Fréttablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 20
Fleiri myndir má nálgast á
+Plús síðu Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er
eingöngu í Fréttablaðs-
appinu eða í PDF-útgáfu
blaðsins sem er aðgengi-
leg á frettabladid.is.
+Plús
Tómas
Guðbjartsson
læknir og nátt-
úruunnandi og
sigtryggur Ari
Jóhannsson
ljósmyndari
fjalla um sér-
stæðar perlur í
íslenskri náttúru.
Jarlhettur eru tæplega 15 kílómetra röð um 20 móbergstinda við Eystri-Hagafellsjökul í Langjökli, sem teygja sig frá Hagavatni í suðri til Skálpaness í norðri. Tindarnir urðu til við sprengigos undir jökli og rísa flestir um 200 til 300 metra yfir nágrenni sitt. Þetta eru ósnortin
víðerni eins og þau gerast best, en nánast línu-
lega tindaröðina umlykja svartir og ljósbrúnir
sandflákar með vötnum og jökultjörnum. Skammt
undan er Langjökull og minnir umhverfið helst á
atriði úr bíómynd um Hringadróttinssögu. Jarlhettur
koma við sögu í stórmyndinni Oblivion þar sem Tom
Cruise situr á toppi einnar Hettunnar og virðir fyrir
sér fljúgandi geimskip yfir Kili.
Nafngift Jarlhettna hefur löngum valdið heila-
brotum og sumir telja þær kenndar við eina jarl
Íslandssögunnar, Gissur Þorvaldsson. Skemmtilegri
er sú kenning fræðimanna að nafnið hafi uppruna-
lega verið Járnhettur og síðar breyst í Jarlhettur, en
hjálmar á síðmiðöldum voru kallaðir járnhettur.
Óneitanlega líkjast margar af Hettunum hjálmum,
ekki síst Stóra-Jarlhetta (943 metrar), sem er þeirra
tilkomumest og sést best úr byggð. Flestir velja að
ganga á hana og tekur gangan 5-6 klukkustundir fram
og til baka. Ekki tekur nema tæpar þrjár stundir að
aka frá Reykjavík að Hagavatni og því hægt að gera
þetta að dagsferð. Austan við Hagavatn má leggja
bílum og tekur þá við auðveld 5 kílómetra ganga að
rótum Stóru-Hettu. Á leiðinni má toppa Stöku-Jarl-
hettu en af henni býðst frábært útsýni.
Í fyrstu eru lausar skriður upp Stóru-Jarlhettu en
ofar taka við móbergsklappir sem eru mikið augna-
konfekt. Efsti hluti þeirra er ókleifur en engu að
síður er þarna frábært útsýni í góðu veðri til Heklu,
Hlöðufells, Þórisjökuls, Hagavatns og syðri hluta
Langjökuls. Fyrir sprækt göngufólk er lítið mál að
toppa fleiri Hettur í sömu göngu. Tilvalið er að ganga
suður Jarlhettudal að skála Ferðafélags Íslands. Hann
er skammt frá útfallinu á Hagavatni sem vert
er að skoða.
Bíóleikmyndin
Jarlhettur
útsýnið frá toppi stóru-Jarlhettu er feikimagnað enda hafur landslagið verið notað í Hollywood-mynd. MYNDIR/ÓlAFUR MÁR BJÖRNssON
Það er nauðsynlegt að nærast á göngunni. Móberg í hlíðum Jarlhettna.
Göngufólk klungrast um klettabelti á leið sinni á tind stóru-Jarlhettu.
2 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F I m m t U D A G U r20 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
2
0
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
F
-4
2
8
C
2
0
D
F
-4
1
5
0
2
0
D
F
-4
0
1
4
2
0
D
F
-3
E
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K