Fréttablaðið - 18.08.2018, Side 52
Viltu hjálpa til við að vegfarendur komist greiðlega og örugglega
um þjóðvegina - jafnvel á veturna?
Vegagerðin leitar að starfsfólki í vaktstöðina í Reykjavík
Við bjóðum
Starf hjá Vegagerðinni í teymisvinnu við að tryggja öruggar og
greiðar samgöngur um þjóðvegi landsins. Við bjóðum upp á starf
þar sem þú leggur þitt að mörkum til að vegfarendur komist greið-
lega á áfangastað, eða sérð til þess að upplýst sé um truflun eða
hindrun í tæka tíð vegfarandanum til hagsbóta.
Verkefnin
Vaktstöð Vegagerðarinnar starfar allan sólarhringinn allt árið um
kring. Þar fer fram vöktun á veðri og færð, vöktun á ástandi vega og
vegbúnaðar, boðun viðbragðsaðila, samræming aðgerða og miðlun
upplýsinga.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun æskileg
• Haldgóð reynsla sem nýtist í starfi
• Góð almenn tölvufærni og innsláttarhraði
• Almenn ökuréttindi
• Hæfni til að meta og vinna með tölulegar upplýsingar
• Góð kunnátta í ræðu og riti á íslensku og á ensku
• Öguð vinnubrögð, skipulagshæfni og metnaður í starfi.
• Góðir samstarfs- og samskiptaeiginleikar.
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt og sem hluti af teymi.
• Gott heilbrigði (stundum einmennt á vakt!)
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt
báðum kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi
stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 3. september 2018. Umsóknir berist
Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is. Í umsókninni komi
fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun
og hæfni sem óskað er.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.vegagerdin.is
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Pálsson forstöðumaður
þjónustudeildar í síma 522-1000
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
STÖRF Í VAKTSTÖÐ
VEGAGERÐARINNAR
Í REYKJAVÍK
Sölumenn óskast
- hlutastarf
Innflutningsfyrirtæki með snyrtivörur, hárvörur,
barnavörur o.fl. óskar eftir jákvæðum og metnaðar-
fullum sölumönnum í framtíðarstörf.
Starf sölumanns í verslanir og víða felst t.d. í:
• Kynningu og sölu á vörum.
• Eflingu núverandi viðskiptasambanda og öflun nýrra.
• Framsetning vara í verslunum.
Starf sölumanns í hávörum felst t.d. í:
• Kynningu og sölu á hárvörum og tengdum vörum.
• Efling viðskiptasambanda og öflun nýrra.
• Námskeiðahald.
Hæfniskröfur:
• Búa yfir góðri þjónustulund, jákvæðni og hæfni í
mannlegum samskiptu.
• Metnaðarfullur, hafa góða skipulagshæfni og geta
unnið sjálfstætt.
• Góð kunnátta í íslensku og ensku.
• Almenn tölvukunnátta og bílpróf nauðsyn.
• Reynsla af sölustörfum er kostur.
• Sölumaður fyrir hárvörur þarf að hafa menntun
í greininni.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist fyrir 27.08.2018
á atvinna@frettablaid.is merkt Sölumenn-hlutastörf.
GRINDAVÍKURBÆR
GRINDAVÍKURBÆR
Spennandi störf hjá Grindavíkurbæ
Grindavíkurbær auglýsir stöður tveggja sviðsstjóra lausar til umsóknar, þ.e. starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og starf sviðsstjóra
frístunda- og menningarsviðs.
Leitað er að öflugum og metnaðarfullum leiðtogum í störfin. Starfshlutföll eru 100%. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Konur, jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um.
Auk faglegrar hæfni, sem tilgreind er sérstaklega fyrir hvort starf, er sú krafa gerð til umsækjenda að þeir hafi mikla samskipta- og skipulags-
hæfni og getu til að stjórna breytingum ásamt hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á einfaldan hátt. Reynsla af stefnumótandi áætlanagerð og
gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er mikilvæg. Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga er æskileg. Þá er krafist góðrar kunnáttu í íslensku
í ræðu og riti.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fannar Jónasson bæjarstjóri í síma 420 1100 og með tölvupósti fannar@grindavik.is.
