Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 21
Og fleiri svona vers. Þarna er til dæmis eitt mjög fornt sem væri örugglega bannað að hafa fyrir börnum í dag: Og þá lífsglasið er /útrunnið fyrir mér, / þó ég skál dauðans drekki, / Drottinn, slepptu mér ekki … Þetta skildi ég náttúrlega ekki sem barn og lagði enga merkingu í versin. Þetta voru bara orð sem var farið með og ég lærði og þau sett­ ust í vitundina og fylgdu mér inn í svefninn sem farvegur öryggis, æðruleysis og friðar. Svo löngu síðar á ævinni koma þessi orð til mín og ég átta mig á því: Já, þetta er náttúrlega listin að deyja – það er að temja sér æðruleysi, kveðja dag­ inn og mæta nóttinni í öryggi. Þetta er listin að lifa og þá um leið listin að kveðja, þegar þar að kemur. Það er ekki það að gefast upp. Nei. Það er innbyggt í manneskjuna, og allt sem lifir, að berjast á móti dauð­ anum og öllu því sem hamlar lífi og hindrar heilsu og velferð. Maðurinn á að vera á bandi lífsins og þar eru bestu meðulin trúin, vonin og kær­ leikurinn. Ráðgátur þjáningarinnar eru yfirþyrmandi. Og þeim ber okkur að mæta með auðmýkt. Við eigum svo sjaldan fullnægjandi svör. En við erum kölluð til að lifa lífinu lif­ andi, mæta með æðruleysi því sem að höndum ber, hugrekki, kjarki til að takast á við það sem ógnar lífi og heill, og visku og dómgreind í öllu. Þetta getur enginn tileinkað sér sjálfur, þetta eru gjafir Guðs anda.“ Þegar kemur að dauðanum ertu þá algjörlega sannfærður um að það sé líf eftir hann? „Já, ég er það. Það er mín kristna trú og grundvallandi lífsafstaða, en hvernig það líf er veit ég ekki. Ég held að manni sé ekki ætlað að vita það, frekar en fóstur í móður­ kviði veit um heiminn fyrir utan. Ég treysti því og er fullviss um að það verður hlýr faðmur, birta og friður sem mætir manni þar þegar maður þarf að stíga það skref. Auðvitað kemur þessi stund fyrr eða síðar hjá mér og þér og öllum að dauð­ inn kveður dyra og segir: Nú er þín stund komin. Ég bara vona og bið þess að þegar sú stund kemur þá sé ég tilbúinn að kveðja og sleppa. En ég vil ekki vera að velta mér upp úr því. Nú er ég að njóta lífsins og hverrar stundar og þakka fyrir það.“ Manneskjan er ekki tölfræði Ertu bjartsýnn á að þú hafir betur í þessari baráttu? „Þegar spurt er um lífslíkur þá er einhver tölfræði og í mínu tilviki kemur hún ágætlega út, en mann­ eskjan er ekki tölfræði. Það var eins og læknir sagði einhvern tímann endur fyrir löngu: Lungnabólga endar yfirleitt með dauða og það gerir lífið líka. Ég gæti lifað góðu lífi í mörg ár með þennan sjúkdóm en ég gæti dottið niður dauður úr ein­ hverju öðru á morgun. Ég velti mér ekki upp úr þessu út af fyrir sig. Ég lít á þetta sem eitt af lífsverkefnun­ um. Ég fékk þessi veikindi í fangið og verð að vinna úr þeim, að takast á við þau, þótt ég hafi svosem ekk­ ert beðið um það. Svo kem ég inn á Landspítalann til að fara í mína meðferð. Þar er frábært fólk að vinna stórkostlegt starf við aðstæður sem eru alls ekki góðar. Þarna sé ég, hitti og sit við hliðina á fólki sem er að því er virðist í vonlausu og síendurteknu stríði. Þarna sér maður ungt fólk með fjölskyldu og miklar skuld­ bindingar sem er að takast á við mikil veikindi. Það eru gríðarlega margar kraftaverkasögur út um allt af fólki sem sigrast á slíkum aðstæðum en það eru líka miklar harmsögur. Margt lætur undan og brotnar þegar fólk þarf að ganga í gegnum svona lagað. Gamall maður eins og ég sem er hættur störfum hefur svosem ekkert annað að gera.