Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 24
Ég Þyri Huld Árnadóttir dansari hjá Íslenska dansflokknum skellti sér til New York eftir aðgerð á krossbandi. Hún ákvað að nýta tæki-
færið þar sem að kærasti hennar var
þar í námi. „Ég dreif mig bara með
og fór í nokkurs konar endurhæf-
ingu undir leiðsögn Gauta sjúkra-
þjálfara. Ég stundaði pilates og fleira
og reyndi að finna leiðir til að ná
mér fljótt. Ég vissi að ef ég væri að
borða fæði sem væri bólguminnk-
andi, þá mundi krossbandið jafna
sig fyrr,“ segir Þyri Huld Árnadóttir,
dansari hjá Íslenska dansflokknum,
en hún hlaut Grímuverðlaunin í ár
fyrir besta dansara ársins, aðeins
rúmu ári eftir aðgerð. „Ég varð þrí-
tug á árinu og það voru ákveðin
tímamót. Mig hefur alltaf langað
að fara í detox svo ég ákvað að gera
það þarna á þessum tímapunkti og
gefa mér það í afmælisgjöf.“
Þyri kannaði ýmsa staði sem
henni þóttu ákjósanlegir en endaði
svo með að velja Ann Wigmore Nat-
ural Health Institute í Púertó Ríkó
sem er nokkurs konar heilsuhæli. Á
heilsuhælinu fer fram mikil hreins-
un á líkamanum og lifandi fæði í
hávegum haft. „Ég var líka búin að
vera lengi með magavesen. Maginn
blés alltaf út og ég skildi ekki hvað
það var. Ég borðaði heilsusamlegan
vegan mat og taldi mig vera í fínu
standi með mataræðið. Ég hreyfði
mig einnig mikið,“ segir Þyri sem
hefur dansað í mörg ár. „Ég lenti
líka í því að fá mikið af hormóna-
bólum sem brutust út og mig klæj-
aði mikið í þær. Ég reyndi alls konar
hluti en ekkert virkaði á mig.“
Þyri segist strax hafa fundið mik-
inn mun eftir að hún fór að borða
lifandi fæði. Hún segir það hafa
verið magnað að horfa á örið eftir
aðgerðina á krossbandinu gróa. Það
fór frá því að vera rautt og upplyft
í það að verða hvítt og hnúðarnir
inni í örinu jöfnuðu sig fljótt.
„Maður þarf að vera meðvitaður
um það að þetta er rosa strangt
og maður er kannski ekki að fara
að lifa svona alla ævi, ekki svona
ýkt kannski. Engu að síður fann
ég strax mikinn mun á mér og hef
aldrei verið betri. Ég tek til dæmis
ekki nein vítamín inn í dag, því ég
passa að fá þau úr fæðunni.“
Mataræðið skipir öllu máli
„Ég þakka alveg þessu mataræði
stóran hluta af velgengni minni
í dansinum. Ég hef líka auðvitað
verið dugleg að æfa rétt en með
þessu matar æði var ég að gefa
líkamanum svo góða næringu til
þess að vinna með. Líkaminn gat
einbeitt sér að því að laga kross-
bandið því að meltingin var í lagi,
meltingin er aðalmálið og gríðar-
lega mikilvæg. Auk þess lagaðist
húðin og ég fæ ekki svona maga-
kveisur lengur.“
Þyri segir það hafa verið gott að
búa í New York um stund og mjög
þægilegt hvað mataræði hennar
varðaði. Hægt var að fá hveitigras
nánast á hverju horni og alls konar
vörur og fæði sem hentaði vel en
hveitigras er talið hafa mikinn
lækningarmátt.
„Það eru spírur alls staðar úti.
Þetta er svo gott fyrir líkamann því
spírur eru svo stútfullar af næringu,
þetta er byrjunin á lífi. Það er allt
inni í þessu. Mér finnst þetta vera
að breytast hér heima, skref fyrir
skref fetum við okkur í þessa átt
sem er frábært. Til dæmis fást alls
konar spírur hjá Ecospíru og svo er
einnig hægt að gera þetta heima hjá
sér. Ég kaupi til dæmis fræin mín
hjá Ecospíru og læt þau spíra sjálf.
Þetta tekur bara um 3-4 daga og þá
er bara til fullt af mat,“ segir Þyri.
