Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 29

Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 29
Góður og grænn drykkur sem er heilsusamlegur að auki. Til að „poppa drykkinn upp“ má til dæmis bæta við kanil, túrmerik, hörfræ eða chiafræ, smá epladjús eða tveimur döðlum til að sæta aðeins. Að líða vel í eigin skinni og vera sáttur við sjálfan sig er eftirsóknarvert en við eigum kannski misauðvelt eða erfitt með að komast á þann stað. Þegar við viljum bæta heilsufar og vellíðan almennt er gott að huga vel að nokkrum grundvallaratriðum sem geta skipt sköpum varðandi árangursríkt framhald. Jafnvægi á líkama og sál Það skiptir öllu máli að andleg líðan sé góð en þegar við erum ekki í góðu jafnvægi getur verið erfitt að koma mataræðinu í gott horf og svo öfugt. Við verðum að fara yfir nokkra þætti sem skipta okkur öll miklu máli og finna hvar þarf að laga hlutina til að vera í jafnvægi en þetta eru atriði eins og: l Sambönd (hjónaband, fjölskylda og vinir) l Atvinna – erum við sátt? l Fjármál / fjármálaáhyggjur l Hreyfing l Andleg líðan Samhliða skoðum við svo matar­ æðið og fyrstu skrefin þar snúast alltaf um það að taka út óæskilega næringu eins og sykur, unna mat­ vöru og þau matvæli sem valda vanlíðan ásamt því að koma reglu á máltíðir. Meltingin er grunnurinn Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf betur og betur hversu mikilvægt það er að hafa meltingarfærin í lagi og hvaða áhrif þarmaflóran hefur bæði á líkamlega og andlega líðan. Að auki leikur hún stórt hlutverk í að viðhalda öflugu ónæmiskerfi. Við þurfum að geta brotið fæðuna vel niður til að næringarefnin frásogist en til þess að það gerist þarf þarmaflóran að vera í jafn­ vægi. Meltingarfærin eru því það fyrsta sem við þurfum að huga að til að geta nærst vel því um leið og upptakan er góð og við skilum frá okkur eðlilegum hægðum kemst betra jafnvægi á og við höfum stigið stórt skref í átt að heilbrigðara lífi. Það má líkja þessu við að við séum að byggja hús og við byrjum á grunninum. Því traustari og betur gerður sem grunnurinn er, þeim mun auðveldara verður að byggja ofan á þannig að allt haldi vel. Góður og grænn á morgnana Til að koma sér af stað á morgnana getur hentað vel að gera sér góðan grænan drykk fullan af næringar­ efnum og trefjum sem er gott fyrir meltinguna. Vel samsettir drykkir hafa líka jákvæð áhrif á blóð­ sykurinn og hjálpa í baráttunni við sykurpúkann. Það þarf ekki að vera flókið að skella í góðan drykk og tekur varla meira en 2­3 mínútur. Grænn og vænn 1 lúka blönduð græn blöð, spínat eða grænkál ½-1 banani (má vera frosinn) 1 bolli frosið mangó eða ananas 1-2 cm engifer Smá sítrónusafi 1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða haframjólk Ýmislegt má svo nota til að „poppa drykkinn aðeins upp“ en það getur verið smá kanill, túrmerik, 1 msk. hörfræ eða chiafræ, smá epladjús eða tvær döðlur til að sæta aðeins. Berjadrykkir eru líka góðir og um að gera að finna hvað hentar. Þreyta eftir máltíðir Ensím eru nauðsynleg í öllum efnaskiptum í líkamanum en í hráu fæði eru ensím sem verða óvirk við eldun. Þegar við borðum eldaðan og unninn mat notar líkaminn orkuna til að finna og flytja ensím til meltingarvegarins – hver hefur ekki fundið fyrir þreytu eftir stórar máltíðir? Með hækkandi aldri gerist það líka að framleiðsla ensíma í líkamanum minnkar en ensímaskortur getur lýst sér í eftirtöldu: l Brjóstsviði l Vindverkir l Uppþemba l Kviðverkir & ógleði l Bólur l Nefrennsli l Krampar í þörmum l Ófullnægt hungur l Exem l Höfuðverkur l Skapsveiflur l Liðverkir l Húðkláði l Húðroði l Svefnleysi Það er alltaf mikilvægt að borða „lifandi fæðu“ eins og grænmeti og ávexti með elduðum mat og fjölmargir hafa einnig fundið lausn í að taka inn meltingarensím til að auðvelda líkamanum verkið og nýta fæðuna betur. Þetta er einnig grundvallaratriði í átt að heil­ brigðari lífsstíl. Meltingarensímin frá Enzymedica eru tekin inn með mat og hafa losað fólk við ótrú­ legustu óþægindi og aukið orku til muna. Aðferð við vinnslu á ensím­ unum kallast Thera­Blend og er það einkaleyfisvarin aðferð sem gerir þeim kleift að vinna á mis­ munandi pH­ gildum í líkamanum og gerir þau 5­20 sinnum öflugri en önnur meltingarensím. Aukið heilbrigði fyrir alla Fyrir utan bæði D­vítamín og Omega­3 fitusýrur sem er okkur lífsnauðsynlegt að taka inn í formi bætiefna eigum við að taka inn öfluga mjólkursýrugerla. Það er stöðugt álag á meltingunni og atriði eins og streita, lyf, áfengi, sykur og koffein sem geta valdið því að hvorki meltingin (í maganum) né þarmaflóran er í nógu góðu jafnvægi. Bio­Kult mjólkursýrugerlarnir eru mjög öflugir fyrir þarmaflóruna og efla ónæmiskerfið en Bio­Kult Candéa inniheldur auk 7 gerlastofna hvítlauk sem er bakteríudrepandi og öflugur fyrir ónæmiskerfið og GSE (Grapefruit Seed Extract) sem inniheldur öflug efnasam­ bönd sem vinna gegn fjölmörgum bakteríutegundum, veirum og sveppum og þá sérstaklega Can­ dida­svepp sem margir kannast við. Ávísun að betri líðan Gott er að stefna inn í sumarið með smá aðgerðaplan að vopni. Tökum út sykurinn með hjálp græna drykkjarins til að byrja með og hugum svo að mataræðinu ásamt því að fara almennt yfir líðan okkar í leik og starfi. Hér eru svo nokkrar þumalputtareglur sem hægt er að hafa til hliðsjónar en það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. l Borðum hreina fæðu l Borðum árstíðabundið l Borðum mat sem við þolum l Borðum reglulega, ekki eftir kvöldmat l Eldum frá grunni l Áfengi í hófi l Sykur í hófi l Sleppum unnum matvælum og forðumst viðbættan sykur l Drekkum vatn l Sofum nóg l Forðumst streitu l Hreyfum okkur – ferskt loft l Ræktum sálina Skoðum okkur ekki bara í speglinum, líka innávið: l Hjónaband l Vinna l Fjármál l Félagslíf o.fl. Margt smátt gerir eitt stórt Að breyta lífsstílnum er langtímavinna sem best er að skipta niður í mörg lítil og viðráðanleg verk- efni. Með þrautseigju og hjálp meltingarensíma og mjólkursýrugerla verður það árangursríkara. Meltingarensímin frá Enzymedica eru tekin inn með mat og hafa losað fólk við ótrú- legustu óþægindi og aukið orku til muna. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 8 . Ág ú S t 2 0 1 8 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 9 A -1 7 7 0 2 0 9 A -1 6 3 4 2 0 9 A -1 4 F 8 2 0 9 A -1 3 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.