Fréttablaðið - 20.09.2018, Síða 60

Fréttablaðið - 20.09.2018, Síða 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Hátíðin hefur verið í mikilli þróun undanfarin ár – trendið hefur verið þannig að hlut-fall erlendra gesta hefur aukist mikið. Á síðasta ári var það orðið 50/50. Markaðurinn hérna heima hefur verið mettaður og samkeppnin er mikil – það er ekki nóg með að það sé samkeppni á milli tónleika heldur finnst okkur að aðalsamkeppnin sé við við- burðahald erlendis: það eru Íslend- ingar að fara til Berlínar á Berghain, Óslóar á Kendrick Lamar, þeir fara til London á O2 stórtónleika og svo framvegis,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson hjá Sónar Reykjavík en forsvarsmenn hátíðarinnar hafa gert samning við bandaríska miða- sölurisann StubHub um miðasölu fyrir næstu hátíð og er það tilraun þeirra til að auka hlutfall erlendra gesta en þar segir hann að helsti vaxtarbroddur hátíðarinnar liggi. „Við eigum hér á Íslandi mjög dyggan kúnnahóp sem við viljum allt gera fyrir en stærð markaðarins hér á landi er bara þannig að það er erfitt að stækka hann – við erum ekki risa-festival sem er að elta allra stærstu popplistamennina, því þeir eru of dýrir og við komum þeim ekki fyrir. Tækifæri okkar til að stækka liggur í að fá fleiri erlenda gesti og við erum í raun bara að hlúa að þeirri þróun, en þeim hefur fjölgað jafnt og þétt. Þannig að við fórum í það að finna erlendan aðila til að sjá um miðasöluna.“ Steinþór segir nokkra aðila hafa komið til greina en á endanum var það StubHub sem varð fyrir valinu. Fyrirtækið, sem er í eigu eBay, er ásamt Ticketmaster stærsta miða- sölufyrirtæki í heiminum. Stub- Hub hóf nýlega samstarf við Sónar í Barcelona, en hátíðin átti metár í ár og seldust yfir 130 þúsund miðar. Að sögn Steinþórs voru þeir hjá StubHub gríðarlega spenntir fyrir að komast inn á framandi markað eins og Ísland. „Við erum að taka stórt skref í því að breyta því hvernig við markaðs- setjum okkur og hvernig við nálg- umst miðasöluna. Ferlið verður miklu þægilegra, bæði fyrir Íslend- inga og útlendinga – það hefur verið þröskuldur fyrir erlenda gesti að þurfa að fara inn á íslensku síðurnar, breyta í ensku, sjá svo bara verð í íslenskum krónum og vita ekkert hvernig þau virka, hvað er kennitala og svo kemur bara staðfestingarpóstur á íslensku sem segir þeim ekki neitt.“ Miðaverðið verður því í evrum héðan í frá og fylgir gengi gjaldmið- ilsins. Bæði vegna þess og vegna mikillar samkeppni frá erlendum elektrónískum tónlistarhátíðum mun verðið lækka og er nú 130 evrur, eða um 16–17.000 íslenskar krónur. „Við erum að vona að bæði íslenskir og erlendir neytendur taki vel í þetta. Við erum gríðarlega spenntir fyrir samstarfinu við Stub- Hub og því að fá erlendan aðila inn á þennan markað – kannski hristir það eitthvað upp í hlutunum.“ Þeir Íslendingar sem finnst mögu- lega óþægilegt að kaupa miða í gegnum erlenda aðila þurfa þó ekki að örvænta því að miða á hátíðina má finna á harpa.is. Hátíðin fer fram 25.–27. apríl á næsta ári og er miða- salan hafin en fyrstu listamenn á hátíðina verða kynntir eftir viku. stefanthor@frettabladid.is Miðasölurisi sér um Sónar-hátíðina Erlendum gestum hefur fjölgað jafnt og þétt á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík síðustu árin og hefur nú verið gerður samningur við StubHub til að mæta þessari þróun. Miðasala á hátíðina er hafin. Erlendir gestir munu ekki eiga í vandræðum með að kaupa miða með tilkomu StubHub. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ Við eruM gríðar- lega Spenntir fyrir SaMStarfinu Við StubHub og þVí að fá erlendan aðila inn á þennan Markað – kannSki HriStir það eittHVað upp í HlutunuM. Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.is Opnunartími Mánudaga - föstudaga milli kl. 10:00 og 18:00 Laugardaga milli kl. 12:00 og 16:00 Honda CR-V Lifestyle Honda Jazz Trend Honda CR-V Executive Honda Accord Sport Nýskráður 6/2012, ekinn 93 þús.km, bensín, sjálfskiptur. Nýskráður 5/2017, ekinn 26 þús.km., bensín, sjálfskiptur. Nýskráður 2/2017, ekinn 29 þús.km., bensín, sjálfskiptur. Nýskráður 5/2007, ekinn 165 þús.km., bensín, sjálfskiptur. Verð kr. 2.590.000 Afborgun kr. 34.673 á mán.* Verð kr. 2.290.000 Afborgun kr. 29.572 á mán.* Verð kr. 5.190.000 Afborgun kr. 66.829 á mán.* Verð kr. 790.000 Allt að 100% fjármögnun Visa/Euro/Pei 2 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F I m m t U D A G U r44 l í F I ð ∙ F r É t t A b l A ð I ð 2 0 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D F -4 7 7 C 2 0 D F -4 6 4 0 2 0 D F -4 5 0 4 2 0 D F -4 3 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 1 9 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.