Fréttablaðið - 20.09.2018, Page 23
Efnahagslífið hefur rétt
úr kútnum með því að
kaupmáttur heimilanna
hefur náð sér á strik, en ævir
Íslendinga eru hættar að
lengjast. Mörg sár hrunsins
eru ógróin enn. Stjórnmála-
legt uppgjör hrunsins hefur
ekki enn farið fram. Hæsti-
réttur hefur að vísu dæmt 39
manns til næstum 100 ára
fangelsisvistar samanlagt
vegna lögbrota í tengslum
við hrunið, en mestmegnis
voru það millistjórnendur
sem fengu dóma meðan stór-
laxar sluppu.
Kæli- og frystiskápurRyksuga
Stál (kámfrír). „hyperFresh“-skúffa:
Tryggir lengur ferskleika grænmetis
og ávaxta. „lowFrost“-tækni.
H x b x d: 186 x 60 x 65 sm.
Orkuflokkur C. Útblástur A. Parkett
og flísar, flokkur A. Teppi, flokkur A.
Hljóð: 69 dB.
Fullt verð: 114.900 kr.
Fullt verð: 34.900 kr.
Tækifærisverð:
Tækifærisverð:
KG 36VVI32
BGLS 4POWER
89.900 kr.26.900 kr.
Orkuflokkur Öryggisgler
Tæki færi
Nýtt
Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum.
Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
ÖFLUG LAUSN
VIÐ HÁLSBÓLGU!
Bólgueyðandi og
verkjastillandi munnúði
við særindum í hálsi
Strefen-sprey-Lyfja-5x10.indd 1 23/08/2018 10:54
New York – Á laugardaginn var, 15. september, var þess minnzt um allan heim að
tíu ár voru liðin frá falli Lehman
Brothers bankans í New York,
mesta gjaldþroti í sögu Banda-
ríkjanna. Þessi sögufrægi banki
sem innflytjendur frá Bæjaralandi
höfðu stofnað 1850 hafði grafið sér
svo djúpa gröf að yfirvöldin treystu
sér ekki til að toga bankann upp á
bakkann. Öðrum bönkum og fyrir-
tækjum var bjargað með ærnum
tilkostnaði.
Átta til níu milljónir bandarískra
fjölskyldna misstu heimili sín.
Margir misstu aleiguna og einnig
vinnuna þar eð atvinnuleysi jókst
úr tæpum 5% af mannafla 2007
upp í tæp 10% 2010. Það var ekki
fyrr en 2016 að kaupmáttur meðal-
tekna bandarískra heimila varð
aftur eins og hann hafði verið 2007
– og einnig 1999: sem sagt, 17 ár í
súginn samanlagt.
Styttri ævir
Þetta er samt ekki allt. Meðalævi
Bandaríkjamanna hefur stytzt.
Nýfæddur Kani gat vænzt þess að
verða 79 ára 2014, 78,6 ára 2015
og 78,5 ára 2016. Ef ævilíkurnar
verða enn lægri 2017 eins og við
er að búast m.a. vegna þess að
72.000 Bandaríkjamenn létust þá
vegna of stórra lyfjaskammta, þá
verður það í fyrsta sinn síðan í fyrri
heimsstyrjöld að meðalævi Banda-
ríkjamanna styttist þrjú ár í röð,
2014-2017.
Aukin tíðni lifrarsjúkdóma af
völdum drykkjuskapar og fjölgun
sjálfsvíga leggjast á sömu sveif.
Rót vandans virðist mega rekja
til misskiptingar tekna, auðs og
menntunar. Fjöldi dauðsfalla
í örvæntingu (vegna of stórra
skammta, lifrarskemmda og sjálfs-
víga) stendur í öfugu hlutfalli við
menntun og í beinu sambandi við
kjörfylgi Trumps Bandaríkjafor-
seta 2016 sýslu fyrir sýslu. Þetta
er vert að hugleiða frekar en að
hælast um af verðbréfavísitölum
vestra sem sigla nú með himin-
skautum.
Frá Ameríku til Íslands
Hinn 6. október nk. verður þess
minnzt að tíu ár verða þá liðin
frá hruni bankanna hér heima.
Prófessorarnir Gylfi Zoëga í
Háskóla Íslands og Robert Aliber
í Háskólanum í Chicago gengust
fyrir ráðstefnu um bankahrunið og
eftirdrunur þess í Háskóla Íslands
fyrir skömmu með sérfræðingum
víðs vegar að og búast til að birta
fyrirlestra þeirra á bók. Þar verður
ýmsan fróðleik að finna.
