Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
að er við hæfi á sjómanna-
daginn að skoða hvernig
kaup og kjör stéttarinnar
hafa þróast. Stutt er síðan
kjarasamningar náðust
eftir erfitt verkfall, og með þeim að
sjómenn fengu einhverja kjarabót.
Upp á síðkastið hefur fiskverð samt
verið á niðurleið, í krónum talið, og
hásetahluturinn lækkað sem því
nemur.
Valmundur Valmundsson er for-
maður Sjómannasambands Íslands
og segir hann að laun sjómanna hafi
farið lækkandi síðastliðna mánuði.
„Það er ljós í myrkrinu að með nýj-
um kjarasamningi voru innleidd ný
viðmið til að reikna út laun sjómanna
á skipum sem selja aflann í beinum
viðskiptum. Um síðustu áramót hafði
viðmiðunarverðið á slægðum þorski
hækkað um 20% frá því samningar
tókust en hefur lækkað eftir það og
er í dag 10% hærra en það var fyrir
ári.“
Verðmyndunin þarf
nánari skoðun
Að sögn Valmundar er styrking
krónunnar helsti áhrifavaldurinn,
enda ræðst verð aflans hér á landi af
því verði sem útgerðir fá fyrir fiskinn
á erlendum mörkuðum. „Það hefur
vafalítið líka haft áhrif á verðþró-
unina að kaupendum á fiskmörk-
uðum hefur fækkað sem þýðir að
verðmyndun verður með öðrum
hætti,“ segir hann og bendir á að
verkfall sjómanna hafi haft þau áhrif
að sum minni fiskvinnslufyrirtækin
hættu rekstri og hurfu því af fisk-
markaði. „Sjómenn eru líka ósáttir
við að markaðirnir eru í mörgum til-
vikum að bjóða upp á bein viðskipti á
milli kaupenda og seljenda, þannig
að fiskurinn fer framhjá uppboðs-
markaði. Unnið er að því að endur-
skoða lögin um fiskmarkaði og von-
andi að tekið verði fyrir svona
viðskipti, sem við teljum vera óeðli-
leg.“
Valmundur segir samningamenn
sjómanna hafa náð árangri í síðustu
kjarasamningum hvað varðar þátt-
töku sjómanna í olíukostnaði útgerð-
anna. Þá hafi samist um að útgerð-
irnar greiði bæði fæði og
vinnufatnað. Deilt sé um nýsmíða-
gjald sem lagt verður á laun sjó-
manna næstu tólf árin, en á móti
komi að þau nýju skip sem bæst hafi
við íslenska flotan séu á margan hátt
þægilegri og öruggari vinnustaðir en
eldri skipin og afkastamikil svo að
áhafnarmeðlimir ættu að geta notið
góðs af í formi meiri tekna fyrir
hverja veiðiferð. „En þá verður að
hafa hugfast að útgerðirnar verða að
standa sig og hafa þann kvóta sem
þarf til að geta nýtt þessi öflugu nýju
skip sem skyldi,“ segir hann og
bendir á að það sé ekki sjálfgefið að
nýju skipin geti nýtt nýsmíðaálagið.
„Í öllum skipaflokkum er reiknaður
hlutur á úthaldsdag viðkomandi
flokks og 25% lökustu skipin tekin úr
pottinum. Þá er fundið út meðaltal
þeirra sem eftir standa og þeir sem
eru yfir því geta nýtt sér álagið en
hinir ekki.“
Vélar sjá um erfiðustu
og hættulegustu störfin
Endurnýjun skipaflotans hefur líka
þýtt að ekki þarf lengur jafnmargar
hendur um borð til að vinna störfin.
Valmundur segir ánægjulegt að sjálf-
virkar vélar séu farnar að leysa af
hendi sum erfiðustu og hættulegustu
verkin, eins og að koma körunum í
lestina, en útgerðir verði að gæta að
því að fækka ekki of mikið í áhöfnum
því með því eykst álagið og slysa-
hættan um leið. „Það er mikill munur
á vinnuaðstöðunni í dag og fyrir t.d.
