Fréttablaðið - 18.08.2018, Side 8

Fréttablaðið - 18.08.2018, Side 8
E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 3 0 0 H y u n d a i IO N IQ R a f b íl l 5 x 2 0 á g ú s t Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is Hyundai hefur haslað sér völl sem einn framsæknasti bílaframleiðandi heims á sviði raf- og vetnistækni. Við bjóðum IONIQ rafbílinn í þremur glæsilegum útfærslum. IONIQ rafbílalína Hyundai er sú eina sinnar tegundar á markaðnum og spannar allt frá 100% rafbíl til Hybrid og tengjanlegra Plug-in Hybrid tvinnbíla sem hafa unnið til fjölda umhverfisverðlauna á undanförnum misserum. Hyundai IONIQ 100% rafbíll. Verð frá: 3.590.000 kr. TIL AFGREIÐSLU STRAX! Drifinn af spennu. 100% rafbíll ÞRJÁR RAFMAGNAÐAR GERÐIR OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16 GEIMVÍSINDI Vatn er að öllum lík- indum afar stór hluti af náttúru fjarreikistjarna – reikistjarna utan okkar sólkerfis – sem eru tvisvar til fjórum sinnum stærri en Jörðin. Jarðefnafræðingar sem rýnt hafa í stærð og massa tæplega fjögur þúsund staðfestra og grunaðra fjar- reikistjarna kynntu niðurstöður sínar á Goldsmith-ráðstefnunni í Boston í gærkvöldi. Fyrstu fjarreikistjörnurnar fund- ust árið 1992. Þær voru á sveimi í kringum tifstjörnu í 2.300 ljósára- fjarlægð frá Jörðu, í stjörnumerki Meyjunnar. Síðan þá hafa vísinda- menn freistað að varpa ljósi á eðli og náttúru þessara reikistjarna svo hægt sé að meta lífvænleika þeirra. Vísindamenn við Harvard- háskóla rýndu í gögn frá Kepler- geimsjónaukanum og stjarn- mælingageimfarinu Gaia og báru saman radíus fjarreikistjarna og áætlaðan massa þeirra. Fyrri niður- stöður gefa sterklega til kynna að flestar fjarreikistjörnur falla í tvo flokka, annars vegar reikistjörnur sem er í kringum 1,5 sinnum stærri en Jörðin, og hins vegar reiki- stjörnur sem eru 2,5 sinnum stærri en Jörðin. Vísindamennirnir hafa nú kynnt líkan sem útskýrir tengsl massa fjarreikistjarna og radíuss þeirra. Líkanið gefur til kynna að fjar- reikistjörnur sem eru 1,5 stærri Vatn víða að finna á fjarlægum plánetum Vísindamenn við Harvard-háskóla segja líklegt að stór hluti þeirra fjarreikistjarna, eða reikistjarna á braut um aðrar stjörnur, sem fund- ist hafa síðan 1992 séu ríkar af vatni, bæði vatnsgufu og vatni í jarðlögum. Ný kynslóð geimsjónauka mun meta lífvænleika þeirra. Fjarreikistjarnan Proxima b er á spor- braut um stjörnuna Proxima, sem er næsti nágranni okkar í alheiminum. Reikistjarnan er talin vera grýtt. NoRdicPhotos/Getty ✿ 1. flokkur Radíus: 1,5 x Jörðin Líklegri til að vera grýttar ✿ 2. flokkur Radíus: 2,5 x Jörðin Líklegri til að vera vatnaveraldir 35% fjarreikistjarna sem eru stærri en Jörðin eru að líkindum ríkar af vatni Vísindamenn hafa staðfest tilvist 3.815 fjarreiki- stjarna í 2.853 sólkerfum. en Jörðin séu yfirleitt grýttar og í kringum 5 sinnum massameiri en Jörðin. Aftur á móti eru stærri fjarreikistjörnurnar, þær sem eru 2,5 stærri en Jörðin og 10 sinnum massameiri, að öllum líkindum vatnaveraldir. „Þetta er vatn, en ekki vatn sem er jafn auðfundið og hér á Jörðinni,“ segir Li Zeng hjá Harvard-háskóla. „Yfirborð þessara fjarreikistjarna er í kringum 200 til 500 gráða heitt. Þannig gæti yfirborðið verið þakið lofthjúpi sem samanstendur fyrst og fremst af vatnsgufu, á meðan vatn í fljótandi formi er að finna í jarðlögum.“ Zeng segir að í kringum 35 pró- sent þeirra fjarreikistjarna sem eru stærri en Jörðin séu líklega ríkar af vatni. „Þessar tilteknu reikistjörnur mynduðust líklega með svipuðum hætti og kjarnar stærstu reiki- stjarna í okkar sólkerfi. TESS-geim- sjónaukinn, sem nýlega var skotið á loft, mun finna mun fleiri slíkar fjarreikistjörnur. Næsta kynslóð geimsjónauka, James Webb-geim- sjónaukinn nánar tiltekið, mun síðan vonandi geta greint loft- hjúp þeirra,“ sagði Zeng. „Þetta eru spennandi tímar fyrir þá sem hafa áhuga á fjarlægum veröldum.“ kjartanh@frettabladid.is 1 8 . á G ú S t 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R8 f R é t t I R ∙ f R é t t A B L A ð I ð 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -3 5 1 0 2 0 9 A -3 3 D 4 2 0 9 A -3 2 9 8 2 0 9 A -3 1 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.