Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Í fjölda ára urðu Íslendingar fyr- ir barðinu á erlendum veiði- mönnum sem veiddu uppi við strendur landsins. Þeirra verstir voru Bretar sem nýttu sér máttleysi Íslendinga í landhelgisgæslu og veiddu fisk sinn svo gott sem af diskum Íslendinga. Úr varð að árið 1906 sendu Danir Ís- lendingum sérstakt eftirlitsskip, Is- lands Falk, til að sinna gæslu- störfum hér við land. Tuttugu árum síðar kom svo Óðinn til landsins, fyrsta varðskipið sem smíðað var fyrir Íslendinga. Nú, tæpum hundr- að árum síðar, eru starfsmenn Landhelgisgæslu Íslands tæplega tvö hundruð talsins. Stofnunin sinn- ir yfir 250 þyrluútköllum á ári og hefur til umráða fjölda skipa, þrjár þyrlur og flugvél. Ásgeir Erlends- son, upplýsingafulltrúi Landhelg- isgæslunnar, ræddi við blaðamann um starfsemina og framtíðarsýn stofnunarinnar. Sum störfin óhefðbundin „Þó svo að þyrlurekstur Landhelgis- gæslunnar sé ef til vill mest áber- andi hluti þess sem við gerum, þá er starfsemin ákaflega fjölbreytt og umfangsmikil,“ segir Ásgeir spurð- ur hvort Landhelgisgæslan geri nokkuð annað en að fljúga þyrlum yfir Faxaflóann. „Þar má til dæmis nefna sprengjueyðingarsveitina sem hefur það hlutverk að gera óvirkar og eyða sprengjum sem finnast í hafinu við landið. Vegna sérþekk- ingar sinnar hefur sprengjusveitin jafnframt sinnt sprengjueyðingu og tengdum verkefnum á landi, og leit að sprengjum í skipum og flug- vélum. Sveitin sér sömuleiðis um hreinsun hernaðarsvæða og stendur fyrir þjálfun og kennslu í sprengju- leit og -eyðingu svo eitthvað sé nefnt,“ segir Ásgeir. Hann nefnir einnig að Landhelg- isgæslan sinni ýmsum störfum hér á landi eins og framkvæmd öryggis- og varnartengdra verkefna. „Helstu verkefnin eru rekstur íslenska loft- varnakerfisins, þ.m.t. fjarskipta- stöðva og ratsjárstöðva Atlantshafs- bandalagsins hérlendis. Þá tökum við þátt í samræmdu loftrýmiseft- irliti og loftrýmisgæslu Atlantshafs- bandalagsins auk undirbúnings og umsjónar varnaræfinga sem haldn- ar eru hérlendis. Sjómælingasvið er að sama skapi mjög mikilvægt en það annast sjómælingar og sjókorta- gerð.“ Fylgjast vel með skipum og afla Það er ljóst að Landhelgisgæslan sinnir ýmsum verkefnum sem ekki eru öllum augljós. Þar á meðal eru störf varðskipafólks, en flestir þekkja varðskipið Þór, sem Íslend- ingar eignuðust árið 2011. „Varð- skipin hafa frá stofnun Landhelg- isgæslunnar árið 1926 gegnt veiga- miklu hlutverki. Þau sinna almennri löggæslu á hafinu sem felst fyrst og fremst í því að hafa eftirlit með far- artækjum á sjó. Þá er einkum verið að fylgjast með því hvort skipin eru haffær, hvort þau hafa nauðsyn- legan öryggisbúnað og hvort stjórn- endur þeirra hafa tilskilin réttindi,“ segir Ásgeir. „Skipverjar á varðskipum fara einnig reglulega um borð í skip og mæla stærð fisks. Eftirlit varðskips- manna felst í því að mæla stærð fisks um borð í bátum og skipum og reynist meðaltal fisks vera undir leyfilegum viðmiðunarmörkum gerir skipherra vakthafandi fiskifræðingi hjá Hafrannsóknastofnun viðvart og Hefur vökult auga með 1,9 milljónum ferkílómetra Landhelgisgæslan sinnir fjölbreyttum störfum bæði á sjó og landi Um borð í varðskipunum eru engir tveir dagar eins og þarf starfsfólk gæslunnar að vera tilbúið að takast á við nánast hvað sem er Ljósmynd/Landhelgisgæslan Bjargvætturinn Hér sést varð- skipið Þór dæla neysluvatni á vatnstanka í Flatey á Breiðafirði Morgunblaðið/Árni Sæberg Framsýnn Ásgeir Erlendsson, upplýs- ingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Morgunblaðið/Golli Köfun Starfsmenn Landhelgisgæslunnar búa yfir mikilli þekkingu á leynd- ardómum hafsins. Hér fer fram þjálfun í köfun við höfnina í Helguvík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.