Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 92
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettabladid.is
18. ágúst
Viðburðir
Hvað? Upplyfting – bekkpressumót
fyrir alla
Hvenær? 15.00
Hvar? Grandagarður 27
Upplífgandi bekkpressumót fyrir
fólk á öllum aldri þar sem tón-
list, myndlist og kúnstin að lyfta
lóðum spilar saman. Kraftfélagið
stendur fyrir frjálslegum viðburði
þar sem fólki gefst kostur á að
spreyta sig á bekkpressu. Mótið
fer fram í listarýminu Open í skúr-
unum á Granda (rétt hjá Valdísi og
Coocoo’s Nest). Metalpönksveitin
Spünk sér um upphitun. Lista-
mennirnir í Open sjá um að skapa
góða stemningu.
Hvað? Karnival á Klapparstíg
Hvenær? 16.00
Hvar? Klapparstígur
Dansmaraþonið hefst á slaginu
kl. 16.00 með jógatíma sem Tómas
Oddur frá Yoga Shala Reykjavík
leiðir. Við hefjum jógatímann á
dýpsta ohm-i Íslandssögunnar með
hjálp Bartóna, karlakórs. Dansinn
brýst síðan fram um kl. 17.00 og
mun duna óslitið fram að flugelda-
sýningu kl. 23.00. Fram koma DJ
Margeir og vinir.
Hvað? Bjórhátíð Samtaka
íslenskra handverksbrugg
húsa
Hvenær? 13.00
Hvar? Bryggjan brugghús
Samtök íslenskra hand-
verksbrugghúsa halda sína
fyrstu bjór- og brugghátíð
í samstarfi við Bryggjuna
Brugghús á Menningarnótt.
Hátíðin fer fram úti á bryggj-
unni og taka 11 handverks-
brugghús þátt í þetta sinn og
kynna sig og sínar vörur fyrir
gestum og gangandi. Frítt
er inn á hátíðina og
gefst gestum færi á
að kaupa beint af
hverju brugghúsi.
Hvað? Ísdagur Kjöríss
Hvenær? 13.00
Hvar? Austurmörk 15
Velkomin í árlega ísveislu Kjör-
íss. Hefur þú kjark til að smakka
sænskan surströmming-ís, truffluís,
kúmenís, ís í raspi, fullveld-
isís og svo margt, margt
fleira?
Hvað? Kútapartí Fágunar
Hvenær? 14.00
Hvar? Klambratún
Sem fyrr verður komið
saman við grillin á leik-
vellinum á Klambratúni.
Fágunarkranarnir verða til
taks fyrir kúta, en auk þess
er öllum frjálst að mæta
með eigin krana eða pikk-
nikk til leiks. Þess utan
verða pylsur á grillunum.
Gosdrykkir í boði fyrir þau
sem mæta bara í
pylsurnar og leik-
tækin. Allir vel-
komnir.
Hvað? Glæsileg sportbílasýning og
listgjörningar í Brimhúsinu
Hvenær? 13.00
Hvar? Geirsgata 11
Glæsileg sportbílasýning Porsche
klúbbsins og listgjörningar í Brim-
húsinu. Slagverksmeistarinn
Helgi Svavar Helgson magnar upp
eggjandi takta á húdd, þak og felgur
virðulegrar Porsche bifreiðar.
Hvað? Ljóðasjoppa
Hvenær? 15.00
Hvar? Marina hótel, Mýrargötu
Skáldin Fríða Ísberg, Atli Sig-
þórsson og gestaskáldið M. Seven
Bremn er frá Seattle sitja við rit-
vélar og semja ljóð eftir pöntun
fyrir gesti og gangandi. Komdu
við í ljóðasjoppunni og fáðu þitt
persónulega ljóð sem er samið á
meðan þú bíður.
Hvað? Myndlistarmarkaður í Bíói
Paradís
Hvenær? 18.00
Hvar? Bíó Paradís
Hvað? Skemmtilegur Skúmaskots
ormur
Hvenær? 14.00
Hvar? Skúmaskot, Skólavörðustíg
Getur þú blásið sápukúlur?
Hoppað á öðrum fæti í parís? Farið
í limbó og húllahopp? Það skiptir
engu máli hversu vel tekst til en
það má reyna þetta allt fyrir utan
Skúmaskot á Menningarnótt. því
Skúmaskotsorminum verður breytt
í þrautabraut. Blöðrur fyrir alla sem
komast orminn á enda.
Hvað? Svikaskáld
Hvenær? 20.00
Hvar? Gröndalshús
Upplesturinn hefst stundvíslega
klukkan 20. Á eftir Svikaskáldum
stíga skáld Blekfjelagsins á svið.
