Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
S
kagamenn hafa lengi verið
þekktir fyrir að skora
mörk, en sjómenn frá
Akranesi eru ekki síður
frægir fyrir hreysti og
dug. Það kemur þess vegna lítið á
óvart að sjómannadagurinn eigi sér
langa hefð á Akranesi og veki hlýj-
ar minningar í huga heimamanna.
Ella María Gunnarsdóttir, for-
stöðumaður menningar- og safn-
amála hjá Akraneskaupstað, sagði
Morgunblaðinu frá því helsta sem
vita þarf ætli maður að halda sjó-
mannadaginn hátíðlegan á Akranesi
þetta árið.
Haldið í hefðirnar
„Dagskráin á sjómannadaginn á
Akranesi geymir iðulega nokkra liði
sem mörgum þykja orðnir ómiss-
andi. Dagurinn hefst á minningar-
stund við minnismerki um týnda
sjómenn í kirkjugarði Akraness og
að því loknu fer fram sjómanna-
dagsmessa í Akraneskirkju. Að at-
höfninni lokinni er blómsveigður
lagður að minnismerki sjómanna á
Akratorgi,“ segir Ella. „Sjómað-
urinn er listaverk eftir Martein
Guðmundsson sem var afhjúpað á
sjómannadeginum árið 1967. Fyrir
utanbæjarfólk er ágætt að vita að
styttan stendur við Akratorg í
miðbæ Akraness en hún var reist
til minningar um drukknaða sjó-
menn.“
Ný sýning verður opnuð í Akra-
nesvita á sjómannadaginn og frítt
verður í vitann á milli tíu og sex.
„Sýningin sem um ræðir fjallar um
sögu vita á Akranesi og er haldin í
tilefni 100 ára afmælis gamla vitans
á Suðurflös. Sýningin verður á
fyrstu hæðinni svo enginn þarf að
hafa áhyggjur af því að klöngrast
upp alla stigana,“ segir Ella og
hlær. Verður þó önnur sýning á
annarri hæð vitans, fyrir áhuga-
sama: „Myndlistarmaðurinn Pétur
Bergmann Bertol er með sýningu
allan júnímánuð á annarri hæðinni
svo hún verður auðvitað opin gest-
um og gangandi líka.“
Nóg í boði fyrir unga fólkið
Akranesleikarnir 2018, árlegt sund-
mót Sundfélags Akraness, verða
haldnir þessa sömu helgi og má því
búast við margmenni og sér-
staklega miklu lífi í bænum þetta
árið. „Það eru þrjú til fjögur hundr-
uð krakkar að keppa á mótinu og
svo bætast þjálfarar og foreldrar
þar við,“ segir Ella. „Á síðustu ár-
um hefur mótið ekki verið haldið
sömu helgi og sjómannadagurinn
svo við búumst við miklu fjöri að
þessu sinni.“ Leikarnir verða
haldnir í Jaðarsbakkalaug en þar er
25 m útilaug og glænýtt heitupotta-
svæði sem Ella segir að svíki eng-
an.
Nokkuð hefðbundin fjölskyldu-
dagskrá verður á öðrum stöðum í
bænum. „Um eittleytið verður
dorgveiðikeppni,“ segir Ella en sú
verður haldin á sementsbryggjunni.
„Í kjölfarið verður svo fjöl-
skylduskemmtun á hafnarsvæðinu
á milli 14 og 16 þar sem hoppukast-
ali, róðrarkeppni, kassaklifur og
ýmislegt skemmtilegt verður um að
vera.“
Þyrla Landhelgisgæslunnar hef-
ur gjarnan reynt að sækja Akranes
heim á þessum degi en skiljanlega
er það aldrei öruggt. „Þyrlan hefur
komið hérna nokkrum sinnum en í
hitteðfyrra þurfti hún að sinna út-
kalli. Við verðum því bara að vona
að hún láti sjá sig,“ segir Ella.
Kökur og kaffi
Fyrir þá sem eru svangir er gott að
vita af dásemdarkaffisölunni hjá
slysavarnadeildinni Líf sem fer
fram í Jónsbúð við Akursbraut og
svo er einnig von á sölufólki á
hafnarsvæðinu.
„Svo má ekki gleyma dýfinga-
keppninni!“ segir Ella og heyrist
greinilega á henni að viðburðurinn
er bæði spennandi og skemmti-
legur. Sjóbaðsfélag Akraness
stendur fyrir keppninni en fé-
lagsfólk í Sjóbaðsfélaginu á það allt
Dýfingakeppni, reiptog og gamlar
Akranesbær mun iða af
lífi á sjómannadaginn
Heimamenn standa
vörð um skemmtilegar
hefðir og sýna sínar
bestu hliðar.
Ljósmynd/Aðsend
Blíða Kajakróður við bryggjuna á sjómannadaginn í fyrra. Í ár verður keppt í ýmsum greinum, þar á meðal í dýfingum af báti ofan í saltan sjó.
Ljósmynd/Myndsmiðjan
Forvitni Verðandi sjófólk virðir fyrir sér afurðina. Lærifaðir fylgist af gaumgæfni með öllu sem gerist.
Ljósmynd/Myndsmiðjan
Gleði Mikil stemning myndast gjarnan á hafnarsvæðinu.
Ljósmynd/Myndsmiðjan
Sjónarspil Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur gjarnan heimsótt Akranes.
Ljósmynd/Magnús Þór Hafsteinsson
Spennt Ella María Gunnarsdóttir
Ljósmynd/Myndsmiðjan
Smiðir Fyrstu tökin í smíðamennsku æfð undir eftirliti fullorðinna.
Ljósmynd/Jónas Ottósson
Jaðarsbakkalaug Nýlega er búið að gera allt útisvæði upp.