Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 26

Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 26
Þegar Christopher Koch kom í heiminn ákvað fjölskylda hans strax í upphafi að meðhöndla fötlun hans ekki sem eitthvað neikvætt og falla í sorg. Þess í stað var hugarfar fjölskyldu hans þess eðlis að Chris yrði alinn upp líkt og um heilbrigðan einstakling væri að ræða, enda höf- uðið í fullkomnu lagi. „Amma mín sagði strax í upp- hafi að faðir minn, Bruce, hafi í raun aldrei klárað neitt sem hann byrjaði á. Fremur svartur húmor en þetta viðhorf varð til þess að ég get í hrein- skilni sagt að það var auðvelt að vaxa úr grasi án útlima. Fjölskylda mín, vinir og allir í bænum komu fram við mig líkt og aðra. Ég var  settur í  íþróttir og tók þátt  líkt og önnur börn. Ég fæddist án handa og fóta og því verður ekki breytt, af hverju ekki að gera það besta úr því. Ég er hepp- inn að eiga góða fjölskyldu, við erum mjög náin,“ segir Chris í samtali við Fréttablaðið. Chris er fæddur og uppalinn í Kanada í litlu búskaparsamfélagi í Nanton, Alberta. Fjölskylda hans er með búskap og hjálpar hann þar til á milli þess að ferðast um heiminn þar sem hann heldur hvetjandi fyrir- lestra. Hann lærði sögu og heimspeki í háskóla í Ottawa og hefur einnig unnið mikið með stríðshetjum sem hafa misst útlimi í Kanada, The War Amputations of Canada eða CHAMP. Chris lenti á Íslandi í gær en dag- inn áður var hann staddur í Indiana í Bandaríkjunum þar sem hann talaði fyrir fjölda manns og í nóvember mun hann ferðast til Kína. En hvers vegna Ísland? „Ég hef ferðast víða um heim með Christopher Koch segir að þegar öllu er á botninn hvolft getum við allt sem við viljum, með réttu hugarfari. Hress og hvetjandi maður hér á ferð. Fréttablaðið/Sigtryggur ari Ég vil ekki hika eða reyna að tala mig út úr því að fram- kvæma hluti. frekar vil Ég gera eitthvað og mistakast heldur en að sleppa því. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@frettabladid.is Lætur ekkert stöðva sig Kanadamaðurinn Christopher Koch er kominn til lands- ins til að taka þátt í Reykjavíkurmara- þoninu. Hann reynir við heilt maraþon, en það sem er ólíkt með honum og hinum al- menna þátttakanda er sú staðreynd að Chris fæddist bæði handa- og fótalaus. fyrirlestra mína og er heppinn að geta gert það. Það sem dró mig til Íslands er einfaldlega sú staðreynd að mig hefur alltaf langað til að koma hingað. Frænka mín og unnusti hennar komu hingað fyrir nokkru síðan og ég hef séð ýmis mynd- bönd af landinu,“ segir Chris sem er spenntur fyrir maraþoninu sem er hans sjötta um ævina. að hika er sama og að tapa „Ég er líka að reyna að finna mér eitthvað krefjandi að gera í hvers- dagslífinu. Mér finnst tilgangur lífsins vera að hafa gaman og njóta þess að vera til. Ég er mun hræddari við það að finna fyrir eftirsjá heldur en hræðsluna sjálfa. Ég vil ekki hika eða reyna að tala mig út úr því að framkvæma hluti. Frekar vil ég gera eitthvað og mistakast heldur en að sleppa því. Það væri vond tilfinning að líta til baka og sjá eftir því að hafa ekki að minnsta kosti reynt.“ Fyrr í sumar fékk Chris þá hug- mynd að ferðast frá heimili sínu í vestari hluta Kanada, Calgary, til austasta hluta Kanada, St. John’s á Nýfundnalandi, sem er um 6.338 km leið. Það eina sem hann tók með sér var hjólabrettið og bakpokinn og hann þurfti alfarið að stóla á ókunn- uga til að hjálpa sér áleiðis. Þetta hlýtur að hafa verið heljar- innar ferðalag. Hvernig gekk að stóla á ókunnuga? „Þar sem ég trúi á það góða í fólki þá fór ég af stað í ferðalagið með miklar væntingar. Samt sem áður sló ferðin allar mínar væntingar út. Fólk er svo magnað. Ég fékk far og hjálp frá alls konar fólki. Aðrir skildu eftir falleg skilaboð á samfélagsmiðlum og fylgdust með för minni. Þetta var æðisleg ferð. Hefurðu sett þér markmið fyrir maraþonið? „Ég ætla að reyna að fara þetta á fjórum og hálfum tíma, en ef ég verð fimm og hálfan á leiðinni þá er það bara fínt. Ef ég slæ sjálfsmet þá er það frábært líka. Ég veit allavega að ég mun njóta mín, ansi snjöll leið til að kynnast borginni, að fara 42 kílómetra í kringum hana. Ég mun líklega verða lengur á leiðinni því ég verð líklega að líta svo mikið í kringum mig.“ Miðað við tímamarkmið Chris má ætla að hann fari á svipuðum hraða og heilbrigður maður. Chris fer maraþonið á hjólabretti. Hægra megin hefur Chris fót sem hefur þroskast að hluta sem hann notar til að ýta sér áfram á brettinu og notast hann við mokkasíu sem er með sér- stökum botni. „Í brekkum er það mikil vinna en niður brekkur er það töluvert auðveldara,“ segir Chris og hlær. „Þetta er ansi góð líkamsrækt fyrir mig, hún er öðruvísi fyrir mig heldur hinn venjulega hlaupara. En ég er ekki að reyna að slá eitthvert hraðamet eða ná betri árangri en aðrir. Ég er bara að gera þetta fyrir sjálfan mig og ætla að njóta þess.“ Þú ert hvetjandi fyrir annað fólk, en hvað er það sem hvetur þig áfram? „Að hafa tækifæri til að ferðast um heiminn og hitta nýtt fólk og að láta ekkert standa í vegi fyrir því. Ég hef hitt frábært fólk í gegnum tíðina og það sem heillar mig og veitir mér innblástur er gæska fólks. Ég vil láta gott af mér leiða og vera góður við aðra. Ég tek þátt í þessu maraþoni og ögra mér í leiðinni. Kannski er það eitthvað sem getur veitt öðrum í svipaðri stöðu eða með einhvers konar fötlun innblástur og hvatn- ingu til að gera slíkt hið sama. Þegar öllu er á botninn hvolft þá getum við gert allt sem við viljum með réttu hugarfari.“ Stoppið á Íslandi verður svolítið stutt í þetta skipti en Chris heldur úr landi á mánudag. Hann ætlar þó að nýta sunnudaginn í það að ferðast aðeins um en stefnir á að koma aftur hingað fljótlega, náttúrunnar vegna en ekki síst til að hitta fólk. „Það er fólkið sem gerir áfangastaði áhuga- verða. Gott fólk er gulls ígildi,“ segir Chris að lokum. Chris æfði ýmsar íþróttir sem barn og er ennþá mikill íþróttamaður. 1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R26 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -3 A 0 0 2 0 9 A -3 8 C 4 2 0 9 A -3 7 8 8 2 0 9 A -3 6 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.