Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 57
Fjármálastjóri
Menntaskólinn í Kópavogi leitar að kraftmiklum og fjölhæfum
einstaklingi í starf fjármálastjóra skólans. Um er að ræða fullt starf.
Æskilegt er að viðkomandi sé menntaður viðskiptafræðingur,
rekstrarfræðingur eða hafi aðra sambærilega menntun og hafi
reynslu af vinnslu í bókhalds- og launakerfi ríkisins eða sambæri-
legu kerfi.
Helstu verkefni eru vinna í bókhaldi skólans, frágangur reikninga,
launaskráning og launabókhald, innheimta skólagjalda, uppfærsla
innkaupakerfis og eignakerfis, skýrslur um fjármál, fjárhags- og
rekstraráætlun, allt í Oracle kerfi ríkisins.
Áríðandi er að umsækjandi hafi góða almenna tölvukunnáttu, sér
í lagi góða kunnáttu í Excel, skipulögð og nákvæm vinnubrögð,
færni í mannlegum samskiptum og þjónustulipurð. Einnig er góð
íslenskukunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Friðriksdóttir skóla-
meistari margret.fridriksdottir@mk.is og í síma 594 4000.
Sótt er um starfið á starfatorgi eða í netfang skólameistara og skulu
afrit prófskírteina, starfsferilskrá og kynningarbréf fylgja umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst n.k.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Launa-
kjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mk.is.
Spennandi
greiningarstarf
Sérfræðingur í ferlastjórnun og gögnum
Arion banki leitar að sérfræðingi í greiningu verkferla og gagna. Viðkomandi mun
tilheyra áhættustýringu bankans og vinna í gagnastýringarhópi hans. Hlutverk
hópsins er að bæta stjórnkerfi bankans fyrir gögn, með tilliti til krafna eftirlitsaðila.
Í hópnum eru sérfræðingar frá ýmsum sviðum bankans, s.s. áhættustýringar-, fjármála-,
viðskiptabanka- og upplýsingatæknisviði. Hópurinn skipuleggur umbætur í meðferð
gagna og hrindir þeim í framkvæmd í samstarfi við aðrar einingar bankans.
· Taka þátt í að móta gagnaumhverfi bankans
· Skilja hlutverk gagna í virðiskeðju bankans
· Greina gagnanotkun í verkferlum og þarfir
deilda fyrir gögn
· Greina flæði gagna í gegnum bankann
· Leggja til breytingar á verklagi til að bæta
meðferð gagna
· Breytingastjórnun
· Samskipti við hagsmunaaðila
· Þekking á ferlastjórnun (Business
Process Management)
· Reynsla af störfum á fjármálamarkaði
er kostur
· Þekking á breytingastjórnun
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun er kostur
Nánari upplýsingar veita Höskuldur Hlynsson gagnastjóri, sími 856 7164, og Hanna
María Pálmadóttir mannauðsstjóri, hanna.maria.palmadottir@arionbanki.is.
Umsóknarfrestur er til og með 5. september nk. Sótt er um starfið á arionbanki.is.
Arion banki er skráður á aðallista Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Jafn réttur kvenna og karla til starfa er okkur hjartans mál.
Árið 2015 hlaut bankinn Jafnlaunavottun VR og hefur síðan þá fylgt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012.
Helstu verkefni Hæfniskröfur
arionbanki.is
Ný tækifæri,
nýjar áskoranir!
www.hagvangur.is
Aðstoð á tannlæknastofu,
heilt starf og hlutastarf
Aðstoðarmanneskja óskast í fullt starf á tannlæknastofu í
Reykjavík. Einnig óskast aðstoðarmannneskja í 60% starf. Á
tannlæknastofunni, sem staðsett er miðsvæðis í Reykjavík, starfa
20 manns, tannlæknar, aðstoðarfólk og tannsmiðir. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf fljótlega. Starfið felst m.a. í að aðstoða
tannlækna við störf þeirra, símavörslu og afgreiðslu.
Umsóknir berist á atvinna@frettabladid.is merkt Aðstoð-1808
Óskum eftir starfsmanni í hellulagnir.
Mikil vinna framundan.
Umsóknir berist á
gardasmidi@gardasmidi.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 25 L AU G A R DAG U R 1 8 . ág ú s t 2 0 1 8
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-7
A
3
0
2
0
9
A
-7
8
F
4
2
0
9
A
-7
7
B
8
2
0
9
A
-7
6
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K