Fróðlegt er að bera upprisu
Íslands úr rústum hrunsins við
upprisu Bandaríkjanna. Níu
þúsund íslenzkar fjölskyldur
misstu heimili sín eftir hrun. Það
er svipuð tala og í Bandaríkjunum
miðað við mannfjölda. Húsnæðis-
missirinn hefði orðið mun meiri
hefðu stjórnvöld ekki greitt fyrir
sértækri skuldaaðlögun (110%
leiðin). Kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna íslenzkra heimila var lægri
2016 en 2007 og 2008 (Hagstofan
á eftir að birta tölur fyrir 2017).
Kaupmáttur launa var ívið fljótari
að jafna sig og mældist fimmtungi
meiri 2017 en 2007. Það tók heim-
ilin því að jafnaði upp undir áratug
að rétta úr kútnum eftir hrun líkt
og í Bandaríkjunum og í fjármála-
kreppum víðs vegar um heiminn
langt aftur í tímann. Atvinnuleysi
á Íslandi jókst úr 2% af mannafla
2007 í tæp 8% 2010 líkt og í Banda-
ríkjunum.
Svo er eitt enn. Frá alda-
mótum til 2012 lengdist meðal-
Tíu ár frá hruni
ævi Íslendinga jafnt og þétt um
tæpa 3 mánuði á ári. Nokkru eftir
hrun hætti meðalævi Íslendinga
að lengjast skv. upplýsingum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Nýfæddur Íslendingur gat vænzt
þess að verða 82,4 ára 2012 og
einnig 2016.
Ekki er vitað hversu miklu
dauðsföll í örvæntingu valda um
þessa fordæmalausu stöðnun.
Vitað er þó að slíkum dauðsföllum
hefur fjölgað hratt síðustu ár. Þau
voru 30 í fyrra skv. upplýsingum
landlæknisembættisins eða rösk-
lega helmingi færri en í Bandaríkj-
unum miðað við mannfjölda.
Efnahags- og heilbrigðisafleið-
ingum hrunsins svipar því saman
að ýmsu leyti í löndunum tveim.
Tvíþætt uppgjör hrunsins
Bandaríkjamenn finna margir
sárlega til þess að uppgjöri þeirra
við fjármálahremmingarnar sem
hófust þar 2007 hefur verið áfátt.
New York Times birti um síðustu
helgi aukablað með tíu tölusettum
breiðsíðum um málið.
Lokasíðan, jafnstór og heil
opna í Fréttablaðinu, bar yfir-
skriftina „Forstjórarnir á Wall
Street sem fengu fangelsisdóma“.
Síðan er auð. Enginn bankastjóri
var ákærður fyrir meint lögbrot.
Bankastjórarnir virtust hafnir yfir
lög þótt einn og einn lágt settur
bankamaður fengi dóm.
Forsetar Bandaríkjanna eru þó
ekki hafnir yfir lög eins og dæmi
Nixons forseta 1969-1974 sýnir og
dæmi Trumps forseta á e.t.v. eftir
að staðfesta ef yfirstandandi rann-
sókn á meintum lögbrotum hans
leiðir til ákæru og sakfellingar.
Bandaríkin hafa því rétt úr
kútnum í efnahagslegu tilliti þótt
mikið vanti upp á fullan bata eins
og staðnaðar tekjur og styttri ævir
sýna.
Svipaða sögu er að segja um
Ísland. Efnahagslífið hefur rétt úr
kútnum með því að kaupmáttur
heimilanna hefur náð sér á strik,
en ævir Íslendinga eru hættar að
lengjast. Mörg sár hrunsins eru
ógróin enn. Stjórnmálalegt upp-
gjör hrunsins hefur ekki enn farið
fram.
Hæstiréttur hefur að vísu dæmt
39 manns til næstum 100 ára
fangelsisvistar samanlagt vegna
lögbrota í tengslum við hrunið, en
mestmegnis voru það millistjórn-
endur sem fengu dóma meðan
stórlaxar sluppu.
Meint lögbrot í Seðlabankanum
6. október 2008 – Kaupþingslánið
skv. birtu símtali bankastjórans og
forsætisráðherrans – fyrnist eftir
röskan hálfan mánuð nema rann-
sókn málsins verði hafin fyrir þann
tíma til að girða fyrir fyrningu og
gera dómstólum kleift að fjalla um
málið.
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 23F i M M T u d a g u R 2 0 . S e p T e M B e R 2 0 1 8
2
0
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
F
-6
5
1
C
2
0
D
F
-6
3
E
0
2
0
D
F
-6
2
A
4
2
0
D
F
-6
1
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K