Fréttablaðið - 18.08.2018, Síða 18

Fréttablaðið - 18.08.2018, Síða 18
Bentu á þann sem að þér þykir bestur… Menningarnótt er eflaust í uppáhaldi hjá mörgum. Fréttablaðið/andri Marinó tónaflóð rásar 2 við arnarhól kl. 20.00-23.00 Það er nauðsynlegt og sjálfsagt að íslenskri dægurtónlist sé gert hátt undir höfði á þessum degi enda er Ísland hvað þekktast út á við fyrir þennan þátt og dægurtón- listarsenan rík, virk, skemmtileg og fjölskrúðug. Margsannað og -reynt. Þessi uppákoma skiptir máli og Rás 2 gerir vel í því að úthugsa dag- skrána, upp á flæði, aldur o.s.frv. Rapparar og „r og b“ listamenn keyra þetta í gang, Prins Póló svo með súrrelískar hversdagslýsingar, Írafár með poppið og svo Tod- mobile með allra handa lokahnút. Almennilegt! Hipphopp á ingólfstorgi kl. 18.00-22.00 Eðlilega hvet ég gesti á öllum aldri, og þá sérstaklega þá sem trúa því einlæglega að „tónlistin hafi verið mun betri í gamla daga“ að koma við á gamla Hallærisplaninu (þar sem pönkið undi sér vel) og nema það sem ungviðið er að gera í hipphopplistinni – tónlistinni sem hefur nú formlega leyst rokkið af sem tónlist unga fólksins og hvað vinsældir á heimsvísu varðar. Þeir sem eru enn ekki vaknaðir og búnir að finna lyktina af kaffinu geta snarlega bætt úr því með heimsókn hingað. döbbskúrinn, Vitastíg 17 kl. 12.30-23.15 Júlíus Ólafsson, tónlistarmaður, stórmeistari og Can-áhugamaður heldur utan um döbbskúrinn. Garðskúr Júlíusar fær endurnýjaðan tilgang og mun eima frá sér svell- köldu döbbi, ættuðu frá Jamaíka, frá hádegi og fram að miðnætti. Plötusnúðar skiptast á að veiða upp gamalt og nýtt döbb og smellti sá sem þetta ritar í eina syrpu síðast þegar skúrinn var opinn. Mér skilst svo að hann verði ekkert endilega bundinn við þessa slakandi stefnu í ár og hreinlega allt geti gerst á Vita- stígnum, enda þekkir góð tónlist engin mæri né mörk. Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarblaðamaður og doktorsnemi í tónlistarfræðum Jóna Ottesen stofnandi Kátt á Klambra Ævintýraleg bókverkasmiðja í Safnahúsinu kl. 14.00-16.00 Eftir að hafa rennt í gegnum dag- skrána líst mér best á Ævintýralegu bókverkasmiðjuna í Safnahúsinu. Ég hef sérlegan áhuga á bóka- og bókverkagerð. Svo er námskeiðið líka fyrir börn og fullorðna sem er mjög gott því ég hef meiri áhuga á að taka þátt heldur en að húka í dyragættum með úlpur í fanginu á meðan börn skemmta sér. tímagöng til 1918, aðalstræti 10 kl. 12.00-15.00 Ég er forvitin um sýninguna tíma- göng til 1918 sem hefur eitthvað að gera með sýndarveruleikagleraugu. Bæði er sýndarveruleiki áhugaverð- ur og svo hef ég verið með frosta- veturinn mikla 1918 á heilanum eftir þetta ömurlega sumar. Geimskipið Jörð í Hljómskála- garðinum kl. 13.00-17.00 Geimskipið Jörð í Hljómskálagarð- inum hljómar eins og áhugaverð sýning. Þrjár ungar listakonur sem verða með hvelfingar sem hægt er að skyggnast inn í og skoða stjörnur, ský og geislavirkni í þoku- hylki. Það hlýtur að vera áhugavert. Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistarkona og söngkona FM Belfast CGFC og Halldór Eldjárn: naUHJ! a visual laboratory í Mengi kl. 13.00-18.00 Þeir sem ekki hafa heyrt um graf- alvarlega flipplistahópinn CGFC verða að skilja tvennt: Kapítalism- inn er úr sér genginn og diskó er æðsta listformið. Það segja þau að minnsta kosti, þetta frábæra sviðs- lista- og prjónalistafólk sem snýr þarna bökum saman. Þau verða með fimm klukkutíma gjörning í Mengi ásamt Halldóri Eldjárn, poppstjörnu og tölvunörd. Búast má við analog tæknibrellum, tón- list, leysigeislum og garni. Menningarnótt á óðinsgötu kl. 13.30-21.00 Spaðabani er klárlega ein besta hljómsveit allra tíma. Það vita allir sem hafa hundsvit á menningu og listum. Færri vita þó að hljóm- sveitin byrjaði sem femínísk rann- sókn og sviðslistaverk. Þannig getur fólk farið með sviðslistagleraugun á pönktónleika í alræmda hljóm- sveitagreninu við Óðinsgötu 15. Nú eða bara engin gleraugu, bara opin og pönkþyrst eyru, það má líka. Mig minnir líka að Hórmenni séu að spila. Spunamaraþon improv Ísland í Þjóðleikhúskjallaranum kl. 17.00-22.00 Meðal sviðslistafólks þykir sérlega asnalegt að hafa ekki farið á að minnsta kosti tvö „improv“ nám- skeið. Þessu hef ég oft fundið fyrir, enda vil ég ekkert með slík nám- skeið hafa. Við eigum orðið prýði- legt landslið í þessu furðulega sporti, spunagríni, og ef fólk hefur látið það fram hjá sér fara er um að gera að fara á spunamaraþon í Þjóðleikhúskjallaranum. Að lokum skal bent á að vilji fólk ekki fara úr húsi getur það pantað Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur sviðshöfund heim til sín í húslestur. Matthías Tryggvi Haraldsson nýútskrifaður af sviðshöfundabraut LHÍ og söngvari Hatara Fréttablaðið fékk fjóra menningarmógúla til þess að velja sér þrjá skemmtilega viðburði á Menningarnótt sem höfða til þeirra. Þau Arnar Eggert, Jóna, Lóa og Matthías Tryggvi mæla með nokkrum góðum. Skemmtiskokk í lækjargötu kl. 12.15-13.15 Stelpan mín fór í fyrra og það var mjög gaman. Georg og leik- hópurinn Lotta halda uppi stuðinu og allir fá medalíu fyrir þátttöku. Frábært að virkja hana í að hlaupa, hún dregur mig þá kannski af stað næsta sumar! ratleikur og lengsta landslagið á Kjarvalsstöðum kl. 15.00-20.00 Á Kjarvalsstöðum verður skemmti legur ratleikur þar sem börn og foreldrar geta leyst þrautir saman. Þar er einnig skemmtileg smiðja þar sem börn geta tekið þátt í að mála lengsta landslagið, sem er málað í sameiningu á stóran renning. Þetta eru allt skemmtilegir viðburðir þar sem börn og foreldrar geta leikið sér saman og tekið þátt. Æskusirkusinn, við útitaflið í lækjargötu kl. 14.00-15.00 Þá næst skellum við okkur á þessa flottu sýningu þar sem börn sýna listir sínar innblásnar af þeirra uppáhaldskvikmyndum. 1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R18 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð helgin 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -0 3 B 0 2 0 9 A -0 2 7 4 2 0 9 A -0 1 3 8 2 0 9 9 -F F F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.