Fréttablaðið - 20.09.2018, Page 52
2 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F I m m t U D A G U r36 m e n n I n G ∙ F r É t t A b L A ð I ð
PAOK
v
cHELsea
Í dag kl. 16:45
ARSENAL
v
VORSKLA
Í dag kl. 18:50
Tryggðu þér áskrift á stod2.is
v
kl. 16:45
Villarreal Rangers
kl. 18:50
vCeltic FC Rosenborg
KAUPTU STAKAN LEIK:
Leikarinn Nicolas Cage er skemmtilega skrýtið kræki-ber í helvíti Hollywoodsins. Ósmeykur, ef ekki bein-línis kærulaus, hefur hann
flakkað á milli kvikmyndagreina.
Leikið í hádramatískum myndum og
heiladauðum hasar. Myndum sem
áttu ekkert erindi í kvikmyndahús og
úrvalsmyndum sem margar hverjar
eru fyrir löngu orðnar sígildar.
Mögulega er Cage einfaldlega
meðvitaður um að það eru engin
lítil hlutverk til, bara litlir leikarar. Í
það minnsta virðist ekkert hlutverk
of ómerkilegt fyrir Cage og engin
hárgreiðsla of hallærisleg. Stundum
bjargar hann því sem bjargað verður
og stundum gerir hann illt verra.
Burtséð frá öllu þessu, brokk-
gengum ferlinum og sturlaðri feril-
skránni, verður samt aldrei af honum
tekið að hann er Nicolas Cage og ein-
hvern veginn er nú alltaf auðveldara
að elska hann en hata þótt sumar
myndir verði aldrei hægt að fyrir-
gefa; The Wicker Man, Ghost Rider
og Captain Corelli’s Mandolin svo
einhverjar séu nefndar.
Cage hefur verið tilnefndur til
Óskarsverðlauna í tvígang, fyrir
Adaptation 2003 og Leaving Las
Vegas 1996 þegar hann stóð uppi
sem sigurvegari. Ætli það segi síðan
ekki allt sem segja þarf um hlutfall
góðra mynda og vondra á ferli hans
að hann hefur verið tilnefndur sjö
sinnum til skammarverðlaunanna,
and-óskarsins, Golden Raspberry
Awards, fyrir hvorki meira né minna
en ellefu myndir:
The Wicker Man (2007), Ghost
Rider, National Treasure: Book of
Secr ets, Next (2008), Drive Angry,
Season of the Witch, Trespass (2012),
Ghost Rider: Spirit of Vengeance,
Seeking Justice (2013), Left Behind
(2015) og Snowden (2017).
Misskilinn dugnaður
Sjálfur hefur Cage sagt í viðtölum að
það fari í taugarnar á honum þegar
því er haldið fram að hann samþykki
að leika í hverju sem er og leiki
í of mörgum myndum bara til
þess að geta borgað skuldir
sínar. Hann sé bara Banda-
ríkjamaður þeirrar gerðar að hann
trúi á gildi vinnunnar. „En þegar
kvikmyndaleikur er annars vegar er
maður einhverra hluta vegna gagn-
rýndur fyrir að vinna.“
Nicholas Cage er 54 ára gamall og
hefur leikið í rúmlega 90 kvikmynd-
um á þeim 37 árum sem ferill hans
teygir sig yfir. Fyrsta kvikmyndahlut-
verk hans var í Fast Times at Ridge-
mont High og þá kallaði hann sig
Nicholas Coppola, enda bróðursonur
leikstjórans áhrifamikla Francis Ford
Coppola.
Cage stimplaði sig síðan almenni-
lega inn ári síðar í hlutverki pönkar-
ans Randy í Valley Girl. Það sama ár
fékk hann að spreyta sig undir stjórn
Francis frænda í Rumble Fish, þar
sem Matt Dillon og Mickey Rourke
voru í aðalhlutverkum. Coppola
tefldi litla frænda aftur fram 1984 og
þá í stóru hlutverki á móti sjálfum
Richard Gere í The Cotton Club.
Þótt Cage léti illa að stjórn Coppola
unnu þeir saman eina ferðina enn
1986 í gamanmyndinni Peggy Sue
Got Married þar sem Cage var í öðru
aðalhlutverkanna á móti einni vin-
sælustu leikkonu þess tíma, Kathleen
Turner. Í kjölfarið fékk Cage hlutverk
í Raising Arizona þeirra Coen-bræðra
og hjá Norman Jewison í Moonstruck
þar sem hann lék á móti Cher.
Ferillinn var þarna kominn á
hvínandi siglingu og Cage orðinn
einn áhugaverðasti ungi leikarinn í
Hollywood.
Hefndin er blóðug
Leikstjóranum Panos Cosmatos
virðist hafa tekist að kippa Cage í
gírinn með spennutryllinum Mandy.
Myndin verður frumsýnd á sérstakri
miðnætursýningu í Bíó Paradís
12. október en fyrstu dómar að utan
eru lofsamlegir og þá er það ekki síst
Cage sem er hrósað.
Myndin gerist 1983 og í henni
leikur Cage skógarhöggsmanninn
Red Miller og Andrea Riseborough
leikur eiginkonu hans, Mandy. Þau
búa ein, afskekkt og hamingjusöm úti
í skógi þar sem þau una hag sínum vel
við lestur fantasíubókmennta.
Veröld þeirra hrynur þegar trufl-
aður trúarsöfnuður ræðst inn á
heimilið og rænir Mandy. Við þetta
gengur Red af göflunum, tekur tæki
sín og tól (vélsög) og heldur í blóð-
ugan hefndarleiðangur.
Cage er vitaskuld einkar lagið
að bregða brjálæðisglampa í augu
og þykir fara á kostum í hlutverki
sínu þegar hann virkjar allar sínar
klikkuðustu og ýktustu hliðar með
miklum glæsibrag.
Tónlistin í Mandy hefur einnig
fengið mikið lof en hún er hinsta verk
kvikmyndatónskáldsins Jóhanns
Jóhannssonar sem lést fyrir skömmu.
Kraftmiklir og dáleiðandi tónar
Jóhanns eru sagðir falla fullkom-
lega að myndinni. Að þeir keyri upp
stemninguna og ráði miklu um
að myndin haldi áhorfendum
í álögum frá upphafi til enda.
thorarinn@frettabladid.is
Cage í hefndarhug
Nicholas Cage er um margt merkilegur leikari. Á löngum ferli hefur
hann leikið í ótrúlegu rusli og frábærum, jafnvel sígildum, kvikmynd-
um. Eftir mögur ár hrekkur hann í gamla gírinn í blóðuga hefndardram-
anu Mandy og virkjar sínar klikkuðustu hliðar með góðum árangri.
Nicholas Cage vílar ekki fyrir sér að leika í lélegum bíómyndum en sýnir nú loksins aftur sínar bestu hliðar þegar hann
gengur með vélsög milli bols og höfuðs á brjáluðum illmennum í hefndardramanu Mandy í Bíó Paradís í október.
Hárgreiðslan á Cage er það
versta við Con Air.
Tónlist Jóhanns Jóhanns-
sonar gefur Mandy bæði
kraft og seiðmagn.
5 bestu og 5 verstu
að mati ritstjórnar
Fréttablaðsins
Bestu
Con Air
Face/Off
The Rock
Wild at Heart
Kick-Ass
Verstu
The Wicker Man
8MM
Snake Eyes
Ghost Rider
Captain Corelli’s Mandolin
Bíó
2
0
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
F
-3
8
A
C
2
0
D
F
-3
7
7
0
2
0
D
F
-3
6
3
4
2
0
D
F
-3
4
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K