“ Trúin er haldreipið Karl er reyndar alls ekki gamall maður þótt hann haldi öðru fram, 71 árs. Meðferðin hefur vitanlega tekið á, bæði andlega og líkam­ lega og Karl missti hárið, sem er þó farið að vaxa aftur. „Ég verð var við það þegar ég fer út og hitti fólk sem þekkir mig að því bregður við að sjá mig svona útlits. Um daginn hitti ég konu sem ég hef þekkt lengi en ekki séð í rúmt ár. Ég heilsaði henni, afskaplega ánægður að sjá hana, en hún horfði tortryggin á mig og spurði svo konu mína: Hver er þessi maður?“ Spurður um framhaldsmeðferð segir Karl: „Ég er undir eftirliti og verð áfram í hormónameðferð, það þarf að bremsa þetta af því þetta hverfur ekki. Sú meðferð gerir að verkum að ég er ekki eins orku­ mikill en nú er ég að reyna að byggja upp þrekið, sem hefur minnkað mjög. Ég er enginn íþróttamaður en ég geng. Þetta er bara spurning um að kýla sig áfram og draga sig upp á hárinu, það er að segja ef maður hefði nú eitthvert hár!“ Karl segir trúarvissuna hjálpa sér í baráttunni við veikindin. „Ég veit ekki hvernig ég færi að annars. Trúin er haldreipið. Ég les alltaf mikið Davíðssálmana, þeir hafa verið mér eins og öðrum ómetan­ leg uppspretta huggunar. Þeir rúma allar tilfinningar, bæði öryggið og friðinn en líka reiðina og óttann, tilfinningar sem maður vill ekki kannast við og reynir að bægja frá sér. Þar er þetta sagt og það er gott að lesa það, hugleiða og kunna: „Þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér.“ Þetta eru orð sem bera mann uppi. Og svo bænaversin gömlu, farvegir friðar og æðruleysis. Trúin er ekki nema að vissu leyti, kannski að litlu leyti, á rökhyggju­ plani. Hún byggir á trausti, því grundvallartrausti að vera í góðum höndum og allt fari vel þrátt fyrir allt. Hlutirnir geta farið allavega, það getur allt mögulegt gerst en á bak við þetta, yfir og allt um kring er sá máttur sem Kristur birtir okkur, sem er hjá okkur líka í dauð­ anum. Mikilvægustu lyklarnir að æðruleysi trúarinnar eru undrunin og þakklætið, það er að taka ekki lífinu, gæðum þess sem sjálfsögð­ um hlut, það er gjöf sem við megum þiggja, en ekki réttur sem við eigum kröfu til. Það er ekkert sjálfsagt, líf, heilsa, gæfa er ekkert sjálfsagt, allt sem máli skiptir í lífinu þiggjum við af öðrum, því ætti maður að temja sér þakklæti til Guðs og manna. Með þeirri afstöðu til lífsins er líka auðveldara að skila því af sér þegar sá tími kemur. Og þakklætinu fylgir bæn um fyrirgefningu, að sættast við Guð og menn. Þótt við séum að tala svona þá hef ég lítið verið að hugleiða dauðann, að ég sé í dauðastríði, svo ég endurtaki það. Ég hef það bara ágætt. Ég vil ekki sjá mig sem sjúkling, ég er í ákveðnu pró­ grammi og finnst ég vera í góðum höndum hjá læknunum sem vita alveg hvað þeir eru að gera. Og svo nýt ég svo mikillar gæfu, umvafinn ást og umhyggju allar stundir.“ „Maðurinn á vera á bandi lífsins og þar eru bestu meðulin trúin, vonin og kærleikurinn,“ segir Karl sem tekur veikindum sínum af miklu æðruleysi. FréTTablaðið/STeFán Þegar spurt er um lífs- líkur Þá er einhver töl- fræði og í mínu tilviki kemur hún ágætlega út, en manneskjan er ekki tölfræði. Þarna sér maður ungt fólk með fjölskyldu og miklar skuldbindingar sem er að takast á við mikil veikindi. h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 21l A U g A R D A g U R 1 8 . á g ú s T 2 0 1 8 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 9 A -2 6 4 0 2 0 9 A -2 5 0 4 2 0 9 A -2 3 C 8 2 0 9 A -2 2 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.