Morgunblaðið - 01.06.2018, Síða 22

Morgunblaðið - 01.06.2018, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Á hugaverðar nýjungar gætu verið handan við hornið í umbúðaheiminum og gert útflutning íslenskra sjáv- arafurða mun umhverf- isvænni. Kristján Geir Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Odda, er vel að sér um þróunina: „Það sem við sjáum gerast er að margir framleiðendur og kaup- endur umbúða eru að reyna að færa sig frá plastpakkningum og langar að finna aðrar lausnir en frauðplasts- umbúðir til að flytja ferskan fisk með flugi,“ segir hann og minnir á þá um- ræðu sem hefur átt sér stað undan- farin misseri um plastmengun í hafi. „Samstarfsaðilar okkar eru langt komnir við að þróa nýjar tegundir pakkninga, gerðar úr bylgjupappír, sem gætu leyst frauðplastskassana af hólmi. Þessi vara er í prófunum hjá okkur um þessar mundir og við erum bjartsýn á að þessar nýju umbúðir muni gera frauðplastskassana óþarfa.“ Þurfa átta sinnum minna pláss Helsti kostur frauðplastsaskja er að þær eru vatnsþéttar og einangra vel og halda því fiskinum köldum þótt hann sé sendur með flug- eða sjóleið- ina langt út í heim. Vandinn við frauð- plastið er hins vegar að það er erfitt að endurnýja, leysist seint og illa upp í náttúrunni og er fyrirferðarmikið í flutningum. „Nýju bylgjupappírs- kassarnir eru þannig hannaðir að þeir eru samanbrjótanlegir og taka því mun minna pláss þegar þeir eru fluttir milli staða. Má reikna með að einn gámur af þessari nýju kynslóð kassa geti rúmað jafnmörg box og átta gám- ar af frauðplastsöskjum, og að auki er hráefnið í bylgjukössunum endurvinn- anlegt eftir notkun sem stuðlar að bættri umgengni við umhverfið.“ Þó svo að nýju pakkningarnar lofi góðu segir Kristján að það muni þurfa samstillt átak hjá fiskútflytjendum og viðskiptavinum þeirra erlendis til þess að taka í notkun nýja gerð af umbúð- um. „Frauðplastið hefur verið staðall- inn í svo langan tíma og í grein eins og sjávarútvegi, þar sem gæði og fersk- leiki skipta höfuðmáli, þarf öll virð- iskeðjan að samþykkja nýjar lausnir,“ segir hann. „Eru líkur á því að frauð- plastið verði bannað á næstu miss- erum og því mikilvægt að finna um- búðalausn sem er umhverfisvænni en frauðplastkassinn.“ Meira vöruúrval Miklar breytingar hafa orðið á starf- semi Odda en fyrr á árinu var ákveðið að loka bylgju- og plastverksmiðjum fyrirtækisins hér á landi. Kristján segir rekstrarumhverfi fyrirtækisins hafa þróast þannig að ekki var lengur hagkvæmt að vera með framleiðsluna á Íslandi. Oddi búi eftir sem áður að mikilli þekkingu á markaðinum, sem og stórum hópi öflugra birgja, og geti boðið umbúðalausnir sem henta öllum þörfum íslenskra viðskiptavina. „Breytingarnar hafa gengið vel fyrir sig og gera okkur fært að bjóða miklu breiðara úrval en áður,“ útskýrir hann og bætir við að Oddi er ekki hættur allri innlendri framleiðslu og verður almenn prentun og öskjufram- leiðsla efld á næstu misserum. Oddi selur allt frá svokölluðum tröllakössum niður í smæstu neyt- endapakkningar og segir Kristján að miklu skipti að velja pakkningar sem hæfa hverri vöru. Umbúðir sem eru vandlega hannaðar og af réttri stærð og lögun fá vöruna til að skera sig úr fjöldanum og nýta betur pláss í hill- um, brettum og gámum. „Starfsmenn okkar búa yfir mikilli sérfræðiþekk- ingu þegar kemur að vali á efni og um- búðum og vilja vinna náið með hönnun viðskiptavina okkar til að gera sem bestar pakkningar. Þarf að horfa á alla virðiskeðjuna, og ef svo ber undir hvernig heilu vörulínurnar spila sam- an, og ná þannig fram meiri hag- kvæmni í pakkningunum,“ segir Kristján. „Viðskiptavinir okkar leggja líka vaxandi áherslu á að nota ekki umbúðir að óþörfu, bæði til að draga úr kostnaði og minnka umhverfisáhrif, og margar leiðir sem hægt er að fara án þess að fórna gæðum umbúðanna eða útliti og vernda innihaldið áfram fyrir hnjaski og skemmdum.“ Umbúðaheimurinn breytist hratt og segir Kristján að fyrirtæki ættu að ræða reglulega við sérfræðingana í greininni um nýjar lausnir og ný efni. „Við sjáum t.d. um þessar mundir ný og umhverfisvænni og fjölhæfari hrá- efni vera að koma fram á sjón- arsviðið.“ Morgunblaðið/Ernir Úthugsað Vönduð hönnun pakkninga stuðlar að betri nýtingu á brettum og gám- um, leyfir vörunni að njóta sín í hillum og getur dregið úr umbúðanotkun. Morgunblaðið/Ernir Á útleið Þó frauðplastið hafi ýmsa góða eiginleika er það ekki umhverfisvænt. Tími frauðplastskassanna gæti loks verið á enda Morgunblaðið/Arnþór Umskipti „Frauðplastið hefur verið staðallinn í svo langan tíma og í grein eins og sjávarútvegi, þar sem gæði og ferskleiki skipta höfuðmáli, þarf öll virðiskeðjan að sam- þykkja nýjar lausnir,“ segir Kristján Geir Gunnarsson. Breytingarnar gætu gerst hratt því stjórnvöld víða um heim gera sig líkleg til að banna frauðplastumbúðir. Gengið hefur vel að þróa nýja tegund pakkninga úr bylgjupappír sem gætu komið í stað frauðplastskassanna sem sjávarútvegurinn hefur þurft að reiða sig á til þessa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.