Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 16
Studio Stafn
Hátúni 6B
Opið um helgina kl. 12 -17
Sími 552 4700
Studiostafn.is/listaverkasala
Sölusýning
á listaverkum
Fjölbreytt úrval
Viltu eignast listaverk
Stjarnan - Breiðablik 1-2
0-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (19.),
0-2 Guðrún Arnardóttir (36.), 1-2 Telma
Hjaltalín Þrastardóttir (87.).
Nýjast
Mjólkurbikar kvk, úrslitaleikur
Þór/KA - FH 9-1
1-0 Andrea Mist Pálmadóttir (18.), 2-0 Andr-
ea Mist (39.), 3-0 Lára Einarsdóttir (48.),
4-0 Sandra StephanyMayor Gutierrez (58.),
5-0 Sandra María Jessen (60.), 6-0 Margrét
Árnadóttir (61.), 7-0 Sandra Mayor (65.), 8-0
Margrét (71.), 9-0 Sandra Mayor (87.), 9-1
Helena Ósk Hálfdánardóttir (89.).
Valur - ÍBV 0-1
0-1 Cloé Lacasse (51.)
Efri
Þór/KA 35
Breiðablik 34
Valur 26
Stjarnan 25
ÍBV 18
Neðri
Selfoss 16
HK/Víkingur 13
KR 12
Grindavík 10
FH 6
Pepsi-deild kvenna
Þetta var fyllilega
verðskuldað eftir að
við leiddum allan leikinn.
Heimir Ríkharðsson, þjálfari liðsins
Handbolti Íslenska handbolta-
landsliðið skipað drengjum undir
átján ára aldri leikur til úrslita á Evr-
ópumótinu í Króatíu á sunnudag-
inn eftir að hafa unnið heimamenn
30-26 í undanúrslitunum í gær.
Mótherjar íslenska liðsins í leikn-
um verða Svíar sem Ísland mætti í
riðlakeppninni Þá vann Ísland fimm
marka sigur, 29-24.
Íslenska liðið átti sigurinn svo
sannarlega skilinn í gær eftir að hafa
verið með frumkvæðið allan leikinn.
Eftir 5-1 rispu Íslands í fyrri hálfleik
voru Króatar alltaf að eltast við for-
skot Íslendinga og á lokasprettinum
náðu þeir að standast öll áhlaup
heimamanna.
Voru íslensku strákarnir öflugir
á báðum endum vallarins og var
Heimir Ríkharðsson, þjálfari liðsins
fyrst og fremst stoltur þegar Frétta-
blaðið sló á þráðinn til hans.
„Tilfinningin er frábær og ég er
ofboðslega stoltur. Þetta verður
ekkert mikið sætara. Strákarnir eru
búnir að vera stórkostlegir hérna úti.
Þetta var fyllilega verðskuldað eftir
að við leiddum stærstan hluta leiks-
ins,“ sagði Heimir og bætti við:
„Ég hafði smá áhyggjur af því
hvernig hugarfarið væri á leiðinni
inn í þennan leik en þeir leystu það
með glæsibrag. Það er létt yfir hópn-
um og við höfum gaman af þessu.“
Heimir sagði erfitt að taka eitthvað
eitt út sem hefði skilað sigrinum.
„Við erum klókir í sókninni, gefum
okkur nægan tíma þar og varnarleik-
urinn var frábær í kvöld rétt eins og í
öllu mótinu. Við erum með frábæra
varnarmenn í þessu liði.“
Hann átti ekki von á því að menn
myndu gleyma sér í gleðinni þó að
komið væri í úrslitaleikinn, þeir ættu
enn einn leik eftir.
„Við fögnum þessu í kvöld en við
þurfum svo strax að fara að undir-
búa næsta leik. Við unnum Svíana
í riðlinum en þeir tóku danska liðið
nokkuð létt í dag og voru helvíti
flottir þar. Við vitum að það verður
erfiður leikur en við getum og ætlum
okkur að vinna leikinn,“ sagði Úlfar
og hélt áfram:
„Við leggjumst yfir þetta, skoðum
leikina betur og reynum að koma
með útfærslur á því hvernig við
tæklum þetta á sunnudaginn.“
Þeir eiga tækifæri á því að leika
eftir afrek U18 árs liðsins árið 2003
sem vann gull á EM í Slóvakíu. Í gær
voru fimmtán ár upp á dag frá því að
Ísland vann gullið og segir Heimir að
þeir séu harðákveðnir í að bæta við
titli á morgun. – kpt
Varnarleikurinn frábær
eins og í öllu mótinu
Handbolti Ágúst Jóhannsson tók í
gær við starfi sem þjálfari kvenna-
landsliðs Færeyja í handbolta. Mun
hann sinna því starfi ásamt því að
stýra liði Vals í Olís-deild kvenna í
vetur.
