Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 21
gerir tillögu um lokun svæðis,“ segir
Ásgeir og bætir við að markmið
Landhelgisgæslunnar sé að fara um
borð í 20 til 25 skip í hverjum mán-
uði. Stærstan hluta ársins er eitt
skip frá Landhelgisgæslunni úti á
sjó. „Landhelgisgæslan leitast við að
hafa varðskipin sem mest á sjó. Í
fyrra voru úthaldsdagar varðskip-
anna um 290 og var skipt jafnt á
milli Þórs og Týs,“ segir Ásgeir og
bætir við að búast megi við að út-
haldsdögunum fjölgi í um 350 á
þessu ári.
Spurður hvernig hefðbundinn
dagur í lífi varðskipastarfsmanns sé
segir Ásgeir að enginn dagur sé eins
og annar. „Verkefnin eru mjög fjöl-
breytt og samanstanda af löggæslu
og fiskveiðieftirliti, æfingum, leit og
björgun, viðhaldi og köfun, svo eitt-
hvað sé nefnt. Til að áhafnir varð-
skipanna séu ávallt tilbúnar og til
taks er mikið um æfingar um borð.
Það geta til dæmis verið þrek-
æfingar, reykköfun og köfun og æf-
ingar með þyrlusveit Landhelgis-
gæslunnar. Það eina sem má ganga
að vísu um borð í varðskipunum er
skatan og saltfiskurinn í hádeginu á
laugardögum,“ segir Ásgeir.
Risastórt svæði
,,Landhelgisgæsla Íslands annast
löggæslu og eftirlit á hafinu um-
hverfis landið og fer með yfirstjórn
vegna leitar og björgunar á sjó.
Landhelgisgæslan ber ábyrgð á eft-
irliti, lög- og öryggisgæslu á svæði
sem nær yfir 752.000 ferkílómetra
og leit og björgun á svæði sem þek-
ur um 1,9 milljónir ferkílómetra sem
er rúmlega tvöfalt stærra en efna-
hagslögsaga Íslands,“ segir Ásgeir
aðspurður á hversu stóru svæði
Landhelgisgæslan starfi. „Leitar-
og björgunargeta á hafinu við Ísland
byggist á þremur meginstoðum; það
eru stjórnstöð LHG sem segja má
að sé hjartað í starfseminni, loftför-
um og varðskipum, auk þess sem
treyst er á hinn almenna sjófaranda.
Varðskip, flugvél og þyrlur eru
órjúfanlegir hlekkir í þeirri keðju er
mótar björgunargetu Landhelg-
isgæslunnar,“ segir hann. Spurður
um hlutverk Landhelgisgæslunnar í
leit og björgun á landi segir Ásgeir
að þrátt fyrir að hún sé á ábyrgð
lögreglu geti Landhelgisgæslan þó
aðstoðað bæði lögreglu og björg-
unarsveitir. „Gagnsemi þyrlna
Landhelgisgæslunnar í slíkum mál-
um hefur margsannað sig, sér-
staklega í afskekktari byggðum. “
Spennandi tímar fram undan
Nýlega bárust fréttir af því að
Landhelgisgæslan hefði ekki getað
sinnt útkalli vegna mikilla anna hjá
þyrlusveitum stofnunarinnar.
Spurður út í atvikið og hvort telja
megi að Landhelgisgæslan sé und-
irmönnuð segir Ásgeir: „Þegar við
skoðum tölfræðina, þá leikur enginn
vafi á því að verkefnum Landhelg-
isgæslunnar er að fjölga. Í fyrra var
sett met í fjölda þyrluútkalla en þá
fór þyrlusveitin í alls 257 útköll.
Núna sjáum við 18% aukningu í
þyrluútköllum frá sama tíma í fyrra.
Þegar þrjár vikur voru liðnar af maí
hafði þyrlusveitin farið í um 100 út-
köll á árinu. Þörfin fyrir eina þyrlu-
áhöfn til viðbótar er því mikil, eins
og við höfum bent á. Við höfum tvær
þyrluáhafnir til taks rúmlega helm-
ing ársins. Þá má lítið út af bregða
en oftast tekst að manna tvær
áhafnir þegar mikið liggur við með
því að kalla áhafnir úr vaktafríum.
Það er þó ekki sjálfgefið,“ segir Ás-
geir. „Við höfum sömuleiðis bent á
að til að tryggja lágmarksöryggi á
hafinu þyrfti að hafa tvær þyrlur
með tveimur áhöfnum til taks allt að
95% ársins, tvö varðskip á sjó hverju
sinni og eftirlits- og björg-
unarflugvél til taks 95% ársins.