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst nk. og skulu umsóknir sendar á framangreint netfang eða berast bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar að
Víkurbraut 62, 240 Grindavík, merkt „Sviðsstjóri – umsókn“. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál, en listi umsækjenda verður
opinber að umsóknarfresti liðnum. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Meðal helstu verkefna
• Umsjón með stefnumótun í þeim málaflokkum sem undir hann
heyra í samvinnu við fagnefnd sviðsins
• Starfar í samræmi við skipulagslög, mannvirkjalög og önnur lög
sem heyra undir verksviðið
• Ber ábyrgð á skipulagsgerð og útgáfu framkvæmdaleyfa
• Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir fagnefnd
sviðsins og bæjarráð ásamt eftirfylgni mála
Menntunar- og hæfniskröfur
• Tæknimenntun á háskólastigi og réttindi til að starfa sem skipu-
lagsfulltrúi
• Reynsla af ráðgjafa- og stjórnunarstörfum
vGóð þekking á lögum og reglugerðum tengdum bygginga- og
skipulagsmálum
• Góð tölvukunnátta og þekking á ýmsum hugbúnaði varðandi
byggingarmál
• Sjálfstæði og frumkvæði
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
Meðal helstu verkefna
• Yfirumsjón og ábyrgð á íþrótta-, frístunda-, forvarna og mennin-
garmálum ásamt þjónustu við íbúa á þessum sviðum
• Gerð starfs- og fjárhagsáætlana
• Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir fagnefnd
sviðsins og bæjarráð ásamt eftirfylgni mála
• Að skipuleggja viðburði og hátíðir í Grindavík
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af stjórnun verkefna og rekstri
• Færni á sviði upplýsingatækni og miðlunar
• Sjálfstæði og frumkvæði
Grindavík er 3.400 manna bær sem hefur vaxið hratt í seinni tíð. Íbúafjölgunin er um 20% undanfarin 10 ár. Grindavík er einn öflugasti útgerðar-
bær landsins með kraftmiklum og vel reknum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum. Ferðamönnum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár í takt
við aukna ferðaþjónustu og Bláa Lónið, fjölsóttasti ferðamannastaður landsins, er í anddyri bæjarins.
Grindavík leggur áherslu á fjölskyldugildi. Grindavík er einn öflugasti íþróttabær landsins og styður vel við íþróttastarf barna með niðurgreiddum
æfingagjöldum. Í Grindavík er öflugur grunnskóli með niðurgreiddan skólamat og niðurgreidd námsgögn. Í Grindavík eru hagstæð leikskóla-
gjöld, lágt útsvar og lág fasteignagjöld.
Grindavík er landmikið bæjarfélag, náttúrufegurð er mikil, stutt í margrómaðar gönguleiðir, fuglalíf mikið í klettum meðfram ströndinni við
Reykjanestá, og góður 18 holu golfvöllur í skemmtilegu umhverfi við sjóinn.
ÖFLUGUR
VERKEFNASTJÓRI
Köfunarþjónustan óskar eftir öflugum verkefnastjóra í fjölbreytt og lifandi starf.
Við erum stærsta atvinnukafaraþjónusta landsins með mikla reynslu og þekkingu.
Einnig veitum við margs konar þjónustu varðandi rannsóknir á botni sjávar svo sem
fjölgeislamælingar og kjarnaborun. Þar að auki sinnum við alls konar sérhæfðri verktöku
sem krefst þekkingar, útsjónarsemi og áræðni. Fyrirtækið flytur í nýjar bækistöðvar á
næstunni, sérstaklega hannaðar fyrir starfssemina.
Héðinsgata 1-3 | 105 Reykjavík | Sími 863 5699 | diving@diving.is
Áhugasamir sendi ferilskrá og meðmæli á
hallgrimur@diving.is. Varðandi frekari
upplýsingar, vinsamlega hafa samband við
Hallgrím Ingólfsson á hallgrimur@diving.is eða
í síma +354-893-8303. Allar umsóknir eru
meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Góð laun fyrir réttan aðila.
Verkefnaöflun og sölustjórn
Tilboðsgerð og verðútreikningar
Útfærsla verka í samráði við
starfsmenn og verkkaupa
Verkstjórn ákveðinna verka
Verkefnaþróun og nýjungar
Mikil verkþekking og reynsla
Gott tengslanet, þegar kemur að
verkefnaöflun
Kostur að hafa tölvukunnáttu í DK,
Excel og Word
Góð enskukunnátta
Sölumennskuhæfileikar
Frumkvæði og útsjónarsemi
Skipulagshæfileikar
Ákveðni og sjálfstæði
Jákvæðni og hæfileiki til að
vinna í hópi
STARFSSVIÐ/ÁBYRGÐ HÆFNISKRÖFUR EIGINLEIKAR
www.kafari.is
20 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 8 . ÁG Ú S T 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-6
1
8
0
2
0
9
A
-6
0
4
4
2
0
9
A
-5
F
0
8
2
0
9
A
-5
D
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K