Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Við óskum
sjómönnum
og fjölskyldum
þeirra innilega
til hamingju
með daginn!
ALLT TIL
FÆRIBANDAGERÐAR
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
að munaði minnstu að
Kristján Þór Júlíusson
yrði skipstjóri en örlögin
beindu honum í staðinn
út í stjórnmálin. Hann
tók fyrst sæti á Alþingi árið 2007,
var heilbrigðisráðherra í tæp fjög-
ur ár, síðan menntamálaráðherra
um stutt skeið og loks síðla árs
2017 tók hann við lyklunum að
sjávarútvegsráðuneytinu.
Kristján á ljúfar og kærar minn-
ingar frá sjómannadeginum á Dal-
vík þar sem hann ólst upp og bjó
langt fram á fullorðinsár. „Það er
til mynd á heimilinu af foreldrum
mínum barnungum þar sem þau
standa og fylgjast með móðurafa
mínum flytja hátíðarræðu á sjó-
mannadeginum í Dalvík, löngu áð-
ur en þau uxu úr grasi og tóku
saman,“ segir Kristján sem er
kominn af sjómönnum í báðar ætt-
ir.
Aðspurður hvort hann hafi látið
að sér kveða í þeim aflraunum sem
oft eru hluti af hátíðahöldum dags-
ins kemur í ljós að Kristján var
ekki afleitur róðrarmaður. „Ég af-
rekaði það eitt skiptið að vera í
vinningsliðinu í róðrarkeppni, og
þótti sú keppi alltaf mikill við-
burður í bænum.“
Vöxtur greinarinnar er mikið afrek
Kristjáni þykir gott að nota tæki-
færið á sjómannadaginn til að hug-
leiða stöðu sjávarútvegsins og það
hlutverk sem atvinnugreinin hefur
leikið í sögu þjóðarinnar. „Það er
raunar stórmerkilegt að yfir 95%
af afurðum sjávarútvegsins eru
seldar á erlendum mörkuðum, og
hefur verið reiknað út að ígildi 20
milljóna máltíða séu framleidd af
íslenskum sjávarútvegi á degi
hverjum. Umsvif og vöxtur grein-
arinnar eru ekki lítið afrek og að
koma vörunum öllum hratt og vel á
markað hefur útheimt mikla þekk-
ingu, dugnað og eljusemi.“
Aðstæður hafa á margan hátt
verið hagfelldar sjávarútveginum á
undanförnum árum, en greinin
glímir eftir sem áður við ýmsar
áskoranir. Sjávarútvegurinn er
háður náttúruöflunum og enginn
getur stýrt því hversu vel fiskast,
eða hversu sterkir stofnarnir í haf-
inu eru, en svo eru aðrir þættir
sem má reyna að hafa áhrif á, s.s.
þeir skattar og gjöld sem greinin
þarf að greiða, og sveiflur í gengi
gjaldmiðilsins:
„Bæði veiðarnar, gengið, verð á
erlendum mörkuðum og eftirspurn
geta sveiflast og aðdáunarvert
hvernig greininni tekst að aðlgast
breyttum skilyrðum hverju sinni,“
segir Kristján. „Stundum er þróun-
in jákvæð og rennir styrkari stoð-
um undir greinina eins og við höf-
um séð á árunum eftir hrun en á
öðrum tímabilum er þróunin í hina
áttina. Stóru áskoranirnar sem
greinin glímir við eiga sér yfirleitt
tvær hliðar; bæði kosti og galla.“
Aðspurður hvort ekki sé eitthvað
sem megi til bragðs taka núna þeg-
ar mörgum þykir krónan orðin úr
hófi sterk og farin að þrengja að
sjávarútvegi og öðrum útflutnings-
greinum segir Kristján hollt að
reyna að skoða þróunina og fram-
tíðarhorfurnar til lengri tíma. „Ef
að er gáð er það að miklu leyti
krónunni að þakka og því að þjóðin
skuli eiga sjálfstæðan gjaldmiðil að
tekist hefur að gera sjávarútveginn
að eins sterkri atvinnugrein og
raun ber vitni. Krónan hefur
greinilega ákveðna galla og veldur
í dag útgerðum og sjómönnum bú-
sifjum en henni fylgja líka ótvíræð-
ir kostir til lengri tíma.“
Framleiða 20 milljón máltíðir daglega
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sveigjanleiki „Bæði veiðarnar, gengið,
verð á erlendum mörkuðum og eftirspurn
geta sveiflast og aðdáunarvert hvernig
greininni tekst að aðlgast breyttum skil-
yrðum hverju sinni,“ segir Kristján Þór
Júlíusson sjávarútvegsráðherra.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gin Börnin virða fyrir sér fiskana á Hátíð hafsins. Kristján Þór á sjálfur margar ánægjulegar minningar frá sjómannadeginum.
Sjávarútvegsráðherra
segir atvinnugreinina
hafa sýnt mikla aðlög-
unarhæfni. Dugnaður,
þekking og eljusemi
skýra þá miklu verð-
mætasköpun sem á
sér stað í greininni í
dag, og nýtur öll þjóð-
in góðs af í formi
bættra lífsgæða í
landinu.
Kristjáni þykir leiðinlegt til þess að
hugsa að víða um land hefur dregið
verulega úr hátíðahöldum á sjó-
mannadaginn. „Það er engin ástæða
til annars en að hefja sjómannadag-
inn til vegs og virðingar á ný,“ segir
hann og bendir á að verðmæta-
sköpun greinarinnar hefur komið
þjóðfélaginu öllu vel. Hann segir sjáv-
arútveginn hafa stuðlað að vexti stoð-
greina sem í dag hafa á að skipa öfl-
ugum tækni- og iðnfyrirtækjum sem
hafa gert íslenskt hugvit að dýrmætri
útflutningsvöru. „Sjávarútvegurinn,
sjómenn, fiskverkafólk, útgerð-
armenn – þau eiga öll hlutdeild í þeim
lífsgæðum sem nútíma-Íslending-
urinn býr við í dag. Við ættum að sýna
þessu ágæta fólki þann sóma að
heiðra það einu sinni á ári.“
Vekur Kristján sérstaka athygli á
því að margar aðrar þjóðir eiga ekki
því láni að fagna að eiga kröftugan
sjávarútveg sem einn af burð-
arstólpum atvinnulífsins. „Sjávar-
útvegurinn á Íslandi greiðir verulegar
fjárhæðir til samfélagsins, og er það
ólíkt sjávarútveginum í flestum öðr-
um ríkjum þar sem stjórnvöld þurfa
að greiða með atvinnugreininni.“
Greiða háar fjárhæðir
til samfélagsins