Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 18
Bentu á þann sem
að þér þykir bestur…
Menningarnótt er eflaust í uppáhaldi hjá mörgum. Fréttablaðið/andri Marinó
tónaflóð rásar 2 við arnarhól
kl. 20.00-23.00
Það er nauðsynlegt og sjálfsagt að
íslenskri dægurtónlist sé gert hátt
undir höfði á þessum degi enda
er Ísland hvað þekktast út á við
fyrir þennan þátt og dægurtón-
listarsenan rík, virk, skemmtileg og
fjölskrúðug. Margsannað og -reynt.
Þessi uppákoma skiptir máli og Rás
2 gerir vel í því að úthugsa dag-
skrána, upp á flæði, aldur o.s.frv.
Rapparar og „r og b“ listamenn
keyra þetta í gang, Prins Póló svo
með súrrelískar hversdagslýsingar,
Írafár með poppið og svo Tod-
mobile með allra handa lokahnút.
Almennilegt!
Hipphopp á ingólfstorgi
kl. 18.00-22.00
Eðlilega hvet ég gesti á öllum aldri,
og þá sérstaklega þá sem trúa því
einlæglega að „tónlistin hafi verið
mun betri í gamla daga“ að koma
við á gamla Hallærisplaninu (þar
sem pönkið undi sér vel) og nema
það sem ungviðið er að gera í
hipphopplistinni – tónlistinni sem
hefur nú formlega leyst rokkið af
sem tónlist unga fólksins og hvað
vinsældir á heimsvísu varðar. Þeir
sem eru enn ekki vaknaðir og búnir
að finna lyktina af kaffinu geta
snarlega bætt úr því með heimsókn
hingað.
döbbskúrinn, Vitastíg 17
kl. 12.30-23.15
Júlíus Ólafsson, tónlistarmaður,
stórmeistari og Can-áhugamaður
heldur utan um döbbskúrinn.
Garðskúr Júlíusar fær endurnýjaðan
tilgang og mun eima frá sér svell-
köldu döbbi, ættuðu frá Jamaíka,
frá hádegi og fram að miðnætti.
Plötusnúðar skiptast á að veiða
upp gamalt og nýtt döbb og smellti
sá sem þetta ritar í eina syrpu síðast
þegar skúrinn var opinn. Mér skilst
svo að hann verði ekkert endilega
bundinn við þessa slakandi stefnu í
ár og hreinlega allt geti gerst á Vita-
stígnum, enda þekkir góð tónlist
engin mæri né mörk.
Arnar Eggert Thoroddsen
tónlistarblaðamaður og doktorsnemi í tónlistarfræðum
Jóna Ottesen
stofnandi Kátt á Klambra
Ævintýraleg bókverkasmiðja í
Safnahúsinu
kl. 14.00-16.00
Eftir að hafa rennt í gegnum dag-
skrána líst mér best á Ævintýralegu
bókverkasmiðjuna í Safnahúsinu.
Ég hef sérlegan áhuga á bóka- og
bókverkagerð. Svo er námskeiðið
líka fyrir börn og fullorðna sem er
mjög gott því ég hef meiri áhuga
á að taka þátt heldur en að húka í
dyragættum með úlpur í fanginu á
meðan börn skemmta sér.
tímagöng til 1918, aðalstræti 10
kl. 12.00-15.00
Ég er forvitin um sýninguna tíma-
göng til 1918 sem hefur eitthvað að
gera með sýndarveruleikagleraugu.
Bæði er sýndarveruleiki áhugaverð-
ur og svo hef ég verið með frosta-
veturinn mikla 1918 á heilanum
eftir þetta ömurlega sumar.
Geimskipið Jörð í Hljómskála-
garðinum
kl. 13.00-17.00
Geimskipið Jörð í Hljómskálagarð-
inum hljómar eins og áhugaverð
sýning. Þrjár ungar listakonur sem
verða með hvelfingar sem hægt
er að skyggnast inn í og skoða
stjörnur, ský og geislavirkni í þoku-
hylki. Það hlýtur að vera áhugavert.
