Morgunblaðið - 01.06.2018, Síða 31

Morgunblaðið - 01.06.2018, Síða 31
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 31 Vinnslustöðin hf. sendir sjómönnum og fjölskyldum þeirra góðar kveðjur í tilefni af sjómannadeginum 2018. Vinnslustöðin hf. | Hafnargötu 2 | 900 Vestmannaeyjar | vsv.is Til hamingjumeðdaginnykkar, sjómenn! Teitur Gissurarson teitur@mbl.is I ða Marsibil Jónsdóttir er ein af mörgum Bílddælingum sem hafa flutt aftur á æskuslóðirnar eftir að fiskeldi hófst á staðnum. Hún segir uppbyggingu iðn- aðarins vera fagnaðarefni fyrir Bíld- dælinga og aðra íbúa á svæðinu en mikil uppbygging hafi átt sér þar stað á seinustu ár- um. Iða, sem starf- ar nú sem skrif- stofustjóri hjá Arnarlaxi hf., er fædd og uppalin á Bíldudal en flutt- ist búferlum til að sækja skóla og vinnu. „Ég út- skrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Bifröst 2006 og gegndi starfi skrif- stofustjóra hjá Gló þegar ég bjó í Reykjavík,“ segir Iða í samtali við Morgunblaðið. Forsvarsmenn Arn- arlax höfðu samband við Iðu í lok árs 2013 og ræddu við hana um mögulegt starf við launagreiðslur og bókhald. „Á þessum tíma er þetta ævintýri að byrja. Það voru þrír starfsmenn hjá fyrirtækinu þá,“ segir Iða en í dag eru starfsmenn Arnarlax orðnir um 120 talsins. Áður skorti tækifærin Iða segist strax hafa verið mjög hrif- in af þeirri hugmynd að starfa fyrir fyrirtækið og flytja aftur á Bíldudal. „Ég varð strax svolítið spennt vegna þess að það höfðu ekki verið nein tækifæri til þess að geta sest hér að til frambúðar með starfsöryggi og annað slíkt í huga,“ segir hún. Eftir nokkrar viðræður um vorið heimsótti Iða fyrirtækið og eftir það varð ekki aftur snúið. „Ég fluttist ein- faldlega aftur heim strax í júní og sé ekki eftir því í dag,“ segir Iða. Þegar hún flutti aftur heim var lítið um vænlegan húsakost á svæðinu. Það endaði með því að heimför Iðu fékk bókstaflegri merkingu þegar hún flutti í húsið sem foreldrar hennar höfðu sjálf byggt seint á sjöunda ára- tug síðustu aldar. „Ég reif þar allt út og er búin að koma mér svona líka ágætlega fyrir,“ segir Iða. Um 100 manns starfa fyrir Arnar- lax á starfsstöð fyrirtækisins í Bíldu- dal en einnig starfar fólk á vegum fyrirtækisins við seiðaeftirlit bæði í Tálknafirði og á Þorlákshöfn. Iða segir uppbyggingu á Bíldudal vera skýra stefnu fyrirtækisins en fyrir- tækið rekur einnig litla starfsstöð í Reykjavík. Eins og gefur að skilja hefur íbúum á svæðinu fjölgað sam- hliða stækkun fyrirtækisins, sem Iða segir mikil gleðitíðindi. „Það hefur til að mynda tvöfaldast fjöldinn hérna í grunnskólanum,“ segir hún en bætir þó við: „Það eru auðvitað örlitlir vaxt- arverkir sem fylgja svona örri fjölg- un, bæði hjá fyrirtækinu og sam- félaginu, en það reyna bara allir að leggjast á eitt um að vaxa og dafna.“ Úr þremur starfsmönn- um í 120 Uppbygging fiskeldis Arnarlax hefur verið lyftistöng fyrir samfélagið á svæðinu. Margir hafa sest að á Bíldudal og Tálknafirði en fjöldi nemenda við grunn- skólann hefur tvöfaldast á skömmum tíma. Iða Marsibil Jónsdóttir Laxeldi Iða Marsibil varð hrifin af fyrirtækin strax í upphafi. Arnarlax á Bíldudal er nú stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins. Börn Vaxandi fyrirtæki hefur fylgt fólksfjölgun í sveitinni. Grunnskólabörnum fjölgar ört, heimamönnum til mikillar gleði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.