Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 2

Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Sérdeilis fallegar myndir bárust í ljósmyndakeppni 200 mílna Ljósmynd/Kristófer Jónsson 44-50 01.06.2018 01 | 06 | 2018 SJÓMANNADAGURINN Útgefandi Árvakur Umsjón Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Blaðamenn Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Auglýsingar Valur Smári Heimisson valursmari@mbl.is Forsíðumyndina tók Jón Steinar Sæmundsson Prentun Landsprent ehf. Hátíðahöldin í kringum sjómannadaginn sýna vel hvað sjávarútvegurinn leikur enn mikilvægt hlut- verk í íslensku samfélagi. Atvinnulífið er orðið fjöl- breyttara en það var áður, og hagur þjóðarinnar stendur ekki og fellur með því hvernig fiskast, en eftir sem áður er greinin einn af burðarstólpunum, skapar miklar útflutningstekjur og veitir fjölda fólks störf. Kannski hefur aldrei verið mikilvægara en nú að taka þátt í sjómannadeginum og fara með börnin niður að bryggju til að skoða bátana, virða fyrir sér furðufiska og sjá með eigin augum þegar hetjur hafsins reyna með sér í reiptogi, kappróðri eða koddaslag. Samfélagið breytist svo ört að ef ekki er að gáð gæti unga fólkið misst tenginguna við atvinnu- greinina, og það merkilega fólk sem vinnur þar krefjandi störf, bæði á sjó og í landi, og reynir þrotlaust að skapa æ verðmætari vörur úr tak- mörkuðum auðlindum hafsins. Sjómannadagurinn er dagur til að staldra við, sýna greininni þann sóma sem hún á skilið, og minnast þess að á einn eða annan hátt eru Íslend- ingar allir sjómenn inni við beinið. Morgunblaðið/Golli Rétti dagurinn til að finna sinn innri sjómann Út er komin ný bók sem safnar saman gamansögum uppá- tækjasamra íslenskra sjómanna og lýsir gleðinni um borð. Morgunblaðið/Brynjar Gauti 14-16 Verkefni Landhelgisgæslunnar eru af öllum mögulegum toga, bæði á sjó og landi, og þarf að vakta risastórt svæði. Morgunblaðið/Golli 20-21 Hafnarfjarðarkaupstaður fagnar 110 ára afmæli um helgina og verður mikið um dýrðir á sjómannadaginn. 36 Það var mikið ævintýri að koma síðasta Japanstogaranum til lands- ins. Litasjónvarpið á hótelinu í Tók- ýó vakti athygli áhafnarinnar. 58-59

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.