Lóa Hjálmtýsdóttir
myndlistarkona og söngkona FM Belfast
CGFC og Halldór Eldjárn:
naUHJ! a visual laboratory
í Mengi
kl. 13.00-18.00
Þeir sem ekki hafa heyrt um graf-
alvarlega flipplistahópinn CGFC
verða að skilja tvennt: Kapítalism-
inn er úr sér genginn og diskó er
æðsta listformið. Það segja þau að
minnsta kosti, þetta frábæra sviðs-
lista- og prjónalistafólk sem snýr
þarna bökum saman. Þau verða
með fimm klukkutíma gjörning
í Mengi ásamt Halldóri Eldjárn,
poppstjörnu og tölvunörd. Búast
má við analog tæknibrellum, tón-
list, leysigeislum og garni.
Menningarnótt á óðinsgötu
kl. 13.30-21.00
Spaðabani er klárlega ein besta
hljómsveit allra tíma. Það vita allir
sem hafa hundsvit á menningu
og listum. Færri vita þó að hljóm-
sveitin byrjaði sem femínísk rann-
sókn og sviðslistaverk. Þannig getur
fólk farið með sviðslistagleraugun
á pönktónleika í alræmda hljóm-
sveitagreninu við Óðinsgötu 15. Nú
eða bara engin gleraugu, bara opin
og pönkþyrst eyru, það má líka.
Mig minnir líka að Hórmenni séu
að spila.
Spunamaraþon improv Ísland
í Þjóðleikhúskjallaranum
kl. 17.00-22.00
Meðal sviðslistafólks þykir sérlega
asnalegt að hafa ekki farið á að
minnsta kosti tvö „improv“ nám-
skeið. Þessu hef ég oft fundið fyrir,
enda vil ég ekkert með slík nám-
skeið hafa. Við eigum orðið prýði-
legt landslið í þessu furðulega
sporti, spunagríni, og ef fólk hefur
látið það fram hjá sér fara er um
að gera að fara á spunamaraþon í
Þjóðleikhúskjallaranum. Að lokum
skal bent á að vilji fólk ekki fara úr
húsi getur það pantað Elísabetu
Kristínu Jökulsdóttur sviðshöfund
heim til sín í húslestur.
Matthías Tryggvi Haraldsson
nýútskrifaður af sviðshöfundabraut LHÍ og söngvari Hatara
Fréttablaðið fékk fjóra
menningarmógúla til
þess að velja sér þrjá
skemmtilega viðburði
á Menningarnótt sem
höfða til þeirra. Þau
Arnar Eggert, Jóna, Lóa
og Matthías Tryggvi
mæla með nokkrum
góðum.
Skemmtiskokk í lækjargötu
kl. 12.15-13.15
Stelpan mín fór í fyrra og það
var mjög gaman. Georg og leik-
hópurinn Lotta halda uppi stuðinu
og allir fá medalíu fyrir þátttöku.
Frábært að virkja hana í að hlaupa,
hún dregur mig þá kannski af stað
næsta sumar!
ratleikur og lengsta landslagið
á Kjarvalsstöðum
kl. 15.00-20.00
Á Kjarvalsstöðum verður
skemmti legur ratleikur þar sem
börn og foreldrar geta leyst þrautir
saman. Þar er einnig skemmtileg
smiðja þar sem börn geta tekið
þátt í að mála lengsta landslagið,
sem er málað í sameiningu á
stóran renning. Þetta eru allt
skemmtilegir viðburðir þar sem
börn og foreldrar geta leikið sér
saman og tekið þátt.
Æskusirkusinn, við útitaflið
í lækjargötu
kl. 14.00-15.00
Þá næst skellum við okkur á þessa
flottu sýningu þar sem börn sýna
listir sínar innblásnar af þeirra
uppáhaldskvikmyndum.
1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R18 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
helgin
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-0
3
B
0
2
0
9
A
-0
2
7
4
2
0
9
A
-0
1
3
8
2
0
9
9
-F
F
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K