Ágúst starfaði sem þjálfari
íslenska kvennalandsliðsins í fimm
ár en hætti störfum fyrir tveimur
árum síðan. Undir hans stjórn
lék Ísland í lokakeppni HM árið
2011 og í lokakeppni EM ári síðar.
Fyrsti leikur Færeyja undir stjórn
Ágústs fer fram þann 30. nóvember
næstkomandi gegn Sviss í undan-
keppni HM. Ásamt Sviss eru Litháen
og Finnland með Færeyjum í riðli.
– kpt
Ágúst næsti
þjálfari Færeyja
Fótbolti „Það er geggjuð tilfinning
að verða bikarmeistari með uppeld-
isfélagi sínu og gaman að hafa lagt
sitt af mörkum með því að eiga tvær
stoðsendingar. Þetta var jafn leikur
framan af, en sem betur fer náðum
við að skora tvisvar með skömmu
millibili í fyrri hálfleik og eftir það
var þetta ekki í hættu að mínu
mati,“ sagði Agla María Alberts-
dóttir í samtali við Fréttablaðið eftir
1-2 sigur Breiðabliks á Stjörnunni í
úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í
gærkvöldi.
Það var kannski skrifað í skýin
að Agla María yrði í aðalhlutverki
í úrslitaleiknum. Hún lék með
Stjörnunni á árunum 2016-17 og
skoraði í 3-2 tapi liðsins fyrir ÍBV
í bikarúrslitaleiknum í fyrra. Í gær
gerði hún hins vegar gæfumuninn
fyrir Breiðablik gegn sínum gömlu
félögum í Stjörnunni. Agla María var
besti leikmaður vallarins og lagði
upp bæði mörk Blika.
Úrslitaleikurinn var jafn og úti á
vellinum bar lítið í milli liðanna. En
Blikar voru beittari í vítateigunum
og nýttu sín tækifæri. Stjarnan
byrjaði betur og á strax á 6. mínútu
slapp Telma Hjaltalín Þrastardóttir
inn fyrir vörn Breiðabliks en Sonný
Lára Þráinsdóttir varði skot hennar.
Sú markvarsla reyndist afar dýrmæt.
Á 19. mínútu missti María Eva
Eyjólfsdóttir, hægri bakvörður
Stjörnunnar, Öglu Maríu klaufa-
lega inn fyrir sig. Hún þakkaði pent
fyrir sig og setti boltann á Berglindi
Björgu Þorvaldsdóttur sem skoraði
sitt sautjánda mark í jafn mörgum
leikjum í deild og bikar í sumar.
Þegar níu mínútur voru til hálf-
leiks tók Agla María aukaspyrnu
á vinstri kantinum, sendi boltann
inn á teiginn þar sem miðvörður-
inn Guðrún Arnardóttir reis hæst
og skallaði boltann í netið.
„Ég hef prufað það að tapa bik-
arúrslitaleik og ég var staðráðin í
því að láta það ekki koma fyrir aftur.
Þessi leikur snerist um smáatriði og
við nýttum okkur mistök þeirra og
fast leikatriði. Þetta var vel klárað
hjá Berglindi Björgu og Guðrúnu,“
sagði Agla María sem hefur leikið
afar vel fyrir Breiðablik í sumar.
Seinni hálfleikurinn í leiknum í
gær var lengst af afar bragðdaufur.
Stjörnukonur voru bitlausar og
Blikavörnin hafði ekki mikið fyrir
hlutunum. Ekki bætti úr skák fyrir
Garðbæinga að Harpa Þorsteins-
dóttir fór meidd af velli um miðjan
seinni hálfleik.
Telma Hjaltalín hleypti spennu
í leikinn þegar hún skoraði fallegt
mark með skoti í stöng og inn af
löngu færi á 87. mínútu. Nær komst
Stjarnan hins vegar ekki og Breiða-
blik fagnaði sigri og sínum tólfta
bikarmeistaratitli.
ingvithor@frettabladid.is
Agla María reyndist vera
hetjan gegn gömlu félögunum
Breiðablik varð bikarmeistari í tólfta sinn eftir 1-2 sigur á Stjörnunni í gærkvöldi. Agla María Albertsdóttir
reyndist sínu gamla liði erfiður ljár í þúfu og lagði upp bæði mörk Blika með frábærum fyrirgjöfum.
Sonný Lára, markvörður og fyrirliði Blika, hefur bikarinn á loft í leikslok á Laugardalsvelli í gærkvöld. FréttABLAðið/ErNir
1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 l a U g a R d a g U R16 s p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð
sport
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
9
-F
4
E
0
2
0
9
9
-F
3
A
4
2
0
9
9
-F
2
6
8
2
0
9
9
-F
1
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K