Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 74
Ég er frekar prívat manneskja og var ekkert endilega viss um að ég ætti að birta myndir
á netinu af því hvernig ég byggi.
Það eru komin yfir sex hundruð
„likes“ og hátt í hundrað athuga-
semdir. Það er frábært að fá svona
hvatningu og jákvæða endurgjöf,“
segir Hrafnhildur Sigmarsdóttir,
deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg
og jógakennari, en hún notaði
sumarfríið til að koma sér fyrir
í fallegri íbúð í Bryggjuhverfinu.
Myndir sem hún birti á Facebook-
hópnum Skreytum hús vöktu
athygli margra.
„Þetta er klárlega besta grúppan
í bænum. Fólk er svo viljugt að
koma með ábendingar og leita
ráða, Ég sótti til dæmis hvatningu
í hópinn til þess að mála þennan
bláa lit í stofuna, Votur heitir hann
frá Slippfélaginu,“ segir Hrafn-
hildur. Liturinn hafi slakandi áhrif
enda eigi heimilið að vera vin.
„Ég er jógakennari og farar-
stjóri hjá Bændaferðum á slóðum
Vestur-Íslendinga í bæði Banda-
ríkjunum og Kanada. Ég hef
nýlokið diploma á meistarastigi í
jákvæðri sálfræði og í henni er lögð
mikil áhersla á vellíðan í umhverf-
inu. Ég hef yfirleitt mikið að gera,
í vinnunni á daginn og kenni á
kvöldin og því skiptir það mig
miklu máli að heimilið sé vin. Ég
er til dæmis ekki með sjónvarpið í
stofunni. Bláu veggirnir mynda U
og þegar ég sit við borðstofuborðið
og horfi inn í stofuna finnst mér
liturinn umvefjandi. Í honum er
grænn og hlýr tónn, eins og djúp-
sjór. Honum fylgir mikil kyrrð,“
segir Hrafnhildur. Spurð út í stílinn
á heimilinu segist hún raða saman
úr öllum áttum og haldi upp á
hluti sem hafi tilfinningalegt gildi.
„Innblástur sæki ég til móður
minnar, móðursystur og systur,
allt smekkkonur sem virða nota-
gildi gamalla hluta. Ég er til dæmis
með gamlan skáp í stofunni sem
foreldrar mínir keyptu 1976 og
gamlar bækur í hillum sem tengdar
eru sögu Vestur-Íslendinga sem
frændi minn hefur grafið upp
fyrir mig hjá fornbókasölum. Ég
er dugleg að elta útsölur og tilboð
og reyni að kaupa klassíska og
„neutral“ hluti. Sófinn minn er dýr-
asta húsgagnið enda var ég lengi að
manna mig upp í þau kaup. Vænst
þykir mér um málverk eftir Stórval
sem pabbi minn á en ég er með
í láni. En þegar ég var tíu ára fór
pabbi með mig í heimsókn til lista-
mannsins sem spilaði fyrir mig á
harmonikku. Það er gaman að eiga
verk sem tengist svona minningu.
Ég ferðast mikið og kaupi mér á
hverjum stað einhverja list eða
verk. Síðast keypti ég mér lampa á
Grikklandi. Uppáhaldsstaðurinn á
heimilinu er í sófanum, með góða
bók og umvafin bláa litnum.“
Innblástur sæki ég
til móður minnar,
móðursystur og systur, allt
smekkkonur sem virða
notagildi gamalla hluta.
Hrafnhildur Sigmarsdóttir
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is „Ég hef yfirleitt
mikið að gera,
í vinnunni á
daginn og kenni
á kvöldin og því
skiptir það mig
miklu máli að
heimilið sé vin,“
segir Hrafnhild
ur Sigmarsdóttir,
deildarstjóri
hjá Reykja
víkurborg,
fararstjóri hjá
Bændaferðum
og jógakennari.
MYNDIR/ERNIR
Uppáhaldsstað
ur Hrafnhildar
á heimilinu
er í Chester
fieldinum, með
góða bók og
umvafin bláa
litnum.
Gamla skápinn í stofunni keyptu for
eldrar Hrafnhildar árið 1976.
Málverkið eftir Stórval tengist
æskuminningu Hrafnhildar en hún
heimsótti listamanninn ásamt föður
sínum og hlustaði á harmonikuleik.
Hrafnhildur lærði jákvæða sálfræði þar sem áhersla er
lögð á vellíðan í umhverfinu. Hún hafði það að leiðarljósi
þegar hún skipulagði og raðaði hlutunum inn í íbúðina.
„Fólk heldur gjarnan að það sé saga á bak við þessi koff
ort en þau voru bara keypt á dúndrandi útsölu í Pier.“
Oddmjóa lampann keypti Hrafn
hildur á ferðalagi um Grikkland.
Bækurnar í hillunni fann frændi
hennar fyrir hana á fornbókasölu.
Vin í djúpsjávarblárri stofu
Hrafnhildur Sigmarsdóttir segir nauðsynlegt að eiga sér vin í hversdeginum. Hún hefur komið
sér vel fyrir í fallegri íbúð í Bryggjuhverfinu. Myndir sem hún birti á Skreytum hús vöktu athygli.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . áG ú S t 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
A
-0
3
B
0
2
0
9
A
-0
2
7
4
2
0
9
A
-0
1
3
8
2
0
9
9
-F
F
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K