Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 52
Viltu hjálpa til við að vegfarendur komist greiðlega og örugglega um þjóðvegina - jafnvel á veturna? Vegagerðin leitar að starfsfólki í vaktstöðina í Reykjavík Við bjóðum Starf hjá Vegagerðinni í teymisvinnu við að tryggja öruggar og greiðar samgöngur um þjóðvegi landsins. Við bjóðum upp á starf þar sem þú leggur þitt að mörkum til að vegfarendur komist greið- lega á áfangastað, eða sérð til þess að upplýst sé um truflun eða hindrun í tæka tíð vegfarandanum til hagsbóta. Verkefnin Vaktstöð Vegagerðarinnar starfar allan sólarhringinn allt árið um kring. Þar fer fram vöktun á veðri og færð, vöktun á ástandi vega og vegbúnaðar, boðun viðbragðsaðila, samræming aðgerða og miðlun upplýsinga. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun æskileg • Haldgóð reynsla sem nýtist í starfi • Góð almenn tölvufærni og innsláttarhraði • Almenn ökuréttindi • Hæfni til að meta og vinna með tölulegar upplýsingar • Góð kunnátta í ræðu og riti á íslensku og á ensku • Öguð vinnubrögð, skipulagshæfni og metnaður í starfi. • Góðir samstarfs- og samskiptaeiginleikar. • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt og sem hluti af teymi. • Gott heilbrigði (stundum einmennt á vakt!) Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 3. september 2018. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er. Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.vegagerdin.is Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Pálsson forstöðumaður þjónustudeildar í síma 522-1000 Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. STÖRF Í VAKTSTÖÐ VEGAGERÐARINNAR Í REYKJAVÍK Sölumenn óskast - hlutastarf Innflutningsfyrirtæki með snyrtivörur, hárvörur, barnavörur o.fl. óskar eftir jákvæðum og metnaðar- fullum sölumönnum í framtíðarstörf. Starf sölumanns í verslanir og víða felst t.d. í: • Kynningu og sölu á vörum. • Eflingu núverandi viðskiptasambanda og öflun nýrra. • Framsetning vara í verslunum. Starf sölumanns í hávörum felst t.d. í: • Kynningu og sölu á hárvörum og tengdum vörum. • Efling viðskiptasambanda og öflun nýrra. • Námskeiðahald. Hæfniskröfur: • Búa yfir góðri þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptu. • Metnaðarfullur, hafa góða skipulagshæfni og geta unnið sjálfstætt. • Góð kunnátta í íslensku og ensku. • Almenn tölvukunnátta og bílpróf nauðsyn. • Reynsla af sölustörfum er kostur. • Sölumaður fyrir hárvörur þarf að hafa menntun í greininni. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist fyrir 27.08.2018 á atvinna@frettablaid.is merkt Sölumenn-hlutastörf. GRINDAVÍKURBÆR GRINDAVÍKURBÆR Spennandi störf hjá Grindavíkurbæ Grindavíkurbær auglýsir stöður tveggja sviðsstjóra lausar til umsóknar, þ.e. starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum leiðtogum í störfin. Starfshlutföll eru 100%. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Konur, jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um. Auk faglegrar hæfni, sem tilgreind er sérstaklega fyrir hvort starf, er sú krafa gerð til umsækjenda að þeir hafi mikla samskipta- og skipulags- hæfni og getu til að stjórna breytingum ásamt hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á einfaldan hátt. Reynsla af stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er mikilvæg. Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga er æskileg. Þá er krafist góðrar kunnáttu í íslensku í ræðu og riti. Nánari upplýsingar um starfið veitir Fannar Jónasson bæjarstjóri í síma 420 1100 og með tölvupósti fannar@grindavik.is. Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst nk. og skulu umsóknir sendar á framangreint netfang eða berast bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62, 240 Grindavík, merkt „Sviðsstjóri – umsókn“. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál, en listi umsækjenda verður opinber að umsóknarfresti liðnum. