Peningamál - 01.11.2004, Qupperneq 81
80 PENINGAMÁL 2004/4
Skráð hlutafé félagsins á aðallista Kauphallar Íslands
eftir hækkunina var kr. 6.606.856.400 að nafnverði.
Söluverð hins nýja hlutafjár var samtals 52,8 ma.kr.
Hinn 15. október var tilkynnt að fjárhæð lána Íbúða-
lánasjóðs gæti numið allt að 100% af brunabótamati
fasteignar í stað 85% áður.
Hinn 18. október var tilkynnt að yfirtöku Íslands-
banka hf. í Kredittbanken væri lokið. Alls samþykktu
99,4% hluthafa tilboðið.
Dagana 20. til 25. október heimsótti sendinefnd frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum Ísland og kynnti sér stöðu
efnahagsmála á fundum með fulltrúum stjórnvalda
og atvinnulífs. Álit sendinefndarinnar var birt á
heimasíðu Seðlabankans 29. október.
Hinn 29. október tilkynnti Seðlabanki Íslands hækk-
un vaxta bankans í endurhverfum viðskiptum við
lánastofnanir um 0,5 prósentur í 7,25% frá og með
2. nóvember. Vextir á viðskiptareikningum lánastofn-
ana í Seðlabankanum voru hækkaðir um 0,75 pró-
sentur frá 1. nóvember.
Nóvember 2004
Hinn 3. nóvember tilkynnti Moody’s Investors
Service að lánshæfismat KB banka hf. hefði verið
hækkað. Langtímaeinkunn bankans var hækkuð úr
A2 í A1. Jafnframt var einkunn vegna víkjandi lána
hækkuð úr A3 í A2 og C+ einkunn vegna fjárhagslegs
styrkleika var staðfest. Skammtímaeinkunnin P-1 var
jafnframt staðfest sem er hæsta mögulega einkunn.
Hinn 5. nóvember tilkynnti Íslandsbanki hf. að hann
hygðist bjóða viðskiptavinum sínum lán til hús-
næðiskaupa með veðsetningarhlutfalli allt að 100%
af markaðsvirði. Lánin yrðu veitt til allt að 40 ára og
háð vissum skilyrðum. Aðrir viðskiptabankar og
sumir sparisjóðir fylgdu í kjölfarið og tilkynntu að
þeir hygðust bjóða viðskiptavinum sínum sambæri-
leg lánskjör.
Hinn 13. nóvember voru samþykkt lög á Alþingi um
kjaramál kennara og skólastjórnenda í grunnskólum.
Lögin bundu endi á verkfall kennara sem staðið hafði
frá 20. september. Í lögunum er kveðið svo á að hafi
aðilar ekki undirritað kjarasamning fyrir 20. nóv-
ember 2004 skuli Hæstiréttur Íslands tilnefna þrjá
menn í gerðardóm sem skal fyrir 28. febrúar 2005
ákveða kaup og kjör félagsmanna Félags grunn-
skólakennara og Skólastjórafélags Íslands hjá þeim
sveitarfélögum sem veitt hafa launanefndinni umboð
til kjarasamningsgerðar við félögin. Nýr kjarasamn-
ingar milli aðla var undirritaður 17. nóvember og
eiga úrslit atkvæðagreiðslu um hann að liggja fyrir
6. desember.
Hinn 16. nóvember staðfesti alþjóðlega matsfyrir-
tækið Moody’s Investors Service lánshæfiseinkunnir
sínar fyrir Íslandsbanka hf., A1 fyrir langtíma-
skuldbindingar og P-1 fyrir skammtímaskuldbind-
ingar. Einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika,
B-, beið staðfestingar.
Hinn 16. nóvember samþykkti borgarstjórn Reykja-
víkur að hækka útsvarshlutfall úr 12,7% í leyfilegt
hámark sem er 13,03%. Einnig var samþykkt hækkun
fasteignaskatts úr 0,320% í 0,345%. Áætlað er að
þetta skili Reykjavíkurborg um 0,9 ma.kr. í auknar
tekjur árlega.
Hinn 22. nóvember var hlutafé Íslandsbanka hf. í
Kauphöll Íslands hækkað um sem nam 1 ma.kr. að
nafnverði. Skráð hlutafé félagsins á aðallista Kaup-
hallar Íslands eftir hækkunina var 11,2 ma.kr. að nafn-
verði. Söluverð hins nýja hlutafjár var 10,65 ma.kr.
Hinn 26. nóvember staðfesti alþjóðlega matsfyrir-
tækið Fitch Ratings lánshæfiseinkunnir sínar fyrir
Íslandsbanka hf., A fyrir langtímaskuldbindingar, F1
fyrir skammtímaskuldbindingar, C í eigin einkunn og
2 í stuðningseinkunn. Horfur um breytingar á matinu
eru stöðugar.
Hinn 26. nóvember staðfesti alþjóðlega matsfyrir-
tækið Fitch Ratings lánshæfiseinkunnir sínar fyrir
Landsbanka Íslands hf, A fyrir langtímaskuldbind-
ingar, F1 fyrir skammtímaskuldbindingar, C í eigin
einkunn og 2 í stuðningseinkunn. Horfur um breyt-
ingar á matinu eru stöðugar.