Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 8
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
0
0
H
y
u
n
d
a
i
IO
N
IQ
R
a
f
b
íl
l
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is
Hyundai hefur haslað sér völl sem einn framsæknasti bílaframleiðandi heims á sviði
raf- og vetnistækni. Við bjóðum IONIQ rafbílinn í þremur glæsilegum útfærslum.
IONIQ rafbílalína Hyundai er sú eina sinnar tegundar á markaðnum og spannar allt
frá 100% rafbíl til Hybrid og tengjanlegra Plug-in Hybrid tvinnbíla sem hafa unnið
til fjölda umhverfisverðlauna á undanförnum misserum.
Hyundai IONIQ 100% rafbíll. Verð frá: 3.590.000 kr.
TIL AFGREIÐSLU STRAX!
Drifinn af spennu.
100% rafbíll
ÞRJÁR RAFMAGNAÐAR GERÐIR
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
GEIMVÍSINDI Vatn er að öllum lík-
indum afar stór hluti af náttúru
fjarreikistjarna – reikistjarna utan
okkar sólkerfis – sem eru tvisvar
til fjórum sinnum stærri en Jörðin.
Jarðefnafræðingar sem rýnt hafa
í stærð og massa tæplega fjögur
þúsund staðfestra og grunaðra fjar-
reikistjarna kynntu niðurstöður
sínar á Goldsmith-ráðstefnunni í
Boston í gærkvöldi.
Fyrstu fjarreikistjörnurnar fund-
ust árið 1992. Þær voru á sveimi í
kringum tifstjörnu í 2.300 ljósára-
fjarlægð frá Jörðu, í stjörnumerki
Meyjunnar. Síðan þá hafa vísinda-
menn freistað að varpa ljósi á eðli
og náttúru þessara reikistjarna svo
hægt sé að meta lífvænleika þeirra.
Vísindamenn við Harvard-
háskóla rýndu í gögn frá Kepler-
geimsjónaukanum og stjarn-
mælingageimfarinu Gaia og báru
saman radíus fjarreikistjarna og
áætlaðan massa þeirra. Fyrri niður-
stöður gefa sterklega til kynna að
flestar fjarreikistjörnur falla í tvo
flokka, annars vegar reikistjörnur
sem er í kringum 1,5 sinnum stærri
en Jörðin, og hins vegar reiki-
stjörnur sem eru 2,5 sinnum stærri
en Jörðin. Vísindamennirnir hafa
nú kynnt líkan sem útskýrir tengsl
massa fjarreikistjarna og radíuss
þeirra.
Líkanið gefur til kynna að fjar-
reikistjörnur sem eru 1,5 stærri
Vatn víða að finna á fjarlægum plánetum
Vísindamenn við Harvard-háskóla segja líklegt að stór hluti þeirra fjarreikistjarna, eða reikistjarna á braut um aðrar stjörnur, sem fund-
ist hafa síðan 1992 séu ríkar af vatni, bæði vatnsgufu og vatni í jarðlögum. Ný kynslóð geimsjónauka mun meta lífvænleika þeirra.
Fjarreikistjarnan Proxima b er á spor-
braut um stjörnuna Proxima, sem er
næsti nágranni okkar í alheiminum.
Reikistjarnan er talin vera grýtt.
NoRdicPhotos/Getty
✿ 1. flokkur
Radíus: 1,5 x Jörðin
Líklegri til að vera grýttar
✿ 2. flokkur
Radíus: 2,5 x Jörðin
Líklegri til að vera vatnaveraldir
35% fjarreikistjarna sem eru stærri en Jörðin eru að líkindum ríkar af vatni
Vísindamenn hafa
staðfest tilvist 3.815 fjarreiki-
stjarna í 2.853 sólkerfum.
en Jörðin séu yfirleitt grýttar og
í kringum 5 sinnum massameiri
en Jörðin. Aftur á móti eru stærri
fjarreikistjörnurnar, þær sem eru
2,5 stærri en Jörðin og 10 sinnum
massameiri, að öllum líkindum
vatnaveraldir.
„Þetta er vatn, en ekki vatn sem
er jafn auðfundið og hér á Jörðinni,“
segir Li Zeng hjá Harvard-háskóla.
„Yfirborð þessara fjarreikistjarna er
í kringum 200 til 500 gráða heitt.
Þannig gæti yfirborðið verið þakið
lofthjúpi sem samanstendur fyrst
og fremst af vatnsgufu, á meðan
vatn í fljótandi formi er að finna í
jarðlögum.“
Zeng segir að í kringum 35 pró-
sent þeirra fjarreikistjarna sem eru
stærri en Jörðin séu líklega ríkar af
vatni.
„Þessar tilteknu reikistjörnur
mynduðust líklega með svipuðum
hætti og kjarnar stærstu reiki-
stjarna í okkar sólkerfi. TESS-geim-
sjónaukinn, sem nýlega var skotið
á loft, mun finna mun fleiri slíkar
fjarreikistjörnur. Næsta kynslóð
geimsjónauka, James Webb-geim-
sjónaukinn nánar tiltekið, mun
síðan vonandi geta greint loft-
hjúp þeirra,“ sagði Zeng. „Þetta eru
spennandi tímar fyrir þá sem hafa
áhuga á fjarlægum veröldum.“
kjartanh@frettabladid.is
1 8 . á G ú S t 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R8 f R é t t I R ∙ f R é t t A B L A ð I ð
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-3
5
1
0
2
0
9
A
-3
3
D
4
2
0
9
A
-3
2
9
8
2
0
9
A
-3
1
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K