Fréttablaðið - 18.08.2018, Síða 24

Fréttablaðið - 18.08.2018, Síða 24
Ég Þyri Huld Árnadóttir dansari hjá Íslenska dansflokknum skellti sér til New York eftir aðgerð á krossbandi. Hún ákvað að nýta tæki- færið þar sem að kærasti hennar var þar í námi. „Ég dreif mig bara með og fór í nokkurs konar endurhæf- ingu undir leiðsögn Gauta sjúkra- þjálfara. Ég stundaði pilates og fleira og reyndi að finna leiðir til að ná mér fljótt. Ég vissi að ef ég væri að borða fæði sem væri bólguminnk- andi, þá mundi krossbandið jafna sig fyrr,“ segir Þyri Huld Árnadóttir, dansari hjá Íslenska dansflokknum, en hún hlaut Grímuverðlaunin í ár fyrir besta dansara ársins, aðeins rúmu ári eftir aðgerð. „Ég varð þrí- tug á árinu og það voru ákveðin tímamót. Mig hefur alltaf langað að fara í detox svo ég ákvað að gera það þarna á þessum tímapunkti og gefa mér það í afmælisgjöf.“ Þyri kannaði ýmsa staði sem henni þóttu ákjósanlegir en endaði svo með að velja Ann Wigmore Nat- ural Health Institute í Púertó Ríkó sem er nokkurs konar heilsuhæli. Á heilsuhælinu fer fram mikil hreins- un á líkamanum og lifandi fæði í hávegum haft. „Ég var líka búin að vera lengi með magavesen. Maginn blés alltaf út og ég skildi ekki hvað það var. Ég borðaði heilsusamlegan vegan mat og taldi mig vera í fínu standi með mataræðið. Ég hreyfði mig einnig mikið,“ segir Þyri sem hefur dansað í mörg ár. „Ég lenti líka í því að fá mikið af hormóna- bólum sem brutust út og mig klæj- aði mikið í þær. Ég reyndi alls konar hluti en ekkert virkaði á mig.“ Þyri segist strax hafa fundið mik- inn mun eftir að hún fór að borða lifandi fæði. Hún segir það hafa verið magnað að horfa á örið eftir aðgerðina á krossbandinu gróa. Það fór frá því að vera rautt og upplyft í það að verða hvítt og hnúðarnir inni í örinu jöfnuðu sig fljótt. „Maður þarf að vera meðvitaður um það að þetta er rosa strangt og maður er kannski ekki að fara að lifa svona alla ævi, ekki svona ýkt kannski. Engu að síður fann ég strax mikinn mun á mér og hef aldrei verið betri. Ég tek til dæmis ekki nein vítamín inn í dag, því ég passa að fá þau úr fæðunni.“ Mataræðið skipir öllu máli „Ég þakka alveg þessu mataræði stóran hluta af velgengni minni í dansinum. Ég hef líka auðvitað verið dugleg að æfa rétt en með þessu matar æði var ég að gefa líkamanum svo góða næringu til þess að vinna með. Líkaminn gat einbeitt sér að því að laga kross- bandið því að meltingin var í lagi, meltingin er aðalmálið og gríðar- lega mikilvæg. Auk þess lagaðist húðin og ég fæ ekki svona maga- kveisur lengur.“ Þyri segir það hafa verið gott að búa í New York um stund og mjög þægilegt hvað mataræði hennar varðaði. Hægt var að fá hveitigras nánast á hverju horni og alls konar vörur og fæði sem hentaði vel en hveitigras er talið hafa mikinn lækningarmátt. „Það eru spírur alls staðar úti. Þetta er svo gott fyrir líkamann því spírur eru svo stútfullar af næringu, þetta er byrjunin á lífi. Það er allt inni í þessu. Mér finnst þetta vera að breytast hér heima, skref fyrir skref fetum við okkur í þessa átt sem er frábært. Til dæmis fást alls konar spírur hjá Ecospíru og svo er einnig hægt að gera þetta heima hjá sér. Ég kaupi til dæmis fræin mín hjá Ecospíru og læt þau spíra sjálf. Þetta tekur bara um 3-4 daga og þá er bara til fullt af mat,“ segir Þyri. Súrkál og rejuvelak