Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn! ALLT TIL FÆRIBANDAGERÐAR Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ að munaði minnstu að Kristján Þór Júlíusson yrði skipstjóri en örlögin beindu honum í staðinn út í stjórnmálin. Hann tók fyrst sæti á Alþingi árið 2007, var heilbrigðisráðherra í tæp fjög- ur ár, síðan menntamálaráðherra um stutt skeið og loks síðla árs 2017 tók hann við lyklunum að sjávarútvegsráðuneytinu. Kristján á ljúfar og kærar minn- ingar frá sjómannadeginum á Dal- vík þar sem hann ólst upp og bjó langt fram á fullorðinsár. „Það er til mynd á heimilinu af foreldrum mínum barnungum þar sem þau standa og fylgjast með móðurafa mínum flytja hátíðarræðu á sjó- mannadeginum í Dalvík, löngu áð- ur en þau uxu úr grasi og tóku saman,“ segir Kristján sem er kominn af sjómönnum í báðar ætt- ir. Aðspurður hvort hann hafi látið að sér kveða í þeim aflraunum sem oft eru hluti af hátíðahöldum dags- ins kemur í ljós að Kristján var ekki afleitur róðrarmaður. „Ég af- rekaði það eitt skiptið að vera í vinningsliðinu í róðrarkeppni, og þótti sú keppi alltaf mikill við- burður í bænum.“ Vöxtur greinarinnar er mikið afrek Kristjáni þykir gott að nota tæki- færið á sjómannadaginn til að hug- leiða stöðu sjávarútvegsins og það hlutverk sem atvinnugreinin hefur leikið í sögu þjóðarinnar. „Það er raunar stórmerkilegt að yfir 95% af afurðum sjávarútvegsins eru seldar á erlendum mörkuðum, og hefur verið reiknað út að ígildi 20 milljóna máltíða séu framleidd af íslenskum sjávarútvegi á degi hverjum. Umsvif og vöxtur grein- arinnar eru ekki lítið afrek og að koma vörunum öllum hratt og vel á markað hefur útheimt mikla þekk- ingu, dugnað og eljusemi.“ Aðstæður hafa á margan hátt verið hagfelldar sjávarútveginum á undanförnum árum, en greinin glímir eftir sem áður við ýmsar áskoranir. Sjávarútvegurinn er háður náttúruöflunum og enginn getur stýrt því hversu vel fiskast, eða hversu sterkir stofnarnir í haf- inu eru, en svo eru aðrir þættir sem má reyna að hafa áhrif á, s.s. þeir skattar og gjöld sem greinin þarf að greiða, og sveiflur í gengi gjaldmiðilsins: „Bæði veiðarnar, gengið, verð á erlendum mörkuðum og eftirspurn geta sveiflast og aðdáunarvert hvernig greininni tekst að aðlgast breyttum skilyrðum hverju sinni,“ segir Kristján. „Stundum er þróun- in jákvæð og rennir styrkari stoð- um undir greinina eins og við höf- um séð á árunum eftir hrun en á öðrum tímabilum er þróunin í hina áttina. Stóru áskoranirnar sem greinin glímir við eiga sér yfirleitt tvær hliðar; bæði kosti og galla.“ Aðspurður hvort ekki sé eitthvað sem megi til bragðs taka núna þeg- ar mörgum þykir krónan orðin úr hófi sterk og farin að þrengja að sjávarútvegi og öðrum útflutnings- greinum segir Kristján hollt að reyna að skoða þróunina og fram- tíðarhorfurnar til lengri tíma. „Ef að er gáð er það að miklu leyti krónunni að þakka og því að þjóðin skuli eiga sjálfstæðan gjaldmiðil að tekist hefur að gera sjávarútveginn að eins sterkri atvinnugrein og raun ber vitni. Krónan hefur greinilega ákveðna galla og veldur í dag útgerðum og sjómönnum bú- sifjum en henni fylgja líka ótvíræð- ir kostir til lengri tíma.“ Framleiða 20 milljón máltíðir daglega Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sveigjanleiki „Bæði veiðarnar, gengið, verð á erlendum mörkuðum og eftirspurn geta sveiflast og aðdáunarvert hvernig greininni tekst að aðlgast breyttum skil- yrðum hverju sinni,“ segir Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra. Morgunblaðið/Styrmir Kári Gin Börnin virða fyrir sér fiskana á Hátíð hafsins. Kristján Þór á sjálfur margar ánægjulegar minningar frá sjómannadeginum. Sjávarútvegsráðherra segir atvinnugreinina hafa sýnt mikla aðlög- unarhæfni. Dugnaður, þekking og eljusemi skýra þá miklu verð- mætasköpun sem á sér stað í greininni í dag, og nýtur öll þjóð- in góðs af í formi bættra lífsgæða í landinu. Kristjáni þykir leiðinlegt til þess að hugsa að víða um land hefur dregið verulega úr hátíðahöldum á sjó- mannadaginn. „Það er engin ástæða til annars en að hefja sjómannadag- inn til vegs og virðingar á ný,“ segir hann og bendir á að verðmæta- sköpun greinarinnar hefur komið þjóðfélaginu öllu vel. Hann segir sjáv- arútveginn hafa stuðlað að vexti stoð- greina sem í dag hafa á að skipa öfl- ugum tækni- og iðnfyrirtækjum sem hafa gert íslenskt hugvit að dýrmætri útflutningsvöru. „Sjávarútvegurinn, sjómenn, fiskverkafólk, útgerð- armenn – þau eiga öll hlutdeild í þeim lífsgæðum sem nútíma-Íslending- urinn býr við í dag. Við ættum að sýna þessu ágæta fólki þann sóma að heiðra það einu sinni á ári.“ Vekur Kristján sérstaka athygli á því að margar aðrar þjóðir eiga ekki því láni að fagna að eiga kröftugan sjávarútveg sem einn af burð- arstólpum atvinnulífsins. „Sjávar- útvegurinn á Íslandi greiðir verulegar fjárhæðir til samfélagsins, og er það ólíkt sjávarútveginum í flestum öðr- um ríkjum þar sem stjórnvöld þurfa að greiða með atvinnugreininni.“ Greiða háar fjárhæðir til samfélagsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.