Súrkál og rejuvelak fyrir melt-
inguna
Það var ekki meðvituð ákvörðun
hjá Þyri að fara alfarið út í hráfæði
en hún segir að hún hafi hægt og
rólega breytt mataræði sínu. Í hrá-
fæði er maturinn ekki hitaður því
þá er hætta á að næringarefnin fari
úr honum.
Gott sé að prófa sig áfram og taka
eitt skref í einu. Það sem hentar
einum henti kannski ekki öllum.
„Það hentar kannski ekki öllum
að borða einungis hráfæði en það
er gott að setja þetta inn í fæðuna,
maður finnur strax mun. Ég hins
vegar mæli með því að prófa að
borða súrkál með matnum og
athuga hvort einhver munur finn-
ist en súrkálið hjálpar líkamanum
að melta matinn,“ segir Þyri.
Í Ann Wigmore fræðunum eru
þrjár uppskriftir sem er ákveðinn
grunnur, græn súpa, súrkál og rejuv-
elak safi sem er búinn til úr spíruðu
kínóa. Það sem er svo gott við rejuv-
elak er að safinn inniheldur mikið
af ensímum. „Við fæðumst með
ensím í líkamanum en þau fara
sífellt minnkandi með mikið elduð-
um mat. Við vinnum svo lítið í því
að byggja upp ensímin sem verður
til þess að birgðirnar í líkamanum
klárast. Þá fara að koma magaverkir
og alls konar kvillar því við eigum
erfitt með að melta fæðuna. Ens-
ímin hjálpa líkamanum að brjóta
niður fæðuna.“
Á næstu dögum opnar Þyri
heimasíðu sína, www.greenthyri.
com, þar sem hún setur inn ýmsar
uppskriftir og fræðandi upplýsingar
um hráfæði.
Allir liðir
í stuði
Dansari ársins, Þyri Huld, náði skjótum bata
eftir aðgerð og þakkar hún lifandi fæði fyrir.
Hún heldur úti Instagram-síðu um mataræði
sitt og opnar heimasíðu á næstu dögum.
Þyri Huld heldur úti Instagram-síðu undir nafninu thyri_huld og opnar heimasíðu á næstu dögum. FréttablaðIð/EyÞór
Græna súpa Þyri
Þyri gefur lesendum Fréttablaðsins
uppskrift að sinni útgáfu af grænu
súpunni. „Það eru þessar þrjár upp-
skriftir en svo er hægt að leika sér
með þær. Ég er búin að þróa mína
súpu og prófa mig áfram. Hún er
alveg frábær og virkilega gómsælt,
þó ég segi sjálf frá,“ segir Þyri og
hlær.
„Ég er algjörlega háð þessu. Kan-
illinn setur algjörlega punktinn
yfir i-ið. En í súpuna þarf að nota
rejuvelak, og er það búið til úr
spíruðu kínóa. Það er lítið mál að
búa safann til. Kínóa er lagt í bleyti
yfir nótt í krukku með spíruloki
eða viskastykki. Morguninn eftir
er vatninu hellt af og krukkan lögð
á hlið í skugga. Fræin eru síðan
skoluð morgna og kvölds þar til
þau fara að spíra en það tekur um
2-3 daga. Þegar spíran er komin er
vatni aftur hellt í krukkuna og látið
liggja og síðan er kínóað sigtað frá.
Þá er rejuvelak tilbúið.“
lúka af linsubaunaspírum
lúka af kjúklingabaunaspírum
lúka af alfalfaspírum
lúka af sólblómagrösum
1 bolli rejuvelak
1 stilkur af selleríi
2 stilkar af grænkáli
½ lúka kóríander
½ avókadó
1 msk. söl
1 msk. súrkál
Allt sett í blandara og blandað þar
til kekkjalaust og mjúkt.
1 epli
½ msk. kanill
Skerið eplið í bita og setjið yfir
grænu ofurbombuna, stráið síðan
kanil yfir.
Ég hins vegar mæli með
því að prófa að borða
súrkál með matnum og
athuga hvort einhver
munur finnist en súr-
kálið hjálpar líkam-
anum að melta matinn.
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R24 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-3
E
F
0
2
0
9
A
-3
D
B
4
2
0
9
A
-3
C
7
8
2
0
9
A
-3
B
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K