tuttugu árum, en ef við pössum ekki
vandlega upp á það að menn séu
örugglega vel hvíldir og ekki úttaug-
aðir vegna mikillar vinnu og svefnle-
sysis, þá rýrir það árangurinn og
gerir skipin að hættulegri vinnustöð-
um,“ útskýrir hann og bætir við að
um þessar mundir sé Samgöngustofa
að gera umfangsmikla rannsókn á
hvíldartíma áhafna. „Byrjað verður á
togaraflotanum og uppsjávarskip-
unum og stefnt að því á næsta ári að
taka út allan flotann. Með gögnin úr
mælingunni í höndunum munum við
sjá betur hvar skórinn kreppir, og
hvar æskilegt væri að haga mönnun
með öðrum hætti.“
Töluverður áhugi
á stýrimannanámi
Þegar hrunið skall á var barist um
laus pláss á skipunum, enda þýddi
veik króna að laun sjómanna voru
hreint prýðileg í samanburið við það
sem bauðst í landi. Síðan þá hefur
krónan styrkst og atvinnulífið bragg-
ast svo að margir velja frekar að
þiggja atvinnutilboð í landi en að
halda til sjós. Valmundur segir
greinilegt að nú sé orðið erfiðara en
oft áður að manna áhafnir og grípi
sumar útgerðirnar til þess ráðs að
ýmist bjóða betri betri kjör og fríð-
indi, eða leita út í heim eftir áhafn-
armeðlimum. „Við verðum töluvert
vör við að fólk frá Evrópusambands-
löndunum hafi bæst við íslenska sjó-
mannastétt og þá einkum ein-
staklingar frá Póllandi og svo í seinni
tíð frá Portúgal og Spáni. Í flestum
tilvikum er um að ræða hörkudug-
lega karla sem eru með öll réttindi
upp á vasann.“
Valmundur bendir á að þó svo að
hásetastarfið freisti Íslendinga
kannski ekki jafn mikið og áður þá
þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af
endurnýjun í sjómannastétt, ef
marka má aðsóknina í Stýrimanna-
skólann. „Áhugi á stýrimannanáminu
hefur verið að aukast og möguleg
skýring sú að unga fólkið hefur kom-
ið auga á að skipstjórarnir eru marg-
ir orðnir hundgamlir og áhugaverð
atvinnutækifæri sem bíða þeirra sem
hafa menntað sig vel og finna sér
starf í brúnni.“
Grunar Valmund líka að starf sjó-
mannsins verði æ meira krefjandi
eftir því sem skipin verða fullkomn-
ari og ríkari kröfur verði gerðar um
meiri menntun til að geta leyst vel
afhendi hinar ýmsu stöður um borð.
„Hér áður fyrr var oft haft á orði að
hásetar væru aðeins ráðnir upp að
öxlum, því þeir ættu fyrst og fremst
að hlýða en ekki nota hausinn mikið.
Þetta á varla lengur við, og sást
kannski hvað best á mynd sem birt-
ist af komu nýju Engeyjarinnar til
landsins, þar sem tveir hásetar stóðu
við nýja og fullkomna lestarkerfið í
skipinu. Nema hvað í kringum þá
voru fjórir tæknimenn, að kenna
þeim á græjurnar, og þess kannski
ekki langt að bíða að til að vera góð-
ur háseti þurfi haldgóða tækni- og
tölvumenntun.“
Auk þess að berjast fyrir bættum
kjörum lætur Sjómannasambandið
sig öryggismal stéttarinnar miklu
varða. Valmundur segir það
áhyggjuefni að Landhelgisgæslan
sé svo fjársvelt að illgerlegt sé að
manna aukavaktir á björgunar-
þyrlum.
„Það gerðist fyrir skemmstu að
ekki var hægt að nota björg-
unarþyrlu vegna slyss sem varð í
Þingvallavatni því reglur um hvíld-
artíma þýddu að þær áhafnir sem
voru til taks máttu ekki fara í
flug,“ segir hann. „Búið er að
álykta um þessi mál fram og til
baka og þvers og kruss og sama
við hvern er talað í stjórnsýslunni;
þar lofar fólk öllu fögru, en síðan
er ekki neitt gert. Ég vil ekki trúa
því að sem siglingaþjóð, og með
svona flottan flota, getum við ekki
gert mun betur. Okkar krafa er ein-
föld; að hafa alltaf tvær þyrlur, að
lágmarki, til taks allt árið um
kring.“
Þarf að að hafa tvær þyrlur
til taks allt árið um kring
Unga fólkið kemur auga á tækifæri í brúnni
Í sumum tilvikum geng-
ur erfiðlega að manna
áhafnir en engu að síður
er mikil aðsókn í nám
við Stýrimannaskólann.
Skipin eru orðin af-
kastameiri en gæta þarf
að því að reglur um
hvíldartíma séu virtar
þó að áhafnir minnki.
Morgunblaðið/Eggert
Varúð „Það er mikill munur á vinnuaðstöðunni í dag og fyrir t.d. tuttugu árum, en ef við pössum ekki vandlega upp á það að menn séu örugglega vel hvíldir og ekki út-
taugaðir vegna mikillar vinnu og svefnlesysis, þá rýrir það árangurinn og gerir skipin að hættulegri vinnustöðum,“ segir Valmundur. Sjómenn á Bolungarvík.
Sveiflur Laun sjómanna sveiflast í takt við gengi og verð á mörkuðum. Þeir sem
hafa réttu menntunina geta fundið mjög freistandi störf um borð í skipunum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Framfarir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins, segir
tæknina spila æ stærra hlutverk í störfum sjómanna og létta erfiðustu störfin.