Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á
hugaverðar nýjungar gætu
verið handan við hornið í
umbúðaheiminum og gert
útflutning íslenskra sjáv-
arafurða mun umhverf-
isvænni.
Kristján Geir Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Odda, er vel að sér um
þróunina: „Það sem við sjáum gerast
er að margir framleiðendur og kaup-
endur umbúða eru að reyna að færa
sig frá plastpakkningum og langar að
finna aðrar lausnir en frauðplasts-
umbúðir til að flytja ferskan fisk með
flugi,“ segir hann og minnir á þá um-
ræðu sem hefur átt sér stað undan-
farin misseri um plastmengun í hafi.
„Samstarfsaðilar okkar eru langt
komnir við að þróa nýjar tegundir
pakkninga, gerðar úr bylgjupappír,
sem gætu leyst frauðplastskassana af
hólmi. Þessi vara er í prófunum hjá
okkur um þessar mundir og við erum
bjartsýn á að þessar nýju umbúðir
muni gera frauðplastskassana
óþarfa.“
Þurfa átta sinnum minna pláss
Helsti kostur frauðplastsaskja er að
þær eru vatnsþéttar og einangra vel
og halda því fiskinum köldum þótt
hann sé sendur með flug- eða sjóleið-
ina langt út í heim. Vandinn við frauð-
plastið er hins vegar að það er erfitt
að endurnýja, leysist seint og illa upp
í náttúrunni og er fyrirferðarmikið í
flutningum. „Nýju bylgjupappírs-
kassarnir eru þannig hannaðir að þeir
eru samanbrjótanlegir og taka því
mun minna pláss þegar þeir eru fluttir
milli staða. Má reikna með að einn
gámur af þessari nýju kynslóð kassa
geti rúmað jafnmörg box og átta gám-
ar af frauðplastsöskjum, og að auki er
hráefnið í bylgjukössunum endurvinn-
anlegt eftir notkun sem stuðlar að
bættri umgengni við umhverfið.“
Þó svo að nýju pakkningarnar lofi
góðu segir Kristján að það muni þurfa
samstillt átak hjá fiskútflytjendum og
viðskiptavinum þeirra erlendis til þess
að taka í notkun nýja gerð af umbúð-
um. „Frauðplastið hefur verið staðall-
inn í svo langan tíma og í grein eins og
sjávarútvegi, þar sem gæði og fersk-
leiki skipta höfuðmáli, þarf öll virð-
iskeðjan að samþykkja nýjar lausnir,“
segir hann. „Eru líkur á því að frauð-
plastið verði bannað á næstu miss-
erum og því mikilvægt að finna um-
búðalausn sem er umhverfisvænni en
frauðplastkassinn.“
Meira vöruúrval
Miklar breytingar hafa orðið á starf-
semi Odda en fyrr á árinu var ákveðið
að loka bylgju- og plastverksmiðjum
fyrirtækisins hér á landi. Kristján
segir rekstrarumhverfi fyrirtækisins
hafa þróast þannig að ekki var lengur
hagkvæmt að vera með framleiðsluna
á Íslandi. Oddi búi eftir sem áður að
mikilli þekkingu á markaðinum, sem
og stórum hópi öflugra birgja, og geti
boðið umbúðalausnir sem henta öllum
þörfum íslenskra viðskiptavina.
„Breytingarnar hafa gengið vel fyrir
sig og gera okkur fært að bjóða miklu
breiðara úrval en áður,“ útskýrir
hann og bætir við að Oddi er ekki
hættur allri innlendri framleiðslu og
verður almenn prentun og öskjufram-
leiðsla efld á næstu misserum.
Oddi selur allt frá svokölluðum
tröllakössum niður í smæstu neyt-
endapakkningar og segir Kristján að
miklu skipti að velja pakkningar sem
hæfa hverri vöru. Umbúðir sem eru
vandlega hannaðar og af réttri stærð
og lögun fá vöruna til að skera sig úr
fjöldanum og nýta betur pláss í hill-
um, brettum og gámum. „Starfsmenn
okkar búa yfir mikilli sérfræðiþekk-
ingu þegar kemur að vali á efni og um-
búðum og vilja vinna náið með hönnun
viðskiptavina okkar til að gera sem
bestar pakkningar. Þarf að horfa á alla
virðiskeðjuna, og ef svo ber undir
hvernig heilu vörulínurnar spila sam-
an, og ná þannig fram meiri hag-
kvæmni í pakkningunum,“ segir
Kristján. „Viðskiptavinir okkar leggja
líka vaxandi áherslu á að nota ekki
umbúðir að óþörfu, bæði til að draga
úr kostnaði og minnka umhverfisáhrif,
og margar leiðir sem hægt er að fara
án þess að fórna gæðum umbúðanna
eða útliti og vernda innihaldið áfram
fyrir hnjaski og skemmdum.“
Umbúðaheimurinn breytist hratt
og segir Kristján að fyrirtæki ættu að
ræða reglulega við sérfræðingana í
greininni um nýjar lausnir og ný efni.
„Við sjáum t.d. um þessar mundir ný
og umhverfisvænni og fjölhæfari hrá-
efni vera að koma fram á sjón-
arsviðið.“
Morgunblaðið/Ernir
Úthugsað Vönduð hönnun pakkninga stuðlar að betri nýtingu á brettum og gám-
um, leyfir vörunni að njóta sín í hillum og getur dregið úr umbúðanotkun.
Morgunblaðið/Ernir
Á útleið Þó frauðplastið hafi ýmsa góða eiginleika er það ekki umhverfisvænt.
Tími frauðplastskassanna
gæti loks verið á enda
Morgunblaðið/Arnþór
Umskipti „Frauðplastið hefur verið staðallinn í svo langan tíma og í grein eins og sjávarútvegi, þar sem gæði og ferskleiki skipta höfuðmáli, þarf öll virðiskeðjan að sam-
þykkja nýjar lausnir,“ segir Kristján Geir Gunnarsson. Breytingarnar gætu gerst hratt því stjórnvöld víða um heim gera sig líkleg til að banna frauðplastumbúðir.
Gengið hefur vel að þróa
nýja tegund pakkninga
úr bylgjupappír sem
gætu komið í stað
frauðplastskassanna
sem sjávarútvegurinn
hefur þurft að reiða sig
á til þessa.