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Meðal helstu verkefna • Umsjón með stefnumótun í þeim málaflokkum sem undir hann heyra í samvinnu við fagnefnd sviðsins • Starfar í samræmi við skipulagslög, mannvirkjalög og önnur lög sem heyra undir verksviðið • Ber ábyrgð á skipulagsgerð og útgáfu framkvæmdaleyfa • Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir fagnefnd sviðsins og bæjarráð ásamt eftirfylgni mála Menntunar- og hæfniskröfur • Tæknimenntun á háskólastigi og réttindi til að starfa sem skipu- lagsfulltrúi • Reynsla af ráðgjafa- og stjórnunarstörfum vGóð þekking á lögum og reglugerðum tengdum bygginga- og skipulagsmálum • Góð tölvukunnátta og þekking á ýmsum hugbúnaði varðandi byggingarmál • Sjálfstæði og frumkvæði Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Meðal helstu verkefna • Yfirumsjón og ábyrgð á íþrótta-, frístunda-, forvarna og mennin- garmálum ásamt þjónustu við íbúa á þessum sviðum • Gerð starfs- og fjárhagsáætlana • Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir fagnefnd sviðsins og bæjarráð ásamt eftirfylgni mála • Að skipuleggja viðburði og hátíðir í Grindavík Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af stjórnun verkefna og rekstri • Færni á sviði upplýsingatækni og miðlunar • Sjálfstæði og frumkvæði Grindavík er 3.400 manna bær sem hefur vaxið hratt í seinni tíð. Íbúafjölgunin er um 20% undanfarin 10 ár. Grindavík er einn öflugasti útgerðar- bær landsins með kraftmiklum og vel reknum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum. Ferðamönnum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár í takt við aukna ferðaþjónustu og Bláa Lónið, fjölsóttasti ferðamannastaður landsins, er í anddyri bæjarins. Grindavík leggur áherslu á fjölskyldugildi. Grindavík er einn öflugasti íþróttabær landsins og styður vel við íþróttastarf barna með niðurgreiddum æfingagjöldum. Í Grindavík er öflugur grunnskóli með niðurgreiddan skólamat og niðurgreidd námsgögn. Í Grindavík eru hagstæð leikskóla- gjöld, lágt útsvar og lág fasteignagjöld. Grindavík er landmikið bæjarfélag, náttúrufegurð er mikil, stutt í margrómaðar gönguleiðir, fuglalíf mikið í klettum meðfram ströndinni við Reykjanestá, og góður 18 holu golfvöllur í skemmtilegu umhverfi við sjóinn. ÖFLUGUR VERKEFNASTJÓRI Köfunarþjónustan óskar eftir öflugum verkefnastjóra í fjölbreytt og lifandi starf. Við erum stærsta atvinnukafaraþjónusta landsins með mikla reynslu og þekkingu. Einnig veitum við margs konar þjónustu varðandi rannsóknir á botni sjávar svo sem fjölgeislamælingar og kjarnaborun. Þar að auki sinnum við alls konar sérhæfðri verktöku sem krefst þekkingar, útsjónarsemi og áræðni. Fyrirtækið flytur í nýjar bækistöðvar á næstunni, sérstaklega hannaðar fyrir starfssemina. Héðinsgata 1-3 | 105 Reykjavík | Sími 863 5699 | diving@diving.is Áhugasamir sendi ferilskrá og meðmæli á hallgrimur@diving.is. Varðandi frekari upplýsingar, vinsamlega hafa samband við Hallgrím Ingólfsson á hallgrimur@diving.is eða í síma +354-893-8303. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Góð laun fyrir réttan aðila. Verkefnaöflun og sölustjórn Tilboðsgerð og verðútreikningar Útfærsla verka í samráði við starfsmenn og verkkaupa Verkstjórn ákveðinna verka Verkefnaþróun og nýjungar Mikil verkþekking og reynsla Gott tengslanet, þegar kemur að verkefnaöflun Kostur að hafa tölvukunnáttu í DK, Excel og Word Góð enskukunnátta Sölumennskuhæfileikar Frumkvæði og útsjónarsemi Skipulagshæfileikar Ákveðni og sjálfstæði Jákvæðni og hæfileiki til að vinna í hópi STARFSSVIÐ/ÁBYRGÐ HÆFNISKRÖFUR EIGINLEIKAR www.kafari.is 20 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 8 . ÁG Ú S T 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -6 1 8 0 2 0 9 A -6 0 4 4 2 0 9 A -5 F 0 8 2 0 9 A -5 D C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.