Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 29
Góður og grænn drykkur sem er heilsusamlegur að auki. Til að „poppa drykkinn upp“ má til dæmis bæta við kanil, túrmerik, hörfræ eða chiafræ, smá epladjús eða tveimur döðlum til að sæta aðeins.
Að líða vel í eigin skinni og vera sáttur við sjálfan sig er eftirsóknarvert en við eigum
kannski misauðvelt eða erfitt með
að komast á þann stað. Þegar við
viljum bæta heilsufar og vellíðan
almennt er gott að huga vel að
nokkrum grundvallaratriðum
sem geta skipt sköpum varðandi
árangursríkt framhald.
Jafnvægi á líkama og sál
Það skiptir öllu máli að andleg
líðan sé góð en þegar við erum
ekki í góðu jafnvægi getur verið
erfitt að koma mataræðinu í gott
horf og svo öfugt. Við verðum að
fara yfir nokkra þætti sem skipta
okkur öll miklu máli og finna hvar
þarf að laga hlutina til að vera í
jafnvægi en þetta eru atriði eins og:
l Sambönd (hjónaband, fjölskylda
og vinir)
l Atvinna – erum við sátt?
l Fjármál / fjármálaáhyggjur
l Hreyfing
l Andleg líðan
Samhliða skoðum við svo matar
æðið og fyrstu skrefin þar snúast
alltaf um það að taka út óæskilega
næringu eins og sykur, unna mat
vöru og þau matvæli sem valda
vanlíðan ásamt því að koma reglu
á máltíðir.
Meltingin er grunnurinn
Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf
betur og betur hversu mikilvægt
það er að hafa meltingarfærin í lagi
og hvaða áhrif þarmaflóran hefur
bæði á líkamlega og andlega líðan.
Að auki leikur hún stórt hlutverk
í að viðhalda öflugu ónæmiskerfi.
Við þurfum að geta brotið fæðuna
vel niður til að næringarefnin
frásogist en til þess að það gerist
þarf þarmaflóran að vera í jafn
vægi. Meltingarfærin eru því það
fyrsta sem við þurfum að huga að
til að geta nærst vel því um leið og
upptakan er góð og við skilum frá
okkur eðlilegum hægðum kemst
betra jafnvægi á og við höfum stigið
stórt skref í átt að heilbrigðara
lífi. Það má líkja þessu við að við
séum að byggja hús og við byrjum
á grunninum. Því traustari og betur
gerður sem grunnurinn er, þeim
mun auðveldara verður að byggja
ofan á þannig að allt haldi vel.
Góður og grænn á morgnana
Til að koma sér af stað á morgnana
getur hentað vel að gera sér góðan
grænan drykk fullan af næringar
efnum og trefjum sem er gott fyrir
meltinguna. Vel samsettir drykkir
hafa líka jákvæð áhrif á blóð
sykurinn og hjálpa í baráttunni við
sykurpúkann. Það þarf ekki að vera
flókið að skella í góðan drykk og
tekur varla meira en 23 mínútur.
Grænn og vænn
1 lúka blönduð græn blöð, spínat
eða grænkál
½-1 banani (má vera frosinn)
1 bolli frosið mangó eða ananas
1-2 cm engifer
Smá sítrónusafi
1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða
haframjólk
Ýmislegt má svo nota til að „poppa
drykkinn aðeins upp“ en það getur
verið smá kanill, túrmerik, 1 msk.
hörfræ eða chiafræ, smá epladjús
eða tvær döðlur til að sæta aðeins.
Berjadrykkir eru líka góðir og um
að gera að finna hvað hentar.