Svikaskáld eru: Ragnheiður Harpa
Leifsdóttir, Sunna Dís Másdóttir,
Melkorka Ólafsdóttir, Þórdís Helga-
dóttir, Þóra Hjörleifsdóttir, Fríða
Ísberg.
Hvað? Fjölskyldustund | Kubbkeppni
Hvenær? 13.00
Hvar? Bókasafn Kópavogs
Keppt verður í spilinu Kubb á úti-
vistarsvæði Menningarhúsanna.
Frábær skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna. Fjölskyldustundir á
laugardögum eru í boði Menn-
ingarhúsanna í Kópavogi.
Hvað? Vöfflur, hamingjuhopp og
fleira í JCI húsinu
Hvenær? 14.00
Hvar? JCI húsið, Hellusundi 3
JCI Ísland býður heim í vöfflur á
Menningarnótt. Ýmislegt skemmti-
legt verður í boði á staðnum bæði
úti og inni, t.d. getur þú tekið ham-
ingjuhopp sem kemur skemmtilega
á óvart. Inni í húsi verður kynning
á starfsemi JCI. Kíktu í heimsókn í
fallega húsið í Þingholtunum milli
kl. 14-17.
Hvað? Fuglar tálgaðir úr íslensku birki
Hvenær? 17.00
Hvar? Landnámssýningin
Á Menningarnótt mun Rúnar Ást-
valdsson hagleiksmaður sitja inni
á Landnámssýningunni milli kl. 17
og 20 og tálga út afar fallega fugla úr
íslensku birki. Komið og fylgist með
fallegu handverki verða til. Hægt
verður að kaupa fuglana af Rúnari á
staðnum.
Hvað? Teymt undir börnum
Hvenær? 14.00
Hvar? Þjóðminjasafnið
Teymt undir börnum á grasflöt
sunnan við Þjóðminjasafn Íslands.
Í Bogasal er nú sýningin Prýðileg
reiðtygi en þar má sjá fagurlega
skreytta gripi sem tengjast hesta-
mennsku. Því fá börn nú að setjast
á bak og verður teymt undir þeim
stuttan hring á Menningarnótt fyrir
utan Þjóðminjasafnið.
Hvað? Varðskipið Óðinn
Hvenær? 13.00
Hvar? Sjóminjasafnið
Varðskipið Óðinn verður opið fyrir
gesti á Menningarnótt milli kl. 13
og 19. Fyrrverandi varðskipsliðar
standa vaktina og taka á móti gest-
um en þeir hafa siglt um heimsins
höf og hafa frá mörgu skemmtilegu
að segja um lífið um borð á árum
áður.
Tónlist
Hvað? Babies ball
Hvenær? 23.05
Hvar? Gamla bíó
Babies er cover-ballhljómsveit sem
gerir mikið stuð og mikið gaman.
Þau spila fjölbreytta tónlist, allt frá
fiftís lögum til laga sem gefin voru
út í fyrra. Það ætti enginn að láta
þessa veislu fram hjá sér fara. Frítt
inn og allir velkomnir (18 ára og
yngri í fylgd með fullorðnum).
Hvað? Garðpartí Bylgjunnar
Hvenær? 18.00
Hvar? Hljómskólagarðurinn
Kl. 18.15 Karma Brigade
Hipphopphátíð verður á Ingólfstorgi, einu tónleikarnir á Menningarnótt þar sem eingöngu verður einblínt á hipphopp. FréttablaðIð/anton brInk
Hljóðlistamaðurinn Curver thoroddsen verður á Sjóminjasafninu kl. 13-17
og skapar neðansjávarhljóðheim með aðstoð gestanna. FréttablaðIð/HeIða
bjórhátíð Samtaka íslenskra
handverksbrugghúsa og Fágun
kynnir sitt starf á klambratúni.
FRÍKIRKJAN - FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN - LOGO B3
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
Í FULLUM LITUM / TVÍLITT1 LITUR - GRÁTÓNAR 1 LITUR - STIMPLAR - GYLLING
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
Menningarnótt
í Fríkirkjunni kl. 21
Tímalausir textar, vísur og
vangaveltur.
Guðrún Gunnarsdóttir söngkona,
Gunnar Gunnarsson píanóleikari og
Þorgímur Jónsson bassaleikari
flytja lög sem snerta hjartans strengi ásamt nýjum
lögum af væntanlegri plötu Guðrúnar sem kemur
út í haust.
1 8 . á g ú s T 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R40 m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð
menning
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
A
-0
D
9
0
2
0
9
A
-0
C
5
4
2
0
9
A
-0
B
1
8
2
0
9
A
-0
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K