fyrir melt- inguna Það var ekki meðvituð ákvörðun hjá Þyri að fara alfarið út í hráfæði en hún segir að hún hafi hægt og rólega breytt mataræði sínu. Í hrá- fæði er maturinn ekki hitaður því þá er hætta á að næringarefnin fari úr honum. Gott sé að prófa sig áfram og taka eitt skref í einu. Það sem hentar einum henti kannski ekki öllum. „Það hentar kannski ekki öllum að borða einungis hráfæði en það er gott að setja þetta inn í fæðuna, maður finnur strax mun. Ég hins vegar mæli með því að prófa að borða súrkál með matnum og athuga hvort einhver munur finn- ist en súrkálið hjálpar líkamanum að melta matinn,“ segir Þyri. Í Ann Wigmore fræðunum eru þrjár uppskriftir sem er ákveðinn grunnur, græn súpa, súrkál og rejuv- elak safi sem er búinn til úr spíruðu kínóa. Það sem er svo gott við rejuv- elak er að safinn inniheldur mikið af ensímum. „Við fæðumst með ensím í líkamanum en þau fara sífellt minnkandi með mikið elduð- um mat. Við vinnum svo lítið í því að byggja upp ensímin sem verður til þess að birgðirnar í líkamanum klárast. Þá fara að koma magaverkir og alls konar kvillar því við eigum erfitt með að melta fæðuna. Ens- ímin hjálpa líkamanum að brjóta niður fæðuna.“ Á næstu dögum opnar Þyri heimasíðu sína, www.greenthyri. com, þar sem hún setur inn ýmsar uppskriftir og fræðandi upplýsingar um hráfæði. Allir liðir í stuði Dansari ársins, Þyri Huld, náði skjótum bata eftir aðgerð og þakkar hún lifandi fæði fyrir. Hún heldur úti Instagram-síðu um mataræði sitt og opnar heimasíðu á næstu dögum. Þyri Huld heldur úti Instagram-síðu undir nafninu thyri_huld og opnar heimasíðu á næstu dögum. FréttablaðIð/EyÞór Græna súpa Þyri Þyri gefur lesendum Fréttablaðsins uppskrift að sinni útgáfu af grænu súpunni. „Það eru þessar þrjár upp- skriftir en svo er hægt að leika sér með þær. Ég er búin að þróa mína súpu og prófa mig áfram. Hún er alveg frábær og virkilega gómsælt, þó ég segi sjálf frá,“ segir Þyri og hlær. „Ég er algjörlega háð þessu. Kan- illinn setur algjörlega punktinn yfir i-ið. En í súpuna þarf að nota rejuvelak, og er það búið til úr spíruðu kínóa. Það er lítið mál að búa safann til. Kínóa er lagt í bleyti yfir nótt í krukku með spíruloki eða viskastykki. Morguninn eftir er vatninu hellt af og krukkan lögð á hlið í skugga. Fræin eru síðan skoluð morgna og kvölds þar til þau fara að spíra en það tekur um 2-3 daga. Þegar spíran er komin er vatni aftur hellt í krukkuna og látið liggja og síðan er kínóað sigtað frá. Þá er rejuvelak tilbúið.“ lúka af linsubaunaspírum lúka af kjúklingabaunaspírum lúka af alfalfaspírum lúka af sólblómagrösum 1 bolli rejuvelak 1 stilkur af selleríi 2 stilkar af grænkáli ½ lúka kóríander ½ avókadó 1 msk. söl 1 msk. súrkál Allt sett í blandara og blandað þar til kekkjalaust og mjúkt. 1 epli ½ msk. kanill Skerið eplið í bita og setjið yfir grænu ofurbombuna, stráið síðan kanil yfir. Ég hins vegar mæli með því að prófa að borða súrkál með matnum og athuga hvort einhver munur finnist en súr- kálið hjálpar líkam- anum að melta matinn. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@frettabladid.is 1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R24 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -3 E F 0 2 0 9 A -3 D B 4 2 0 9 A -3 C 7 8 2 0 9 A -3 B 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.