Landhelgisgæslan hefur fulla
ástæðu til að horfa björtum augum
fram á veginn. Samkvæmt fjár-
málaáætlun ríkisstjórnarinnar er
búið að taka frá fjármagn til að bæta
við áhöfn auk þess sem þar er gert
ráð fyrir kaupum á þremur nýjum
björgunarþyrlum. Undirbúningur
fyrir útboð stendur nú yfir og ef allt
gengur að óskum ætti fyrsta þyrlan
að vera komin árið 2021. Það eru því
spennandi tímar fram undan hjá
Landhelgisgæslunni. “Morgunblaðið/Eggert
Stórhríð Starfsfólk spyr ekki
um veður þegar haldið er út.
„Til að áhafnir varðskipanna séu ávallt tilbúnar og til
taks er mikið um æfingar um borð. Það geta til dæmis
verið þrekæfingar, reykköfun og köfun og æfingar
með þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Það eina sem
má ganga að vísu um borð í varðskipunum er skatan
og saltfiskurinn í hádeginu á laugardögum“
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 21
Prentun ogmiðlun
Föstudagur 1. júní
16:00 Fm95Blö koma til okkar og senda út þáttinn
(101,7).
18:00 Kaffi Klara býður upp á sjómannadags
tapas og sangríu.
20:00 MiðÍsland Á tæpasta vaði í Tjarnarborg.
(2.500kraldurstakmark 13ára).
23:00 Pubquiz á Höllinni með Audda og Steinda Jr.
Dj Rikki G. þeytir skífum fram á nótt.
Laugardagur 2. júní
09:00 Golfmótið Sjómannavalsinn.
10:00-10:50 Dorgveiðikeppni fyrir börnin við höfnina,
keppendur verða að vera í björgunarvestum
(vesti eru til á bryggjunni).
11:00 Kvennahlaupið frá Íþróttahúsinu Ólafsfirði.
11:30 Sigling í boði Rammans (grillaðar pylsur og
svali fyrir alla á eftir).
13:00 Kappróður sjómanna við höfnina.
14:00 Keppni um Alfreðsstöngina, tímaþraut og
trukkadráttur (við Tjarnarborg og í sundlaug)
Ramminn býður upp á hina sívinsælu
sjávarréttasúpu við harmonikkuleik Stúlla.
Ís fyrir börnin.
17:30 Leirdúfuskotmót sjómanna á skotsvæði SKÓ.
19:30 Knattleikur Sjómenn – Landmenn á
Ólafsfjarðarvelli.
21:00 Útiskemmtun við Tjarnarborg. Ingó Veðurguð,
Aron Hannes, Auddi og Steindi Jr.
23:00 Ingó Veðurguð treður upp á Höllinni.
Sjómannadagurinn 3. júní
10:15 Skrúðganga frá hafnarvog til Ólafsfjarðar
kirkju. Hátíðarmessa, sjómenn heiðraðir.
13:30 Fjölskylduskemmtun við Tjarnarborg. Ingó
Veðurguð, Aron Hannes, Auddi og Steindi,
Hoppukastalar, sölubásar og stanslaust fjör.
14:30-17:00 Kaffisala Slysavarnardeildar kvenna í
Tjarnarborg.
19:00 Árshátíð sjómanna í íþróttahúsi.
Veislustjórn og alment flipp í höndum
Sólmundar Hólm.
Skemmtiatriði frá Audda og Steinda Jr.
Afrek helgarinnar verðlaunuð.
Leynigestur treður upp.
Matur frá Bautanum.
Hljómsveitin Í Svörtum fötum ásamt Stefaníu
Svavars tryllir lýðinn.
23:00-02:00 Opið ball.
Verð kr. 3.000 á ballið • Miðaverð á árshátíðina er kr. 9.500 • Miðapantanir í síma 897 1959
og netfang: sjorinn@simnet.is • Miðapantanir fyrir 25. maí.
Sjómannadagshelgin
á Ólafsfirði í Fjallabyggð 1.-3. júní 2018
66°Norður
Vélfag
Vm félag vélstjóra og
málmiðnaðarmanna
Árni Helgason
Brúin
Ingvi Óskarson
Múlatindur
Vélsmiðja Ólafsfjarðar
Olís
Kjörbúðin
P
ren
tvin
n
sla
:O
d
d
i,u
m
h
verfisvo
ttað
fyrirtæ
ki