Þreyta eftir máltíðir
Ensím eru nauðsynleg í öllum
efnaskiptum í líkamanum en í
hráu fæði eru ensím sem verða
óvirk við eldun. Þegar við borðum
eldaðan og unninn mat notar
líkaminn orkuna til að finna og
flytja ensím til meltingarvegarins
– hver hefur ekki fundið fyrir
þreytu eftir stórar máltíðir? Með
hækkandi aldri gerist það líka að
framleiðsla ensíma í líkamanum
minnkar en ensímaskortur getur
lýst sér í eftirtöldu:
l Brjóstsviði
l Vindverkir
l Uppþemba
l Kviðverkir & ógleði
l Bólur
l Nefrennsli
l Krampar í þörmum
l Ófullnægt hungur
l Exem
l Höfuðverkur
l Skapsveiflur
l Liðverkir
l Húðkláði
l Húðroði
l Svefnleysi
Það er alltaf mikilvægt að borða
„lifandi fæðu“ eins og grænmeti
og ávexti með elduðum mat og
fjölmargir hafa einnig fundið lausn
í að taka inn meltingarensím til
að auðvelda líkamanum verkið og
nýta fæðuna betur. Þetta er einnig
grundvallaratriði í átt að heil
brigðari lífsstíl. Meltingarensímin
frá Enzymedica eru tekin inn með
mat og hafa losað fólk við ótrú
legustu óþægindi og aukið orku til
muna. Aðferð við vinnslu á ensím
unum kallast TheraBlend og er
það einkaleyfisvarin aðferð sem
gerir þeim kleift að vinna á mis
munandi pH gildum í líkamanum
og gerir þau 520 sinnum öflugri
en önnur meltingarensím.
Aukið heilbrigði fyrir alla
Fyrir utan bæði Dvítamín og
Omega3 fitusýrur sem er okkur
lífsnauðsynlegt að taka inn í
formi bætiefna eigum við að taka
inn öfluga mjólkursýrugerla. Það
er stöðugt álag á meltingunni
og atriði eins og streita, lyf,
áfengi, sykur og koffein sem geta
valdið því að hvorki meltingin
(í maganum) né þarmaflóran er
í nógu góðu jafnvægi. BioKult
mjólkursýrugerlarnir eru mjög
öflugir fyrir þarmaflóruna og efla
ónæmiskerfið en BioKult Candéa
inniheldur auk 7 gerlastofna
hvítlauk sem er bakteríudrepandi
og öflugur fyrir ónæmiskerfið
og GSE (Grapefruit Seed Extract)
sem inniheldur öflug efnasam
bönd sem vinna gegn fjölmörgum
bakteríutegundum, veirum og
sveppum og þá sérstaklega Can
didasvepp sem margir kannast
við.
Ávísun að betri líðan
Gott er að stefna inn í sumarið með
smá aðgerðaplan að vopni. Tökum
út sykurinn með hjálp græna
drykkjarins til að byrja með og
hugum svo að mataræðinu ásamt
því að fara almennt yfir líðan okkar
í leik og starfi. Hér eru svo nokkrar
þumalputtareglur sem hægt er að
hafa til hliðsjónar en það er allt
hægt ef viljinn er fyrir hendi.
l Borðum hreina fæðu
l Borðum árstíðabundið
l Borðum mat sem við þolum
l Borðum reglulega, ekki eftir
kvöldmat
l Eldum frá grunni
l Áfengi í hófi
l Sykur í hófi
l Sleppum unnum matvælum og
forðumst viðbættan sykur
l Drekkum vatn
l Sofum nóg
l Forðumst streitu
l Hreyfum okkur – ferskt loft
l Ræktum sálina
Skoðum okkur ekki bara
í speglinum, líka innávið:
l Hjónaband
l Vinna
l Fjármál
l Félagslíf o.fl.
Margt smátt gerir eitt stórt
Að breyta lífsstílnum er langtímavinna sem best er að skipta niður í mörg lítil og viðráðanleg verk-
efni. Með þrautseigju og hjálp meltingarensíma og mjólkursýrugerla verður það árangursríkara.
Meltingarensímin
frá Enzymedica eru
tekin inn með mat og
hafa losað fólk við ótrú-
legustu óþægindi og
aukið orku til muna.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 8 . Ág ú S t 2 0 1 8
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
A
-1
7
7
0
2
0
9
A
-1
6
3
4
2
0
9
A
-1
4
F
8
2
0
9
A
-1
3
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K