Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.05.2018, Síða 26
Meghan Markle og Harry Breta-
prins gifta sig laugardaginn 19.
maí. Spennandi verður að sjá
brúðarkjólinn!
Vilhjálmur Bretaprins og hertogayngjan af Cambridge, Kate
Middleton, giftu sig í Westminster Abbey árið 2011. Mikil
eftirvænting ríkti að sjá brúðarkjólinn en hann hannaði Sarah Bur-
ton fyrir Alexander McQueen.
Ævintýrin gerast enn ogloks hefur prinsinnfundið sína prinsessu.
Laugardaginn 19. maí gengur
Harry prins, yngri sonur
Karls Bretaprins og Díönu
Spencer, upp að altarinu
þar sem hann innsiglar ást
sína á bandarísku leikkon-
unni Meghan Markle.
Brúðarkjóll Markle hef-
ur verið vandlega falinn
og ekkert er gefið upp í
þeim efnum. Jafnvel
Harry prins hefur ekki
fengið að berja hann
augum. Miklar getgátur
hafa verið um hver hafi
fengið að hanna þennan
heimsfræga brúðarkjól
en helst er veðjað á að
það hafi komið í hlut
teymisins Ralph og
Russo. Hið sanna kemur
ekki í ljós fyrr en í at-
höfninni sjálfri. Ljóst er að
því fylgir bæði heiður og frægð að vera treyst
fyrir slíkri hönnun.
Í gegnum árin hafa prinsessur skartað
brúðarkjólum eftir frægustu hönnuði heims.
Tískan breytist með tímanum og konunglegir
brúðarkjólar eru þar engin undantekning. Gaman
er að sjá brúðarkjóla prinsessa og drottninga í gegn-
um tíðina.
Fátt er meira rætt í Bretlandi og
víðar en brúðkaup Harrys Breta-
prins og bandarísku leikkonunnar
Meghan Markle. Gríðarleg spenna
ríkir yfir brúðarkjólnum sem enginn
veit enn hvernig lítur út. Konung-
legir brúðarkjólar í gegnum
tíðina hafa alltaf vakið
mikla athygli.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Díana prinsessa giftist Karli Bretaprinsi árið 1981 við konunglega
athöfn sem enn er umtöluð, sérstaklega í ljósi brúðkaups sonar
þeirra. Díana klæddist brúðarkjól hönnuðum af David og Elizabeth
Emanuel en honum fylgdi eitt lengsta slör sem sögur fara af.
Elísabet prinsessa, síðar drottning Englands, og Filippus
prins voru gefin saman árið 1947 í Westminster Abbey í
London. Kjóllinn var hannaður af Norman Hartnell.
Grace Kelly og Rainier prins af Mónakó
voru gefin saman árið 1956. Kelly klæddist
kjól frá MGM-hönnuðinum Helen Rose, en
hún hafði hannað á hana föt fyrir kvikmynd-
irnar High Society og The Swan.
Hvernig verður kjóllinn?
TÍSKA
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.5. 2018
Elísabet Englandsdrottning er þekkt fyrir litríka hatta. Veðbankar segja
helmingslíkur á að hún muni skarta bláum hatti í brúðkaupinu.
Líkurnar á að hún verði með bleikan hatt eru einn á móti þremur.
Hattur drottningarinnar