Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 26
Þegar Christopher Koch kom í heiminn ákvað fjölskylda hans strax í upphafi að meðhöndla fötlun hans ekki sem eitthvað neikvætt og
falla í sorg. Þess í stað var hugarfar
fjölskyldu hans þess eðlis að Chris
yrði alinn upp líkt og um heilbrigðan
einstakling væri að ræða, enda höf-
uðið í fullkomnu lagi.
„Amma mín sagði strax í upp-
hafi að faðir minn, Bruce, hafi í raun
aldrei klárað neitt sem hann byrjaði
á. Fremur svartur húmor en þetta
viðhorf varð til þess að ég get í hrein-
skilni sagt að það var auðvelt að vaxa
úr grasi án útlima. Fjölskylda mín,
vinir og allir í bænum komu fram
við mig líkt og aðra. Ég var settur
í íþróttir og tók þátt líkt og önnur
börn. Ég fæddist án handa og fóta og
því verður ekki breytt, af hverju ekki
að gera það besta úr því. Ég er hepp-
inn að eiga góða fjölskyldu, við erum
mjög náin,“ segir Chris í samtali við
Fréttablaðið.
Chris er fæddur og uppalinn í
Kanada í litlu búskaparsamfélagi í
Nanton, Alberta. Fjölskylda hans er
með búskap og hjálpar hann þar til
á milli þess að ferðast um heiminn
þar sem hann heldur hvetjandi fyrir-
lestra. Hann lærði sögu og heimspeki
í háskóla í Ottawa og hefur einnig
unnið mikið með stríðshetjum sem
hafa misst útlimi í Kanada, The War
Amputations of Canada eða CHAMP.
Chris lenti á Íslandi í gær en dag-
inn áður var hann staddur í Indiana í
Bandaríkjunum þar sem hann talaði
fyrir fjölda manns og í nóvember
mun hann ferðast til Kína.
En hvers vegna Ísland?
„Ég hef ferðast víða um heim með
Christopher Koch segir að þegar öllu er á botninn hvolft getum við allt sem við viljum, með réttu hugarfari. Hress og hvetjandi maður hér á ferð. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Ég vil ekki
hika eða
reyna að tala
mig út úr
því að fram-
kvæma hluti.
frekar vil Ég
gera eitthvað
og mistakast
heldur en að
sleppa því.
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
Lætur ekkert
stöðva sig
Kanadamaðurinn
Christopher Koch
er kominn til lands-
ins til að taka þátt í
Reykjavíkurmara-
þoninu. Hann reynir
við heilt maraþon, en
það sem er ólíkt með
honum og hinum al-
menna þátttakanda
er sú staðreynd að
Chris fæddist bæði
handa- og fótalaus.
fyrirlestra mína og er heppinn að
geta gert það. Það sem dró mig til
Íslands er einfaldlega sú staðreynd
að mig hefur alltaf langað til að koma
hingað. Frænka mín og unnusti
hennar komu hingað fyrir nokkru
síðan og ég hef séð ýmis mynd-
bönd af landinu,“ segir Chris sem er
spenntur fyrir maraþoninu sem er
hans sjötta um ævina.
að hika er sama og að tapa
„Ég er líka að reyna að finna mér
eitthvað krefjandi að gera í hvers-
dagslífinu. Mér finnst tilgangur
lífsins vera að hafa gaman og njóta
þess að vera til. Ég er mun hræddari
við það að finna fyrir eftirsjá heldur
en hræðsluna sjálfa. Ég vil ekki hika
eða reyna að tala mig út úr því að
framkvæma hluti. Frekar vil ég gera
eitthvað og mistakast heldur en að
sleppa því. Það væri vond tilfinning
að líta til baka og sjá eftir því að hafa
ekki að minnsta kosti reynt.“
Fyrr í sumar fékk Chris þá hug-
mynd að ferðast frá heimili sínu í
vestari hluta Kanada, Calgary, til
austasta hluta Kanada, St. John’s á
Nýfundnalandi, sem er um 6.338
km leið. Það eina sem hann tók með
sér var hjólabrettið og bakpokinn og
hann þurfti alfarið að stóla á ókunn-
uga til að hjálpa sér áleiðis.
Þetta hlýtur að hafa verið heljar-
innar ferðalag. Hvernig gekk að stóla
á ókunnuga?
„Þar sem ég trúi á það góða í fólki
þá fór ég af stað í ferðalagið með
miklar væntingar. Samt sem áður sló
ferðin allar mínar væntingar út. Fólk
er svo magnað. Ég fékk far og hjálp
frá alls konar fólki. Aðrir skildu eftir
falleg skilaboð á samfélagsmiðlum
og fylgdust með för minni. Þetta var
æðisleg ferð.
Hefurðu sett þér markmið fyrir
maraþonið?
„Ég ætla að reyna að fara þetta á
fjórum og hálfum tíma, en ef ég verð
fimm og hálfan á leiðinni þá er það
bara fínt. Ef ég slæ sjálfsmet þá er
það frábært líka. Ég veit allavega að
ég mun njóta mín, ansi snjöll leið
til að kynnast borginni, að fara 42
kílómetra í kringum hana. Ég mun
líklega verða lengur á leiðinni því
ég verð líklega að líta svo mikið í
kringum mig.“
Miðað við tímamarkmið Chris
má ætla að hann fari á svipuðum
hraða og heilbrigður maður. Chris
fer maraþonið á hjólabretti. Hægra
megin hefur Chris fót sem hefur
þroskast að hluta sem hann notar til
að ýta sér áfram á brettinu og notast
hann við mokkasíu sem er með sér-
stökum botni. „Í brekkum er það
mikil vinna en niður brekkur er það
töluvert auðveldara,“ segir Chris og
hlær. „Þetta er ansi góð líkamsrækt
fyrir mig, hún er öðruvísi fyrir mig
heldur hinn venjulega hlaupara. En
ég er ekki að reyna að slá eitthvert
hraðamet eða ná betri árangri en
aðrir. Ég er bara að gera þetta fyrir
sjálfan mig og ætla að njóta þess.“
Þú ert hvetjandi fyrir annað fólk,
en hvað er það sem hvetur þig áfram?
„Að hafa tækifæri til að ferðast
um heiminn og hitta nýtt fólk og að
láta ekkert standa í vegi fyrir því. Ég
hef hitt frábært fólk í gegnum tíðina
og það sem heillar mig og veitir mér
innblástur er gæska fólks. Ég vil láta
gott af mér leiða og vera góður við
aðra. Ég tek þátt í þessu maraþoni
og ögra mér í leiðinni. Kannski er
það eitthvað sem getur veitt öðrum
í svipaðri stöðu eða með einhvers
konar fötlun innblástur og hvatn-
ingu til að gera slíkt hið sama. Þegar
öllu er á botninn hvolft þá getum við
gert allt sem við viljum með réttu
hugarfari.“
Stoppið á Íslandi verður svolítið
stutt í þetta skipti en Chris heldur úr
landi á mánudag. Hann ætlar þó að
nýta sunnudaginn í það að ferðast
aðeins um en stefnir á að koma aftur
hingað fljótlega, náttúrunnar vegna
en ekki síst til að hitta fólk. „Það er
fólkið sem gerir áfangastaði áhuga-
verða. Gott fólk er gulls ígildi,“ segir
Chris að lokum.
Chris æfði ýmsar
íþróttir sem barn
og er ennþá mikill
íþróttamaður.
1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R26 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-3
A
0
0
2
0
9
A
-3
8
C
4
2
0
9
A
-3
7
8
8
2
0
9
A
-3
6
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K