genki Instruments, Bility og fleiri.
Verk hans hafa vakið athygli víða um heim og hlotið við-
urkenningar eins og Red Dot verðlaunin. Með hans nýjustu
verkum er stílhrein og mínímalísk hillulína sem sýnd verð-
ur í Kaupmannahöfn. Hillurnar hannaði hann fyrir hönn-
unarfyrirtækið Folk Reykjavík og kallast Urban Nomad.
Verk af öllum gerðum
Hillurnar Urban
Normad eru hugs-
aðar til að passa í
hvernig vistar-
verur sem er.
Bjarni Sigurðsson (1965) keramiker lærði í
listaakademíunni í Árósum og skapaði sér
fljótt nafn ytra og hér heima fyrir verk sín.
Vestanhafs selur ein virtasta hönnunar- og lífs-
stílsverslun Bandaríkjanna, ABC Carpet &
Home, vörur Bjarna og þá eru vörur hans til sölu hjá
þekktum söfnum víða um heim, eins og Louisiana-
safninu í Danmörku. Bjarni er þekktur fyrir ein-
staka lífræna áferð á keramik sinni, blóma-
vösum og borðbúnaði, djúpa og sérstaka
litatóna en Bjarni notar ösku úr Eyja-
fjallajökli í alla sína glerjun.
Vasa Bjarna má sjá í þekkt-
ustu tímaritum heims.
Lífræna áferðin
Marý
Ólafs-
dóttir
(1978)
vöruhönn-
uður rekur fyrirtækið
Marý en hún útskrif-
aðist úr Listaháskóla Ís-
lands 2007 og býr og
starfar í Svíþjóð. Vörur
hennar þekkja Íslend-
ingar vel, svo sem
hnífaparastandinn Kúl-
una og Dyggðateppið
en vörur hennar eru
seldar um allan heim.
Marý sækir gjarnan
innblástur í gamlar ís-
lenskar hefðir og gjarn-
an má nýta muni henn-
ar á nokkra vegu, eins
og kertastjakann Join
sem má nota sem smá-
hirslu þegar hann er
ekki í notkun undir
kerti.
Sækir í íslenskar hefðir
Kertastjakann má svo leggja niður og saman og nota sem
hólf undir skartgripi þegar hann er ekki í notkun.
Erla Sólveig Óskarsdóttir (1957) iðnhönn-
uður lærði í Danmarks Design Skole og rek-
ur í dag hönnunarstúdíóið Kimi. Erla Sól-
veig hefur alla tíð starfað sjálfstætt en einnig
verið í samvinnu við framleiðslufyrirtæki
vestanhafs og í Bandaríkjunum. Stílhrein og formfögur
húsgögn hennar hafa verið sýnd á húsgagnasýningum
um allan heim og hlotið fjölda viðurkenningu, einkum
stólar hennar Jaki, Dreki og Bessi sem allir hafa hlotið
fjöldann af þekktum hönnunarverðlaunum en Erla Sólveig hef-
ur meðal annars hlotið Red Dot-verðlaunin fyrir Dreka.
Stílhrein og formfögur
Tria eða Tres kallast þessi
borð Erlu Sólveigar sem sýnd
verða í Kaupmannahöfn.
Halldór Hjálmarsson (1927-2010) var
húsgagna- og innanhússarkitekt. Hann
lærði í Kaupmannahöfn á 6. áratugnum
og meðal lærimeistara hans voru Paul
Kjærholm og Hans J. Wegner. Halldór
er þekktur fyrir innréttingar sínar og
húsgögn, meðal annars kaffihúsið
Mokka og stóllinn hans Skatan er elsti
íslenski stóllinn sem enn er fram-
leiddur en Skötuna hannaði Halldór
árið 1959. Hann er jafnframt fyrsti
fjöldaframleiddi stóllinn á Íslandi úr
formbeygðum krossvið en eins og
nafn stólsins gefur til kynna vísar
form hans til fisktegundarinnar.
Framleiðsla á
Skötunni hófst
aftur árið 2007.
Elsti stóllinn
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
Ísafjörður
Skeiði 1
ÞRIGGJA DAGA
HVÍTASUNNUVEISLA
LÝ
KU
R Á
UG
AR
DA
G
Lo
ka
ð h
vít
as
un
nu
da
g o
g a
nn
an
í h
vít
as
un
nu
www.husgagnahollin.is
VE
FVERSLUN
A
LLTAF OP
IN